Hlutverk Sambands íslenskra sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur að eflingu samstarfs íslenskra sveitarfélaga og að hvers konar hagsmunamálum þeirra. Verulegur hluti starfseminnar felst í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélögin gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum og erlendum aðilum. Sambandið mótar stefnu sveitarfélaganna til einstakra mála og hefur því náin samskipti við ríkisstjórn og Alþingi.

Í sveitarstjórnarlögum er Samband íslenskra sveitarfélaga viðurkennt sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna og í gildi er sérstakur samstarfssáttmáli við ríkisstjórn Íslands, þar sem með formlegum hætti er kveðið á um samskipti þessara tveggja stjórnvalda.

Í lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga er tilgangi þess skipt upp í fjóra meginþætti, sem eru:
  • Að vera sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna í landinu og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra og samstarfi.
  • Að vera fulltrúi íslenskra sveitarfélaga, eftir því sem við á, gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum aðilum.
  • Að vera fulltrúi íslenskra sveitarfélaga gagnvart erlendum samtökum um sveitarstjórnarmál og öðrum þeim aðilum erlendis, er láta sig þau mál skipta.
  • Að vinna að almennri fræðslu um sveitarstjórnarmál með ráðstefnu- og fundahaldi og útgáfu- og upplýsingastarfsemi um einstaka þætti sveitarstjórnarmála fyrir sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga.

 

Senda grein

Sambandið



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica