Fréttir

Sambandið


Fréttir
  • reykholahreppur

24.6.2010

Kosningar endurteknar í Reykhólahreppi

Úrskurðarnefnd sem skipuð var til þess að fjalla um kærumál vegna kosninganna í Reykhólahreppi þann 29. maí hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær skuli ógiltar og kosið verði til hreppsnefndar á nýjan leik. Fráfarandi hreppsnefnd mun starfa uns nýjar kosningar hafa farið fram.
Nýjar kosningar fara fram laugardaginn 24. júlí 2010. Kjörstaður hefur verið ákveðinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Maríutröð 5 a, Reykhólum. Þetta kemur fram í auglýsingu frá hreppsnefnd og kjörstjórn Reykhólahrepps. Sérstök athygli skal vakin á því, að kosningarnar að þessu sinni verða ekki í Bjarkalundi eins og verið hefur.

Úrskurðurinn í heild

Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica