Umsögn sambandsins um frumvarp til laga um opinber innkaup
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent fjármálaráðuneytinu umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup.
Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2007/66/EB (sk. Remedies Directive), sem kveður á um skyldu aðildarríkja til að koma á fót skilvirkri og skjótri kærumálsmeðferð á sviði opinberra innkaupa og tryggja jafnræði bjóðenda.
Í umsögn sambandsins er lýst stuðningi við það meginmarkmið frumvarpsins að tryggja að ákvæði laga um opinber innkaup verði virt og koma í veg fyrir að farið sé á svig við innkaupareglur og góða stjórnsýsluhætti við framkvæmd innkaupa. Sambandið telur hins vegar að tillögur um þessi atriði í fyrirliggjandi frumvarpi gangi mjög langt og í sumum tilvikum langt umfram það sem krafist er af aðildarríkjum í áðurnefndri tilskipun. Með frumvarpinu sé staða hinna opinberu kaupenda í útboðsferlinu veikt langt umfram það sem eðlilegt getur talist og án þess að séð verði að það leiði til meira réttaröryggis eða aukins jafnræðis. Ljóst virðist að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum getur það leitt til verulegra tafa á opinberum framkvæmdum og haft í för með sér mikinn kostnaðarauka og óhagræði fyrir ríki og sveitarfélög vegna þeirrar miklu réttaróvissu sem stafar af einstökum ákvæðum frumvarpsins.
Sambandið telur ríka ástæðu til þess að kalla eftir ítarlegum rökstuðningi frá ráðuneytinu um ástæður þess að ekki er gerður neinn greinarmunur í frumvarpinu á því hvort innkaup eru á innanlandsmarkaði eða útboðsskyld á EES-svæðinu. Í því samhengi er sérstaklega óskað eftir áliti ráðuneytisins á því hver áhrif frumvarpsins verða fyrir útboðsmál sveitarfélaga.
Með vísan til þeirra athugasemda sem fram koma í umsögninni telur sambandið nauðsynlegt að helstu hagsmunaaðilar verði boðaðir til samráðs um efni frumvarpsins áður en ákvörðun verður tekin um framlagningu þess.

