Ólokin þingmál frá vorþingi
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er gert ráð fyrir því að nefndir Alþingis starfi á tímabilinu 17.-31. ágúst og að þingfundir verði dagana 2.-15. september. Hér að neðan er að finna lista yfir þingmál sem ekki voru afgreidd á vorþingi. Flest þessara frumvarpa hafa enn sem komið er fengið fremur litla og jafnvel enga umfjöllun í nefndum Alþingis, þrátt fyrir að sum þeirra verði að teljast mikil að vöxtum. Því er með öllu óljóst hve stór hluti þessara mála verður afgreiddur sem lög frá Alþingi í lok sumars:
- Frumvarp til skipulagslaga
- Frumvarp til mannvirkjalaga
- Frumvarp til breytinga á lögum um brunavarnir
- Frumvarp til umferðarlaga
- Frumvarp um breytingar á barnaverndarlögum
- Frumvarp um grunngerð landupplýsinga
- Frumvarp um stjórn vatnamála
- Frumvarp um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða
- Frumvarp um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka
- Frumvarp um afnám laga um húsmæðraorlof
- Frumvarp um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands
- Frumvarp til laga um þjónustuviðskipti
- Frumvarp til laga um skeldýrarækt
Umsagnir sambandsins um ofangreind þingmál er að finna á heimasíðu sambandsins. Enn er þó lokið vinnu við umsögn um frumvarp til laga um stjórn vatnamála og frumvarp um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands.

