Fréttir

Sambandið


Fréttir
  • Gata í Kópavogi

4.5.2010

Athugasemdir við nýja vegaskrá

Samband íslenskra sveitarfélaga sendi samgönguráðherra bréf fyrir síðustu áramót þar sem gerð er athugasemd við nýja vegaskrá sem tók gildi um áramót. Í bréfinu segir m.a. að hin nýja vegaskrá feli í sér mjög íþyngjandi breytingar fyrir sveitarfélögin nema þeim verði bættur aukinn kostnaður við veghald með framlögum úr ríkissjóði. Fyrir liggur að með vegaskránni færast rúmlega 200 km af götum í eða við þéttbýli sem áður töldust þjóðvegir í þéttbýli yfir á forræði sveitarfélaga. Ekkert liggur fyrir um hvort tekjustofnar flytjist til sveitarfélaga til að mæta þessum nýja kostnaði. Önnur mikilvæg breyting er að rúmlega 1.000 km af tengivegum færast í flokk héraðsvega, sem áður hétu safnvegir. Vegagerðin hefur greitt fyrir mokstur þessara vega að hálfu á móti sveitarfélögum. Við breytinguna færist kostnaður við snjómokstur alveg yfir á sveitarfélögin. Heildarkostnaður sveitarfélaga vegna þessara breytinga hefur ekki verið kostnaðarmetinn. Ljóst má þó vera að hann verður verulegur.

Í bréfinu er óskað eftir því að ráðherra fundi sem fyrst um málið með fulltrúum sambandsins og geri þá m.a. grein fyrir því hvort ráðuneytið telji að þær breytingar sem gerðar hafa verið á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga með vegalögum og nýrri vegaskrá samræmist þeim reglum um samskipti ríkis og sveitarfélaga sem koma fram í 101. gr. sveitarstjórnarlaga, samkomulagi um kostnaðarmat lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla frá 30. desember 2005 og 3. gr. samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga frá 20. febrúar 2006.

Tekið skal fram að sambandið telur eðlilegt að gildistöku nýrrar vegaskrár verði frestað þar til ofangreindur fundur hefur farið fram nema fyrir liggi yfirlýsing frá ráðherra um að sá aukni kostnaður sem fyrirsjáanlega mun falla á sveitarfélögin verði að fullu fjármagnaður af ríkissjóði. Óskað er eftir því að afstaða ráðherra til þeirrar beiðnar verði tilkynnt sambandinu án tafar.

Vegaskráin á vef Vegagerðarinnar

Bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22. maí 2009 vegna frumvarps til vegalaga

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga leggur áherslu á við sveitarfélög sem ekki telja að örugg og fullnægjandi fjármögnun liggi fyrir, að þau gangi ekki frá samningum við Vegagerðina um ábyrgð þeirra á viðhaldi vega, skv. þeirri vegaskrá sem nú liggur fyrir. Sambandið hefur komið þeirri kröfu á framfæri við samgönguráðherra og Vegagerðina að tryggja verði fjármögnun af hálfu ríkisins til sveitarfélaga vegna þeirra auknu skyldna sem settar eru á sveitarfélögin með nýjum vegalögum nr. 80/2007 sem tóku gildi 1. janúar 2008. Þessi afstaða sambandsins hefur ítrekað komið fram, m.a. í erindi til samgönguráðherra, dags. 30. des. 2008, sem ekki enn hefur verið svarað formlega, að áður en vegaskráin taki gildi liggi fyrir yfirlýsing frá ráðherra um að sá aukni kostnaður sem fyrirsjáanlega mun falla á sveitarfélögin verði að fullu fjármagnaður af ríkissjóði.


Senda grein



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica