Íþróttanefnd ríkisins
Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 29. september 2010 var staðfest tilnefning sambandsins í íþróttanefnd ríkisins. Samkvæmt 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla voru tilnefnd Ingvar S. Jónsson, íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarkaupstaðar, og Jóhanna Margrét Hjartardóttir, menningar-, íþrótta- og frístundafulltrúi í Hveragerðisbæ. Það þeirra sem ráherra velur ekki sem aðalmann verði varamaður hins.
