Fréttir

Sambandið


Fréttir

3.8.2010

Þróunarsjóðir EFTA – Nýr samningur undirritaður

signingÍsland, Liechtenstein og Noregur hafa samið við Evrópusambandið um áframhald Þróunarsjóðs EFTA og Þróunarsjóðs Noregs. Tilgangur sjóðanna er að veita styrki til verkefna sem styðja við félagslega- og efnahagslega uppbyggingu 15 ríkja í Suður- og Austur-Evrópu. Upphæðin sem um ræðir er 1,79 milljarður evra á tímabilinu 2009-2014.

Þróunarsjóð EFTA var komið á fót árið 1994 sem framlagi aðila að EES-samningnum til að auka samleitni í Evrópu. Þessu nýja tímabili fylgir breytt fyrirkomulag styrkja sem hefur ný tækifæri í för með sér fyrir íslensk sveitarfélög. Aukin áhersla er nú lögð á rannsóknir, þróun, nýsköpun og menntun og sérstakir fjármunir eru eyrnamerktir í tvíhliða verkefni þeirra landa sem leggja fé í sjóðinn og styrkþega. Þá hefur fyrirkomulagi styrkjanna einnig verið breytt á þann veg að aðilar í EFTA-EES ríkjunum geta verið í forsvari fyrir verkefni í samstarfi við styrkþega.

Á tímabilinu verður áhersla lögð á styrki til verkefna er tengjast eftirfarandi sviðum:

·         náttúruvernd.

·         aðgerðir vegna loftslagsbreytinga og bindingar kolefnis.

·         nýting endurnýjanlegrar orku og nýsköpun í tengslum við vistvæna framleiðslu.

·         Stuðningur við frjáls félagasamtök og framfarir í tengslum við mannréttindi og félagslega þróun.

·         varðveisla menningarverðmæta.

Þá verða einnig veittir náms- og rannsóknastyrkir

Íslensk sveitarfélög búa yfir þekkingu og reynslu er tengist ofangreindum sviðum og gætu hæglega tekið þátt í verkefnum með sveitarfélögum í styrkþegalöndunum. Sama gildir um fyrirtæki í eigu sveitarfélaga, t.d. hita- og vatnsveitur. Ljóst er að ýmis tækifæri eru fólgin í sjóðunum fyrir íslensk sveitarfélög en norsk sveitarfélög hafa tekið þátt í fjölda uppbyggingarverkefna sem styrkt eru af sjóðum EFTA.

Þróunarsjóðir EFTA

Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica