Umsögn sambandsins um frumvarp um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjana
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent iðnaðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Í umsögninni eru lagt til að gerðar verði breytingar á tveim greinum frumvarpsins. Annars vegar er lagt til að gerð verði sú breyting á 3. gr. frumvarpsins að fellt verði brott ákvæði sem undanskilur friðlýst svæði frá gildissviði rammaáætlunar. Hins vegar eru lagðar til breytingar á 7. gr. frumvarpsins sem miða að því að draga úr bindandi áhrifum rammaáætlunar á skipulagsáætlanir sveitarfélaga. Er lagt til að sveitarstjórnum verði ekki skylt að gera ráð fyrir virkjunarkosti í skipulagsáætlunum þótt hans sé getið í nýtingarflokki rammaáætlunar. Jafnframt er lagt til að ráðherra verði heimilt að framlengja þann frest sem sveitarfélögum er veittur vegna svæða sem falla í verndarflokk áætlunarinnar. Sú breyting er lögð til með vísan til þess að í sumum tilvikum tekur friðlýsingarferli mjög langan tíma.
