Fréttir

Sambandið

Skoða eftir ártali


SIS_Felagsthjonusta_760x640

22.5.2012 : Samvinna skóla og barnaverndar

Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um Samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:00-16:15. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.

Lesa meira
 
Rett_Blatt_Stort_a_vefinn

15.5.2012 : Starf bókara og launafulltrúa

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar starf bókara og launafulltrúa á rekstrar- og útgáfusviði sambandsins. Bókari og launafulltrúi sér um alla bókhalds- og launavinnslu hjá sambandinu og samstarfsstofnunum þess, skv. nánari starfslýsingu, aðstoðar við áætlanagerð og reikningsskil og sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum þegar þörf er á.

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

11.5.2012 : Úthlutað úr Sprotasjóði

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013 og hafa allir styrkþegar fengið formlegt svarbréf.  Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Lesa meira
 
Fyrirspurn

11.5.2012 : Könnun meðal skólastjóra grunnskóla á dagsetningum samræmdra könnunarprófa

Á undanförnum árum hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti og Námsmatsstofnun, sem sér um framkvæmd prófanna, fengið nokkrar kvartanir frá skólastjórum um að dagsetningar samræmdra könnunarprófa í september hafi rekist á við aðra viðburði í viðkomandi sveitarfélagi og þá fyrst og fremst réttir í dreifbýli.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

4.5.2012 : Orlof húsmæðra 2012

Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarráðuneytinu skal framlag sveitarfélaga til orlofsnefnda á hverju svæði vera 95,52 krónur fyrir hvern íbúa sveitarfélagsins. Framlag þetta skal greiða orlofsnefnd viðkomandi orlofssvæðis fyrir 15. maí nk.  sbr. 5. gr. laga nr. 53/1972. Lesa meira
 
Raflínur

3.5.2012 : Umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál, að lokinni umfjöllun stjórnar sambandsins um málið.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

3.5.2012 : Erindi frá samráðsfundi Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga var að þessu sinni haldinn á Hellu dagana 26.-27. apríl 2012. Fundurinn var ágætlega sóttur af hálfu sveitarfélaga enda var dagskráin fjölbreytt og áhugaverð. Einnig var hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

2.5.2012 : Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Velferðarnefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun fatlaðs fólks. Sambandið hefur látið í té umsögn [linkur] sína um málið auk þess sem fjölmörg sveitarfélög hafa lýst sjónarmiðum sínum.

Lesa meira
 
undirritun-samkomulags-um-samstarf

26.4.2012 : Samkomulag um eflingu grunnmenntunar í tækni- og raunvísindum

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök iðnaðarins hafa gert með sér samkomulag um eflingu menntunar í tækni og raunvísindum á miðstigi grunnskóla.  Samstarfsaðilar eru Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Námsmatsstofnun. Þessir aðilar munu leggja fram fé og mannafla til að vinna greiningu á núverandi stöðu menntunar í tækni- og raunvísindum hér á landi og í samanburði við önnur lönd. Lesa meira
 
Hnotturinn_vef

26.4.2012 : Stjórnskipulag grunnskóla í Englandi

Stjórnskipulag grunnskóla í Englandi hefur eins og á Íslandi verið að breytast undanfarin ár m.t.t. aukinnar valddreifingar og þar með aukinnar ábyrgðar skólanefnda/fræðslustjórnenda í sveitarfélögum (e. School governance) á framkvæmd skólastarfs.  Niðurstöður úr ytra mati á skólum í Englandi hafa leitt í ljós mikilvægi skólanefnda/fræðslustjórnenda í að stuðla að auknum gæðum í skólastarfi og í nýlegri skýrslu sem er aðgengileg á neðangreindri slóð, eru dregnir fram lykilþættir sem einkenna skólanefndir/fræðslustjórnendur sem hafa náð afburða árangri.

Lesa meira
 
mappa

26.4.2012 : Leiðbeiningar og verklagsreglur vegna reglugerðar um ábyrgð og skyldur

Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040 frá 2011 kallar á leiðbeiningar og verklagsreglur. Á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa þær verið gerðar aðgengilegar á einum stað. Frekara stuðningsefni verður bætt við síðuna eftir því sem ástæða þykir til.

Lesa meira
 
HAlogo

17.4.2012 : Ráðstefnan íslensk þjóðfélagsfræði 2012

Ráðstefnan Íslensk þjóðfélagsfræði 2012 verður haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 20. og laugardaginn 21. apríl n.k. Í ár verður ráðstefnan haldin í sjötta sinn og mun hún verða tileinkuð 25 ára afmæli háskólans. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.

Lesa meira
 
mappa

16.4.2012 : Umsagnir um tvö lagafrumvörp

Lögfræði- og velferðarsvið sambandsins hefur sent frá sér umsagnir um tvö lagafrumvörp sem nú liggja frammi á Alþingi. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, 598. mál og frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, 510. mál.

Lesa meira
 
Leidin_til_Rio

13.4.2012 : Leiðin til Ríó

Mánudaginn 16. apríl verður haldin málsstofa í Odda 101 um ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldin verður í Rio D Janeiro í júní 2012. Að málstofunni mun Lúðvík E. Gústafsson, verkefnisstjóri á sviði umhverfismála hjá sambandinu, m.a. flytja erindi en málstofan er haldin í samstarfi nokkurra aðila.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

10.4.2012 : Breyting á skipulagslögum og fundargerð skipulagsmálanefndar sambandsins

Alþingi hefur samþykkt breytingu á skipulagslögum sem felur í sér að umhverfisráðherra hefur sex vikna frest frá því að tillaga Skipulagsstofnunar berst til þess að synja, fresta eða staðfesta aðalskipulagstillögu. Áður var enginn frestur tilgreindur í lögunum og hefur langur afgreiðslutími ráðuneytisins við afgreiðslu aðalskipulagstillagna sveitarfélaga sætt mikilli gagnrýni, bæði af hálfu sveitarstjórna og Alþingis.

Lesa meira
 
lydraedisrit_forsida

10.4.2012 : Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum - leiðbeiningarrit

Samband íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands hafa gefið út leiðbeiningaritið Leiðsögn um lýðræði í sveitarfélögum fyrir sveitarfélög, samtök og annað áhugafólk um íbúalýðræði.

Lesa meira
 
SIS_Skipulags_Byggdamal_760x640

4.4.2012 : Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sambandsins

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna verður haldinn 26. og 27. apríl 2012 á Hellu, Rangárþingi ytra. Fundurinn er ætlaður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaganna í skipulagsmálum.

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

2.4.2012 : Drög að reglugerð um fjármálareglur sveitarfélaga til umsagnar

Undanfarna mánuði hafa fulltrúar sambandsins og innanríkisráðuneytis unnið saman að gerð reglugerðar um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og fjárhagsleg viðmið, á grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í þeirri vinnu hefur verið leitast við að taka tillit til ýmissa ábendinga og athugasemda sem sveitarstjórnarmenn gerðu við við umfjöllun um fjármálareglur í sveitarstjórnarlagafrumvarpinu.

Lesa meira
 
Skjaldarmerki

2.4.2012 : Ný þingmál sem snerta sveitarfélögin

Eins og komið hefur fram í fréttum var fjöldi nýrra frumvarpa lagður fram á Alþingi áður en hlé var gert á þingfundum fyrir páska. Allmörg þessara mála snerta sveitarfélögin með ýmsum hætti og væntir sambandið þess að veita umsagnir um flest þessara mála.

Lesa meira
 
Ungt-folk

29.3.2012 : Ungmennaráð sveitarfélaga

Í æskulýðslögum nr. 70/2007 er kveðið á um að sveitarfélög skuli hlutast til um að stofna ungmennaráð og eru þau hugsuð til að vera sveitarstjórnum til rágjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi og til að kynna lýðræðisleg vinnubrögð fyrir ungu fólki. Frá því að lögin tóku gildi hafa mörg sveitarfélög stofnsett ungmennaráð og í dag er 31 sveitarfélag með ungmennaráð.

Lesa meira
 
Ungt-folk

28.3.2012 : Átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu velferðarráðherra um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur næsta sumar. Áætlað er að verja allt að 383 milljónum króna í heild til verkefnisins. Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög.

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

28.3.2012 : Upplýsingar um afsláttarreglur fasteignaskatta hjá elli- og örorkulífeyrisþegum

Hag- og upplýsingadeild hefur tekið saman upplýsingar um afsláttarreglur fasteignaskatta hjá elli- og örorkulífeyrisþegum fyrir árið 2012. Teknar voru saman upplýsingar frá sveitarfélögum sem voru með fleiri en 300 íbúa. Samtals voru þetta 58 sveitarfélög.

Lesa meira
 
Halldor

23.3.2012 : Mál tónlistarskólanna í óásættanlegri stöðu

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fór hörðum orðum um þá stöðu sem tónlistarskólarnir eru í eftir samkomulag sem gert var milli ríkis og sveitarfélaga á vordögum 2011. Í samkomulaginu var gert ráð fyrir að ríkið  tæki að sér að standa undir útgjöldum vegna framhaldsnáms í söng og hljóðfæraleik auk miðstigs í söngnámi. Lesa meira
 
HalldorH

23.3.2012 : Efst á baugi - XXVI. landsþing sambandsins sett

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti XXVI. landsþing sambandsins í morgun, en landsþingið fer fram á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Í ræðu sinni fór Halldór yfir þau mál sem efst eru á baugi í starfi sambandsins um þessar mundir.

Lesa meira
 
SIS_Umhverfis_taeknimal_760x640

22.3.2012 : Sambandið telur frumvarp til úrgangslaga ekki tilbúið til framlagningar

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent umhverfisráðuneytinu umsögn um frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs, sem umhverfisráðherra hyggst leggja fram á Alþingi á næstunni.Í umsögn sambandsins eru gerðar veigamiklar athugasemdir við fjölmörg atriði í frumvarpinu. Sérstaklega leggur sambandið áherslu á að skilgreina þurfi hlutverk og skyldur sveitarfélaga á fullnægjandi hátt og að hnykkja þurfi á því að hér er um almannaþjónustu að ræða en ekki samkeppnisrekstur.

Lesa meira
 
Rett_Blatt_Stort_a_vefinn

22.3.2012 : Landsþing 2012

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, það XXVI. í röðinni verður haldið að ICELANDAIR HÓTEL REYKJAVÍK NATURA á morgun föstudaginn 23. mars og hefst það kl. 9:30. Skráning landsþingsfulltrúa hefst kl. 8:45. Áréttað er að þingið hefur verið fært yfir á gamla Hótel Lofleiðir.

Lesa meira
 
skipulag_minni

16.3.2012 : Kynningarfundur um notkun byggingaupplýsingalíkana (BIM)

BIM Ísland stendur fyrir kynningarfundi um notkun (BIM) upplýsingalíkana við mannvirkjagerð þann 22. mars 2012 í Laugardalshöll, fundarsal 1 - inngangur A

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

16.3.2012 : Skólaganga fósturbarna og viðurkenning grunnskóla

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur sent út til umsagnar tvenn reglugerðardrög vegna laga um grunnskóla nr. 91/2008. Annars vegar er um að ræða breytingar á reglugerð við 43. gr. laganna um viðurkenningu á grunnskólum sem reknir eru af öðrum aðilum en sveitarfélögum með viðbótum um skólahald samkvæmt erlendri eða alþjóðlegri námskrá og námsskipan, skv. heimild í 46. gr. laganna. Hins vegar er ný reglugerð um skólagöngu fósturbarna í grunnskólum, skv. nýrri heimild í framangreindum lögum.

Lesa meira
 
SIS_Skipulags_Byggdamal_760x640

12.3.2012 : Lýsing landskipulagsstefnu 2013-2024

Skipulagsstofnun hefur tekið saman lýsingu á gerð landsskipulagsstefnu og umhverfismati sbr. reglugerð um landsskipulagsstefnu nr. 1001/2011. Stofnunin auglýsir eftir athugasemdum og  ábendingum við lýsinguna og geta allir sem þess óska komið athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun innan þriggja vikna frá birtingu þessarar auglýsingar.

Lesa meira
 
Engilrad-andarungi

12.3.2012 : Engilráð í alla leikskóla landsins

Fimmtudaginn 8. mars afhenti Halldór Halldórsson formaður sambandsins Sjónarhóli styrk uppá 363 þúsund krónur. Þessa fjármuni fékk sambandið frá Félagi leikskólakennara á degi leikskólans, 6. febrúar sl. Er fjárhæðin afrakstur styrktartónleika sem FL stóð fyrir í sumar í aðdraganda boðaðs verkfalls leikskólakennara. 

Lesa meira
 
VinnandiVegur_heilsida_fbl

8.3.2012 : Atvinnumessa í Laugardalshöll

Atvinnumessa í Laugardagshöll verður haldin í dag, fimmtudaginn 8. mars frá kl. 10-16.
Á messunni verða kynnt um þúsund ný tækifæri í störfum og starfsþjálfun. Ráðgjafar og ráðningarþjónusta
verða til taks allan daginn og leiðbeina atvinnuleitendum um hentug störf, umsóknarferlið og
atvinnuviðtalið. Messan er hluti af átakinu Vinnandi vegur en markmið þess er að skapa 1.500 ný störf
fyrir atvinnuleitendur fyrir lok maí.

Lesa meira
 
SIS_Skipulags_Byggdamal_760x640

7.3.2012 : Lagafrumvarp um breytingar á fasteignagjöldum á hesthús

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp þar sem lagt er til að fasteignagjöld á hesthús verði færð til um flokk sem leiða myndi til lækkunar gjalda. Með lögunum er ákvarðað að hesthús falli undir flokk með íbúðarhúsum og fleiri mannvirkjum.

Lesa meira
 
SIS_Umhverfis_taeknimal_760x640

7.3.2012 : Breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs til umsagnar

Umhverfisráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs. Tillögurnar fela m.a. í sér að umhverfisráðherra gefi út sérstaka landsáætlun um minnkun úrgangs til tólf ára í senn, að auðveldara verði fyrir almenning að skila frá sér flokkuðum úrgangi og að óheimilt verði að taka gjald fyrir móttöku úrgangs á söfnunarstöð. 

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

6.3.2012 : Útkomuspá fyrir árið 2011

Hag- og upplýsingasvið sambandsins hefur tekið saman útkomuspá ársreikninga fyrir árið 2011. Útkomuspáin er meðal annars er sett upp til samanburðar við fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og þriggja ára áætlun.

Lesa meira
 
Leikskolaborn_litil

29.2.2012 : Nýjar viðmiðunarreglur vegna dvalar barna á leikskólum utan lögheimilissveitarfélags

Stjórn sambandsins samþykkti á fundi sínum 24. febrúar sl. nýjar viðmiðunarreglur vegna dvalar barna á leikskólum utan lögheimilissveitarfélags. Um er að ræða reglur sem  gilda eiga út árið 2012. Sérstök athygli er vakin á þeirri breytingu að nú er gjaldskrá viðmiðunarreglna miðuð við meðaltalsraunkostnað sveitarfélaga við leikskóladvöl barna.

Lesa meira
 
skyrsla feb 2012

28.2.2012 : Frá Brussel til Breiðdalshrepps, upplýsingarit Brussel-skrifstofu er komið út

Frá Bussel til Breiðdalshrepps febrúar 2012, upplýsingarit um helstu nýmæli hjá ESB og EFTA sem snerta sveitarfélög,  er nú komið út. Í ritinu má nálgast upplýsingar um ýmis svið, s.s. um  félags- og starfsmannamál, opinber innkaup, umhverfis-, loftslags-, og orkumál og  stefnumótun, stofnanauppbyggingu  og byggðastefnu ESB.

Lesa meira
 
Grunnskoli

28.2.2012 : Kennarar með kennsluréttindi hafa aldrei verið fleiri

Hagstofa Íslands birti í morgun niðurstöður mælinga er varða starfsfólk í grunnskólum. Í niðurstöðum mælinganna má sjá að hlutfall kennara með kennsluréttindi hefur aldrei verið hærra en það hefur aukist frá því að vera 80-87% árin 1998-2008 í að að vera 95,5% haustið 2011.

Lesa meira
 
WWW_litid

24.2.2012 : Nýr vefur um vistvæn innkaup í loftið

Nýr og endurbættur vefur vistvænna innkaupa  www.vinn.is  hefur verið opnaður en á honum má finna upplýsingar og hagnýt ráð um það hvernig standa má að vistvænum innkaupum á sem hagkvæmastan hátt. Vefurinn var opnaður í upprunalegri mynd árið 2008.

Lesa meira
 
Escut_Jekabpils

22.2.2012 : Borgin Jekabpils í Lettlandi leitar að samstarfsaðila

Borgin Jekabpils í Lettlandi leitar að samstarfsaðila til að taka þátt í verkefni sem fellur undir Nordic-Baltic Mobility and Network Programme for Public Administration

Lesa meira
 
Limbazi_gerb

22.2.2012 : Sveitarfélagið Limbazi í Lettlandi leitar að íslenskum samstarfsaðila

Sveitarfélagið Limbazi í Lettlandi leitar að íslenskum samstarfsaðila til að taka þátt í verkefni sem fellur undir Nordic-Baltic Mobility and Network Programme for Public Administration.

Lesa meira
 
vinnandiVegur_merki

21.2.2012 : Atvinnuátakið VINNANDI VEGUR

VINNANDI VEGUR er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Ávinningur allra er hafður að leiðarljósi: Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að nýráða starfsfólk er atvinnuleitendum gefið tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu. Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að yfirlýsingu sem undirrituð var um átakið þann 16. desember 2011, sbr. frétt á heimasíðu sambandsins.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_190x100

21.2.2012 : Félagsvísar kynntir í fyrsta sinn á Íslandi – mikilvægt stjórntæki

Velferðarráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í liðinni viku nýja skýrslu um félagsvísa sem stefnt er að því að safna og birta reglulega. Félagsvísarnir eiga að auðvelda aðgengi stjórnvalda og hagsmunaaðila að skilgreindum upplýsingum sem varpa ljósi á þjóðfélagsástandið og styðja við stefnumótun stjórnvalda.

