Fréttir

Sambandið


Fréttir
  • mappa

14.5.2010

Fjórar umsagnir um þingmál

Lögfræðisvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér umsagnir um fjögur þingmál. Um er að ræða umsagnir um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum, frumvarp til lögreglulaga og frumvarp um framkvæmdavald ríkisins, frumvarp til laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga og þingsályktunartillögu um notendastýrða persónulega aðstoð.

Í umsögn sambandsins um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum segir m.a. að sambandið telji leita leiða til að draga úr réttaróvissu við framkvæmd umhverfismats og setja skýrar reglur um málsmeðferð frekar en að fara þá leið að lengja úrskurðarfrest ráðuneytisins líkt og lagt er til í frumvarpinu.

Í umsögn sambandsins um frumvarp til laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga segir m.a. að sambandið hafi átt fulltrúa í starfshópi sem iðnaðarráðherra skipaði árið 2008 til að meta heildarávinning þess fyrir ríki og sveitarfélög að bjóða fjárfestum ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Það er álit sambandsins að setning almennra laga um slíkar ívilnanir sé framfaraskref og gerir sambandið einungis óverulegar athugasemdir við efni frumvarpsins.

Í umsögn sambandsins um frumvarp til lögreglulaga og frumvarp um framkvæmdavald ríkisins í héraði segir m.a. að sérstök áhersla sé lögð á það af hálfu sveitarfélaga að ekki verið snúið til baka af þeirri braut sem dóms- og mannréttindaráðuneytið hefur beitt sér fyrir að færa stjórnsýsluverkefni til sýslumannsembætta með það að markmiði að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni. Í því sambandi ítrekar sambandið mikilvægi þess að á landsbyggðinni bjóðist áfram störf fyrir fólk með háskólamentun.

Í umsögn um þingsályktunartillögu um notendasýrða persónulega aðstoð segir m.a. að þær hugmyndir sem eru tilefni tillögunnar hafi verið til umræðu að undanförnu, m.a. á vettvangi hagsmunasamtaka fatlaðra. Er það afstaða sambandsins að ekki sé tímabært að gera breytingar á lögum í þá veru að notendastýrð persónuleg aðstoð verði meginregla og fyrsti valkostur í öllu þjónustukerfi fatlaðra. Áríðandi sé að væntingar í tengslum við yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna séu byggðar á raunsæi, vönguðum vinnubrögðum og þeim ramma sem verkefninu er settur, m.e. með yfirlýsingum stjórvalda. Ástæða er til þess að huga að þessum atriðum við meðferð þeirrar tillögu sem hér liggur fyrir.


Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica