Aldur frambjóðenda
Nú þegar aðeins tveir dagar eru til kjördags í sveitarstjórnarkosningum er fróðlegt að rýna í aldur frambjóðenda.
Eins og áður hefur komið fram er bundin listakosning í 59 sveitarfélögum, þar af var sjálfkjörið í 4 sveitarfélögum þar sem aðeins einn listi kom fram í þeim. Samtals eru boðnir fram 185 listar með 2.846 frambjóðendum.
Meðalaldur þessara tæplega 3.000 frambjóðenda er 44,2 ár en ef aðeins eru teknir frambjóðendur í fyrsta sæti er meðalaldur þeirra 45,6 ár. Yngsti frambjóðandinn er 18 ára og sá elsti 92 ára.
Frambjóðendur skiptast þannig í aldurshópa:
| Aldurshópar |
Fjöldi |
Hlutfall |
| Yngri en 20 ára |
56 |
1,97% |
| 20 til 29 ára |
350 |
12,30% |
| 30 til 39 ára |
660 |
23,19% |
| 40 til 49 ára |
847 |
29,76% |
| 50 til 59 ára |
574 |
20,17% |
| 60 til 69 ára |
236 |
8,29% |
| 70 til 79 ára |
95 |
3,34% |
| 80 ára og eldri |
28 |
0,98% |
| Samtals |
2.846 |
100,00% |

