Fréttir

SIS_Felagsthjonusta_760x640

22.5.2012 : Samvinna skóla og barnaverndar

Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um Samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:00-16:15. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.

Lesa meira
 
Rett_Blatt_Stort_a_vefinn

15.5.2012 : Starf bókara og launafulltrúa

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar starf bókara og launafulltrúa á rekstrar- og útgáfusviði sambandsins. Bókari og launafulltrúi sér um alla bókhalds- og launavinnslu hjá sambandinu og samstarfsstofnunum þess, skv. nánari starfslýsingu, aðstoðar við áætlanagerð og reikningsskil og sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum þegar þörf er á.

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

11.5.2012 : Úthlutað úr Sprotasjóði

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013 og hafa allir styrkþegar fengið formlegt svarbréf.  Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Lesa meira
 
Fyrirspurn

11.5.2012 : Könnun meðal skólastjóra grunnskóla á dagsetningum samræmdra könnunarprófa

Á undanförnum árum hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti og Námsmatsstofnun, sem sér um framkvæmd prófanna, fengið nokkrar kvartanir frá skólastjórum um að dagsetningar samræmdra könnunarprófa í september hafi rekist á við aðra viðburði í viðkomandi sveitarfélagi og þá fyrst og fremst réttir í dreifbýli.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

4.5.2012 : Orlof húsmæðra 2012

Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarráðuneytinu skal framlag sveitarfélaga til orlofsnefnda á hverju svæði vera 95,52 krónur fyrir hvern íbúa sveitarfélagsins. Framlag þetta skal greiða orlofsnefnd viðkomandi orlofssvæðis fyrir 15. maí nk.  sbr. 5. gr. laga nr. 53/1972. Lesa meira
 
Raflínur

3.5.2012 : Umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál, að lokinni umfjöllun stjórnar sambandsins um málið.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

3.5.2012 : Erindi frá samráðsfundi Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga var að þessu sinni haldinn á Hellu dagana 26.-27. apríl 2012. Fundurinn var ágætlega sóttur af hálfu sveitarfélaga enda var dagskráin fjölbreytt og áhugaverð. Einnig var hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

2.5.2012 : Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Velferðarnefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun fatlaðs fólks. Sambandið hefur látið í té umsögn [linkur] sína um málið auk þess sem fjölmörg sveitarfélög hafa lýst sjónarmiðum sínum.

Lesa meira
 
undirritun-samkomulags-um-samstarf

26.4.2012 : Samkomulag um eflingu grunnmenntunar í tækni- og raunvísindum

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök iðnaðarins hafa gert með sér samkomulag um eflingu menntunar í tækni og raunvísindum á miðstigi grunnskóla.  Samstarfsaðilar eru Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Námsmatsstofnun. Þessir aðilar munu leggja fram fé og mannafla til að vinna greiningu á núverandi stöðu menntunar í tækni- og raunvísindum hér á landi og í samanburði við önnur lönd. Lesa meira
 
Hnotturinn_vef

26.4.2012 : Stjórnskipulag grunnskóla í Englandi

Stjórnskipulag grunnskóla í Englandi hefur eins og á Íslandi verið að breytast undanfarin ár m.t.t. aukinnar valddreifingar og þar með aukinnar ábyrgðar skólanefnda/fræðslustjórnenda í sveitarfélögum (e. School governance) á framkvæmd skólastarfs.  Niðurstöður úr ytra mati á skólum í Englandi hafa leitt í ljós mikilvægi skólanefnda/fræðslustjórnenda í að stuðla að auknum gæðum í skólastarfi og í nýlegri skýrslu sem er aðgengileg á neðangreindri slóð, eru dregnir fram lykilþættir sem einkenna skólanefndir/fræðslustjórnendur sem hafa náð afburða árangri.

Lesa meira
 
mappa

26.4.2012 : Leiðbeiningar og verklagsreglur vegna reglugerðar um ábyrgð og skyldur

Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040 frá 2011 kallar á leiðbeiningar og verklagsreglur. Á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa þær verið gerðar aðgengilegar á einum stað. Frekara stuðningsefni verður bætt við síðuna eftir því sem ástæða þykir til.

