Fréttir

Sambandið


Fréttir
  • althingi-mynd

3.9.2010

Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka

Á meðal þeirra þingmála sem stefnt er að því að ljúka afgreiðslu Alþingis á í september er frumvarp um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda, nr. 162/2006. Í 5. gr. laganna er eins og kunnugt er kveðið á um skyldu sveitarfélaga með fleiri en 500 íbúa til að veita fjárframlög til stjórnmálasamtaka sem hlotið hafa a.m.k. 5% atkvæða í síðastliðnum sveitarstjórnarkosningum. Ekki eru lagðar til neinar breytingar í frumvarpinu hvað þessi skilyrði varðar. Hins vegar er lagt til að skýrlega verði tekið fram í ákvæðinu að skylt sé að veita slík fjárframlög árlega, en ekki t.d. eingöngu á kosningaári. Í umsögn sambandsins um frumvarpið er lýst því áliti sambandsins að hér sé ekki um að ræða efnislega breytingu á gildandi lögum heldur frekar viðbrögð við gagnrýni á að texti laganna er á ýmsan hátt óskýr um framkvæmd þeirra.

Einnig er lagt til í frumvarpinu að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga verði í lögunum veitt sérstök heimild til að setja viðmiðunarreglur til að stuðla að samræmdri framkvæmd á greiðslum framlaga frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka. Ljóst er þó að viðmiðunarreglur af þessu tagi munu ekki verða skuldbindandi fyrir sveitarfélögin og verður það því áfram ákvörðun hvers sveitarfélags fyrir sig hversu miklum fjármunum það ákveður að verja til þessa árlega.

Sambandið gerir ekki athugasemd í umsögn sinni við framangreindar breytingar á lögunum en engin afstaða liggur hins vegar fyrir af hálfu sambandsins um það hvort heimild til að setja viðmiðunarreglur verði nýtt. Sambandið taldi hins vegar tilefni til þess að leggja fram breytingartillögu við frumvarpið í þeim tilgangi að taka af vafa um framkvæmd úthlutunar á kosningaári, en allmargar fyrirspurnir höfðu borist sambandinu um rétt nýrra framboða til framlaga á yfirstandandi ári. Í breytingartillögu sambandsins er lagt til að ný framboð sem hljóta a.m.k. 5% fylgi í sveitarstjórnarkosningum hljóti fjárframlög fyrir síðari hluta þess árs sem þau taka fyrst sæti í sveitarstjórn. Þykir annað fyrirkomulag óeðlilegt enda er kostnaður stjórnmálasamtaka á sveitarstjórnarstigi jafnan mestur á kosningaári.

Breytingartillagan hljóðar svo:

Á því ári sem sveitarstjórnarkosningar fara fram skal úthlutun framlaga fara fram á þann hátt að stjórnmálasamtök fái framlög fyrir síðari hluta þess árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum.

 

Allsherjarnefnd Alþingis hefur skilað nefndaráliti þar sem fallist er á þessa breytingartillögu. Verði frumvarpið að lögum má því vænta þess að 5. gr. laganna verði svohljóðandi (viðbætur eru auðgreindar með undirstrikun):

5. gr. Framlög til stjórnmálasamtaka frá sveitarfélögum.
Sveitarfélögum með fleiri en 500 íbúa er skylt, en öðrum sveitarfélögum heimilt, að veita stjórnmálasamtökum, sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum,
árleg fjárframlög til starfsemi sinnar. Ákvörðun um slík framlög tekur sveitarstjórn samhliða samþykkt fjárhagsáætlunar. Fjárhæðinni skal úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er heimilt að setja viðmiðunarreglur til að stuðla að samræmdri framkvæmd á greiðslum framlaga frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka samkvæmt þessari grein. Á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru skal úthlutun framlaga fara fram á þann hátt að stjórnmálasamtök fái framlög fyrir síðari hluta þess árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum.

Önnur umræða um frumvarpið hefur farið fram á Alþingi og má vænta þess að það verði að lögum á næstu dögum.

Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica