Fyrsti fundur EES EFTA sveitarstjórnarvettvangs verður haldinn í dag
Við gerð EES-samningsins gerðu menn sér ekki grein fyrir því hversu mikil áhrif hann myndi hafa á sveitarstjórnarstigið í EES-EFTA löndunum. Þar af leiðandi var sveitarstjórnarstiginu ekki tryggð nein aðkoma að EES-samstarfinu. Síðar kom í ljós að um 70% af evrópskri löggjöf sem innleidd er í gegnum EES-samninginn hefur áhrif á sveitarfélög, auk þess sem samningurinn tryggir þeim aðgang að fjölmörgum evrópskum samstarfsáætlunum. Sveitarstjórnarstigið hefur því mikilla hagsmuna að gæta í EES-samstarfinu og í nokkur ár hafa íslenska og norska sveitarfélagasambandið beitt sér fyrir því að geta tengst því og sveitarstjórnarvettvangi ESB sem er Héraðsnefndin (Committee of the Regions). Það eru því tímamót í dag, 22. júní, þegar stofnfundur sveitarstjórnarvettvangs EFTA verður settur kl. 14:15 í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30.
Í vettvanginum sitja sex íslenskir og sex norskir sveitarstjórnarmenn, ásamt varamönnum en þegar fram líða stundir er einnig gert ráð fyrir þátttöku Liechtenstein. Íslenskir fulltrúar eru tilnefndir af landshlutasamtökum sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir a.m.k. einum fundi á ári og að formennska skiptist reglulega á milli þátttökuríkja.
Samþykktir EFTA um stofnun sveitarstjórnarvettvangsins fela í sér mikilvæga viðurkenningu á sveitarstjórnarstiginu sem hagsmunaaðila í EFTA/EES-samstarfinu. Vettvangurinn mun tryggja samráð þegar rætt er um að hvernig fella beri gerðir sem snerta sveitarstjórnarmál að EES-samningnum, stuðla að auknu samstarfi á sveitarstjórnarstigi milli þátttökulanda og gera sveitarstjórnarfólki í kleift að skiptast á skoðunum við kollega sína í Héraðanefnd ESB. Þá eru vonir bundnar við það að vettvangurinn verði til þess að auka þátttöku íslenskra sveitarfélaga í evrópskum samstarfsverkefnum og verkefnum sem styrkt eru af þróunarsjóði EFTA.
