Fréttir

Sambandið


Fréttir

14.6.2010

Sveitarfélög ræða vinnuáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir 2010

corÍ dag boðaði Héraðanefnd ESB til fundar þar sem sveitarfélögum og héruðum og fulltrúum nefndarinnar gafst kostur á að ræða vinnuáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir 2010 og koma athugasemdum sínum á framfæri við framkvæmdastjórnina. Vinnuáætluninni er ætlað að leggja línurnar fyrir starfið í ár og á komandi misserum; undirstaðan er tíu ára áætlun sambandsins Europe 2020 sem samþykkt verður formlega í júní.

Vinnuáætlunin leggur megináherslu á aðgerðir til að bregðast við efnahagsvandanum en byggir að auki á þremur þemum til viðbótar sem hverfast um réttindi og velferð borgaranna, utanríkismálastefnu, og nútímavæðingu stofnana og starfs sambandsins. Áætluninni fylgir listi yfir aðgerðir sem framkvæmdastjórnin hyggst grípa til á árinu og næstu misseri.

Á fundinum í Héraðanefndinni komu fram ólík sjónarmið. Einkum var rætt um Europe 2020 og  það gagnrýnt hversu hlutverk sveitarfélaga við samningu og framkvæmd áætlunarinnar er takmarkað. Þá var m.a. rætt um sáttmála borgarstjóra um takmörkun losunar gróðurhúsalofttegunda (e. Covenant of Mayors), byggðastefnu ESB og einföldun regluverks sambandsins ásamt góðum stjórnarháttum.

Hér að neðan er að finna helstu svið vinnuáætlunarinnar sem snerta mögulega sveitarfélög á Íslandi.  

Samkeppnismál og opinber innkaup

Endurskoðun regluverks opinber innkaup er forgangsmál fyrir sveitarfélög í Evrópu. Framkvæmdastjórnin hyggst birta tilmæli um túlkun gildandi reglna ESB um opinber innkaup til að stuðla að nýsköpun og umhverfisvænum og félagslega ábyrgum innkaupum, ásamt skýringum um hvað telst til bindandi löggjafar á þessu sviði og hvaða svigrúm aðildarríki hafa innan reglnanna. 

Í lok árs verður birt hvítbók um niðurstöður samráðsferlis um stafræn innkaup (e-procurement).

Framkvæmdastjórnin hyggst greina stöðu innri markaðarins á grundvelli s.k. Monti-skýrslu og einfalda regluverk og stjórnsýslu í tengslum við hann. Ætlunin er einnig að skýra regluverk um sérleyfissamninga.

Almannaþjónusta (e. services of general interest)

Regluverkið um almannaþjónustu frá 2005 rennur sitt skeið árið 2011. Framkvæmdastjórnin hyggst vinna skýrslu um hvernig til hefur tekist sem síðan verður nýtt til þess að þróa gæðakerfi (e. quality framework) fyrir almannaþjónustu.

Vinnumarkaður og  aðgerðir til að koma í veg fyrir félagslega einangrun

Framkvæmdastjórnin hyggst grípa til aðgerða (An Agenda for New Skills and Jobs) til að nútímavæða vinnumarkaðinn, auka hreyfanleika vinnuafls og stuðla að endurmenntun starfsfólks með það að markmiði að auka atvinnuþátttöku og stuðla að jafnvægi eftirspurnar og framboðs á vinnumarkaði.

Í kjölfar ákvörðunar ráðsins um að endurskoða tilskipun um rammasamning um foreldraorlof hefur framkvæmdastjórnin ákveðið að endurbæta regluverk um samræmingu fjölskyldu-og atvinnulífs. Auk foreldraorlofstilskipunarinnar verður endurskoðun tilskipunar um þarfir nýbakaðra eða verðandi mæðra haldið áfram en jafnframt verður gerð kostnaðargreining árið 2010 til að meta áhrif þess ef komið yrði á feðraorlofi.

Vinnutímatilskipunin verður endurskoðuð með megináherslu á breytingar tengdar lengd vinnuviku og staðarvöktum. Tilskipunin verður endurskoðuð á grundvelli samráðs við hagsmunaðila og matsskýrslu sem framkvæmdastjórnin vinnur nú að. Gert er ráð fyrir frumvarpi í lok árs sem byggir á þörfum launþega, atvinnurekenda, almannaþjónustu og neytenda.

Barátta gegn fátækt er eitt leiðarhnoða nýrrar tíu ára áætlunar ESB en talið er að um 17% Evrópubúa búi við kjör sem eru undir fátæktarmörkum. Árið 2010 er helgað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun en framkvæmdastjórnin hyggst einnig beita sér fyrir stofnun sérstaks vettvangs til að berjast gegn fátækt, einkum  til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt ungs fólks.

Framkvæmdastjórnin mun leggja fram tillögur um skýringu tilskipunar um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu. Tilskipunin hefur verið umdeild í kjölfar dóma Evrópudómstólsins, einkum Viking, Laval og Ruffert málanna og deilna t.d. í Lindsay olíuvinnslunni í Bretlandi í fyrra. Framkvæmdastjórnin hyggst skýra og styrkja framkvæmd tilskipunarinnar til hægðarauka fyrir stjórnvöld, atvinnulífið og launþega.

Framkvæmdastjórnin hyggst birta grænbók um lífeyri til að leita leiða til að tryggja sjálfbærni sjóða og viðunandi lífskjör lífeyrisþega í ljósi breyttrar aldurssamsetningar,aukins færanleika fólks og slakrar stöðu fjármálamarkaða. Þá er ætlunin einnig að stuðla að aukinni samræmingu lífeyrisréttinda innan ESB.

Lögð verður fram áætlun um réttindi fatlaðs fólks 2010-2020 sem miðar að því að uppræta mismunun vegna fötlunar og að tryggja full mannréttindi fatlaðs fólks.

Loftslagsbreytingar

Umhverfismál skipa mikilvægan sess í áætlun framkvæmdastjórnarinnar. Samkvæmt Europe 2020 er markmiðið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 20% en framkvæmdastjórnin hyggst láta greina hvaða aðgerða er þörf til að losun verði minnkuð um 30% . Ef útkoma greiningar er jákvæð mun framkvæmdastjórnin leggja til að markmiði verði breytt úr 20% í 30%. Lögð verður fram áætlun um samþættingu umhverfissjónarmiða varðandi takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda í stefnumörkun ESB á öllum sviðum og vegvísir um kolefnissnautt ESB hagkerfi árið 2050.

Orkumál

Framkvæmdastjórnin mun leggja fram tillögu að nýrri áætlun um bætta orkunýtingu og hvernig ná má markmiðum Europe 2020, einkum í byggingaframkvæmdum, almannaveitum og á sviði samgangna, og e.t.v. lagafrumvörp, ef við á, t.d. um endurskoðun tilskipunar um orkunýtni og orkuþjónustu.  Lögð verður fram aðgerðaáætlun um orkumál 2011-2020 og vegvísir fyrir kolefnissnautt orkukerfi fyrir 2050. Þá verður birt skýrsla um stöðu smart grids  og lagafrumvarp um sama efni.

Samgöngur

Gefin verður út hvítbók um samgönguáætlun til 2020 þar sem tekið verður m.a. á regluverki innri markaðarins, kolefnissnauðum samgöngum, tækni fyrir „hreinar“ samgöngur, stöðlum og  markaðsaðgerðum. Hvítbókin mun setja fram tillögur til að unnt verði að ná markmiðum um eitt samgöngusvæði í ESB og markmiðum Europe 2020.

Umhverfis- og úrgangsmál

Í lok árs 2012 verða lögð fram drög að tilskipun um úrgangsmál sem ætlað er að einfalda regluverk ESB á þessu sviði og reglugerð um tölfræði um úrgangsmál verður endurskoðuð 2010.  Þá verða sett fram stefnumið um aðgerðir til að tryggja líffræðilegan fjölbreytileika og aðgerðaáætlun til að koma á sjálfbæru, lífrænu hagkerfi sem byggir á nýsköpun.

Menntun

Menntun er einn af hornsteinum Europe 2020, annars vegar að því er lýtur að menntun til að koma til móts við breyttar þarfir á vinnumarkaði og hins vegar er lögð áhersla á ungt fólk og menntun ungmenna. Áætlun um nýja hæfni fyrir ný störf er ætlað að auka nýsköpun, tækniframfarir og rannsóknir og skapa „ græn“ sérfræðistörf.

Þá er lög áhersla á að nota sjóði sambandsins til þess að stuðla að fleiri tækifærum fyrir ungmenni á vinnumarkaði. Áætluninni Youth on the Move  er m.a. ætlað að minnka brottfall úr skólum, styrkja verkmenntun, auka tungumálakunnáttu og koma á stöðluðu mati á menntun og reynslu.

 

Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica