Viðræðuslit LN og LSS og yfirvofandi verkfallsaðgerðir
Kjaradeilan hefur staðið í eitt ár og á þeim tíma tvisvar verið vísað til sáttameðferðar ríkissáttasemjara. Frá 6. maí hafa verið haldnir 5 árangurslausir samningafundir undir verkstjórn ríkissáttasemjara.
Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að stöðugleikasáttmálanum frá 25. júní 2009 og gildandi kjarasamningar LN eru gerðir á grundvelli hans. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er sömuleiðis aðili að stöðugleikasáttmálanum en hafnaði kjarasamningi sem félagið gerði við LN á grundvelli hans í júlí 2009.
Samhliða gerð stöðugleikasáttmálans náðu aðilar vinnumarkaðarins sátt um hækkun dagvinnulauna undir kr. 200.000.- á mánuði. Meðaldagvinnulaun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eru kr. 252.000.- á mánuði og meðalheildarlaunin eru kr. 470.000.- á mánuði. Laun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eru því talsvert yfir þeim viðmiðunarmörkum sem aðilar vinnumarkaðarins settu með stöðugleikasáttmálanum um hækkun lægstu launa.
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lagði fram kröfugerð félagsins á fundi hjá embætti ríkissáttasemjara 19. maí 2010.
Samninganefnd LN hefur kostnaðarmetið kröfur félagsins. Kostnaðarauki sveitarfélaganna af henni, mælist í tugum prósenta.
Tilboð LN til LSS þann 15. júlí 2010 hljóðaði upp á 1,4% meðalhækkun dagvinnulauna.
Þeir kjarasamningar sem LN hefur gert á grundvelli stöðugleikasáttmálans renna út í lok nóvember 2010. Fyrr en viðræður hefjast um endurnýjun þeirra samninga, mun nefndin ekki breyta samningastefnu sinni.
Þann 5. júlí sl. boðaði Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna verkfall þeirra sem eru í aðalstarfi hjá sveitarfélögum, sem Launanefnd sveitarfélaga fer með samningsumboð fyrir. Fyrstu verkfallsaðgerðir hefjast þann 23. júlí.