Lesa meira
 
HAlogo

17.4.2012 : Ráðstefnan íslensk þjóðfélagsfræði 2012

Ráðstefnan Íslensk þjóðfélagsfræði 2012 verður haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 20. og laugardaginn 21. apríl n.k. Í ár verður ráðstefnan haldin í sjötta sinn og mun hún verða tileinkuð 25 ára afmæli háskólans. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.

Lesa meira
 
mappa

16.4.2012 : Umsagnir um tvö lagafrumvörp

Lögfræði- og velferðarsvið sambandsins hefur sent frá sér umsagnir um tvö lagafrumvörp sem nú liggja frammi á Alþingi. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, 598. mál og frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, 510. mál.

Lesa meira
 
Leidin_til_Rio

13.4.2012 : Leiðin til Ríó

Mánudaginn 16. apríl verður haldin málsstofa í Odda 101 um ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldin verður í Rio D Janeiro í júní 2012. Að málstofunni mun Lúðvík E. Gústafsson, verkefnisstjóri á sviði umhverfismála hjá sambandinu, m.a. flytja erindi en málstofan er haldin í samstarfi nokkurra aðila.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

10.4.2012 : Breyting á skipulagslögum og fundargerð skipulagsmálanefndar sambandsins

Alþingi hefur samþykkt breytingu á skipulagslögum sem felur í sér að umhverfisráðherra hefur sex vikna frest frá því að tillaga Skipulagsstofnunar berst til þess að synja, fresta eða staðfesta aðalskipulagstillögu. Áður var enginn frestur tilgreindur í lögunum og hefur langur afgreiðslutími ráðuneytisins við afgreiðslu aðalskipulagstillagna sveitarfélaga sætt mikilli gagnrýni, bæði af hálfu sveitarstjórna og Alþingis.

Lesa meira
 
lydraedisrit_forsida

10.4.2012 : Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum - leiðbeiningarrit

Samband íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands hafa gefið út leiðbeiningaritið Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum fyrir sveitarfélög, samtök og annað áhugafólk um íbúalýðræði.

Lesa meira
 
SIS_Skipulags_Byggdamal_760x640

4.4.2012 : Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sambandsins

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna verður haldinn 26. og 27. apríl 2012 á Hellu, Rangárþingi ytra. Fundurinn er ætlaður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaganna í skipulagsmálum.

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

2.4.2012 : Drög að reglugerð um fjármálareglur sveitarfélaga til umsagnar

Undanfarna mánuði hafa fulltrúar sambandsins og innanríkisráðuneytis unnið saman að gerð reglugerðar um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og fjárhagsleg viðmið, á grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í þeirri vinnu hefur verið leitast við að taka tillit til ýmissa ábendinga og athugasemda sem sveitarstjórnarmenn gerðu við við umfjöllun um fjármálareglur í sveitarstjórnarlagafrumvarpinu.

Lesa meira
 
Skjaldarmerki

2.4.2012 : Ný þingmál sem snerta sveitarfélögin

Eins og komið hefur fram í fréttum var fjöldi nýrra frumvarpa lagður fram á Alþingi áður en hlé var gert á þingfundum fyrir páska. Allmörg þessara mála snerta sveitarfélögin með ýmsum hætti og væntir sambandið þess að veita umsagnir um flest þessara mála.

Lesa meira
 
Ungt-folk

29.3.2012 : Ungmennaráð sveitarfélaga

Í æskulýðslögum nr. 70/2007 er kveðið á um að sveitarfélög skuli hlutast til um að stofna ungmennaráð og eru þau hugsuð til að vera sveitarstjórnum til rágjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi og til að kynna lýðræðisleg vinnubrögð fyrir ungu fólki. Frá því að lögin tóku gildi hafa mörg sveitarfélög stofnsett ungmennaráð og í dag er 31 sveitarfélag með ungmennaráð.

Lesa meira
 

Sambandið



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica