Fréttir
Umsagnir sambandsins um þingmál
Undanfarnar vikur hefur sambandið skilað inn umsögnum um lagafrumvörp sem lögð hafa verið fram á Alþingi. Meðal annars um breytingar á grunnskólalögum, náttúruverndarlögum og um skýrslu forsætisnefndar Alþingis um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá.
Allar umsagnirnar er hægt að nálgast á síðu 140. löggjafarþings hér á vef sambandsins og eru sveitarstjórnarmenn hvattir til að kynna sér þær sem og þær breytingar sem lagafrumvörpin fela í sér.

