Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um Samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:00-16:15. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar starf bókara og launafulltrúa á rekstrar- og útgáfusviði sambandsins. Bókari og launafulltrúi sér um alla bókhalds- og launavinnslu hjá sambandinu og samstarfsstofnunum þess, skv. nánari starfslýsingu, aðstoðar við áætlanagerð og reikningsskil og sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum þegar þörf er á.
Lesa meira
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013 og hafa allir styrkþegar fengið formlegt svarbréf. Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Lesa meira
Á undanförnum árum hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti og Námsmatsstofnun, sem sér um framkvæmd prófanna, fengið nokkrar kvartanir frá skólastjórum um að dagsetningar samræmdra könnunarprófa í september hafi rekist á við aðra viðburði í viðkomandi sveitarfélagi og þá fyrst og fremst réttir í dreifbýli.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál, að lokinni umfjöllun stjórnar sambandsins um málið.
Lesa meira
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga var að þessu sinni haldinn á Hellu dagana 26.-27. apríl 2012. Fundurinn var ágætlega sóttur af hálfu sveitarfélaga enda var dagskráin fjölbreytt og áhugaverð. Einnig var hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira
Velferðarnefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun fatlaðs fólks. Sambandið hefur látið í té umsögn [linkur] sína um málið auk þess sem fjölmörg sveitarfélög hafa lýst sjónarmiðum sínum.
Stjórnskipulag grunnskóla í Englandi hefur eins og á Íslandi verið að breytast undanfarin ár m.t.t. aukinnar valddreifingar og þar með aukinnar ábyrgðar skólanefnda/fræðslustjórnenda í sveitarfélögum (e. School governance) á framkvæmd skólastarfs. Niðurstöður úr ytra mati á skólum í Englandi hafa leitt í ljós mikilvægi skólanefnda/fræðslustjórnenda í að stuðla að auknum gæðum í skólastarfi og í nýlegri skýrslu sem er aðgengileg á neðangreindri slóð, eru dregnir fram lykilþættir sem einkenna skólanefndir/fræðslustjórnendur sem hafa náð afburða árangri.
Lesa meira
Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040 frá 2011 kallar á leiðbeiningar og verklagsreglur. Á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa þær verið gerðar aðgengilegar á einum stað. Frekara stuðningsefni verður bætt við síðuna eftir því sem ástæða þykir til.
Lesa meira
Ráðstefnan Íslensk þjóðfélagsfræði 2012 verður haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 20. og laugardaginn 21. apríl n.k. Í ár verður ráðstefnan haldin í sjötta sinn og mun hún verða tileinkuð 25 ára afmæli háskólans. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.
Lögfræði- og velferðarsvið sambandsins hefur sent frá sér umsagnir um tvö lagafrumvörp sem nú liggja frammi á Alþingi. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, 598. mál og frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, 510. mál.
Lesa meira
Mánudaginn 16. apríl verður haldin málsstofa í Odda 101 um ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldin verður í Rio D Janeiro í júní 2012. Að málstofunni mun Lúðvík E. Gústafsson, verkefnisstjóri á sviði umhverfismála hjá sambandinu, m.a. flytja erindi en málstofan er haldin í samstarfi nokkurra aðila.
Alþingi hefur samþykkt breytingu á skipulagslögum sem felur í sér að umhverfisráðherra hefur sex vikna frest frá því að tillaga Skipulagsstofnunar berst til þess að synja, fresta eða staðfesta aðalskipulagstillögu. Áður var enginn frestur tilgreindur í lögunum og hefur langur afgreiðslutími ráðuneytisins við afgreiðslu aðalskipulagstillagna sveitarfélaga sætt mikilli gagnrýni, bæði af hálfu sveitarstjórna og Alþingis.
Lesa meiraSamband íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands hafa gefið út leiðbeiningaritið Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum fyrir sveitarfélög, samtök og annað áhugafólk um íbúalýðræði.
Lesa meira
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna verður haldinn 26. og 27. apríl 2012 á Hellu, Rangárþingi ytra. Fundurinn er ætlaður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaganna í skipulagsmálum.
Lesa meira
Undanfarna mánuði hafa fulltrúar sambandsins og innanríkisráðuneytis unnið saman að gerð reglugerðar um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og fjárhagsleg viðmið, á grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í þeirri vinnu hefur verið leitast við að taka tillit til ýmissa ábendinga og athugasemda sem sveitarstjórnarmenn gerðu við við umfjöllun um fjármálareglur í sveitarstjórnarlagafrumvarpinu.
Lesa meira
Eins og komið hefur fram í fréttum var fjöldi nýrra frumvarpa lagður fram á Alþingi áður en hlé var gert á þingfundum fyrir páska. Allmörg þessara mála snerta sveitarfélögin með ýmsum hætti og væntir sambandið þess að veita umsagnir um flest þessara mála.
Lesa meira
Í æskulýðslögum nr. 70/2007 er kveðið á um að sveitarfélög skuli hlutast til um að stofna ungmennaráð og eru þau hugsuð til að vera sveitarstjórnum til rágjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi og til að kynna lýðræðisleg vinnubrögð fyrir ungu fólki. Frá því að lögin tóku gildi hafa mörg sveitarfélög stofnsett ungmennaráð og í dag er 31 sveitarfélag með ungmennaráð.
Lesa meiraSambandið