Lesa meira
 
SIS_Lydraedi_mannrettindi_190x100

20.2.2012 : Ráðstefna um þátttöku í evrópsku samstarfi um rannsóknir og stefnu í byggðaþróun

Byggðastofnun gengst fyrir ráðstefnu um þátttöku Íslendinga í samstarfi um rannsóknir og stefnumótun í byggðaþróun í Háskólanum í Reykjavík 12. mars nk. Ráðstefnan er kynning á ESPON áætlun ESB um byggðarannsóknir þar sem Ísland tekur þátt ásamt Noregi, Sviss og Liechtenstein auk allra aðildarlanda ESB.

Lesa meira
 
SIS_Althjodamal_190x100

20.2.2012 : Evrópsk verðlaun til strandbæja

Evrópuráðið ætlar að veita strandbæjum sem hafa staðið sig vel í uppbyggingu sérstaka viðurkenningu („Best Practice Award Programme for European Coastal Towns“).

Lesa meira
 
kona2

14.2.2012 : Breytt lýðfræðileg samsetning Evrópu, málefni eldra fólks og samstaða kynslóðanna til umræðu í Héraðanefnd ESB

Evrópusambandið hefur tileinkað árið 2012 virkni aldraðra og samstöðu kynslóðanna (e. European Year of Active Ageing and Solidarity Between Generations).

Evrópuárinu er ætlað að vekja þegna ESB til umhugsunar um hvað breytt lýðfræðileg samsetning ESB hefur í för með sér og hvernig best er að bregðast við þeirri staðreynd að fólk verður eldra og er virkt lengur en áður.

Lesa meira
 
NPA 2012

13.2.2012 : Fullt út úr dyrum á ráðstefnu um NPA

Opin ráðstefna var haldin á Hótel Natura, föstudaginn 10. febrúar sl. á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Þar var kynnt hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan var einnig send út á netinu. Fullt var út úr dyrum og voru þátttakendur hátt í 400 manns, þar af fylgdust ríflega 100 manns með í gegnum vefútsendingu frá fundinum.

Lesa meira
 
Hag-1_2012

13.2.2012 : Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga 2012

Fyrsta tölublað fréttabréfs hag- og upplýsingasviðs árið 2012 er nú komið út. Fjallað er um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga vegna ársins 2012 og birtar upplýsingar úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2012 (A-hluti) eins og skil þeirra voru í byrjun síðustu viku janúar.

Lesa meira
 
Hjolandi_baejarstjorar

13.2.2012 : Tækifæri í hjólaferðamennsku á Íslandi

Tækifæri í hjólaferðamennsku á Íslandi er heitið á málþingi sem fram fer 24. febrúar nk. fyrir tilstuðlan samstarfshóps um merkingu hjólaleiða á Íslandi. Hvar erum við stödd; hvert stefnum við og hvernig fara menn að í Danmörku og á Bretlandi. Hvað er Euro Velo? Dagskráin er fjölbreytt og vönduð.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

10.2.2012 : Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins


Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem innanríkisráðuneytið heldur í dag í samvinnu við Háskólann á Akureyri verður sent út á netinu. Dagskráin stendur frá kl. 11 til 15.30.

Lesa meira
 
SIS_Kjara_starfsmannamal_760x640

7.2.2012 : Áframhaldandi viðræður við FG um vinnutíma

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum þann 27. janúar sl. að fela samninganefnd sambandsins að gera nýja viðræðuáætlun við Kennarasamband íslands vegna Félags grunnskólakennara, sem miði að því að viðræðum ljúki með undirskrift nýs kjarasamnings aðila eigi síðar en 1. desember 2012.

Lesa meira
 
Formenn-og-born-litil

7.2.2012 : Hátíðahöld víða um land í tilefni dags leikskólans

Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur víða um land í gær, 6. febrúar. Leikskólabörn og starfsmenn leikskólanna gerðu sér dagamun með ýmsum hætti, sem dæmi má nefna að börnin í leikskólanum Undralandi á Flúðum fóru í verslunina á staðnum, sungu og hengdu upp listaverk.

Lesa meira
 
Halldor_Halldorsson

6.2.2012 : Til hamingju með daginn!

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag, 6. febrúar, í fimmta sinn frá því að til hans var stofnað árið 2008. Leikskólar um allt land halda upp á daginn með fjölbreyti­legum hætti að vanda og bjóða aðstandendur leikskólabarna, sveitarstjórnarfólk og aðra áhugasama um leikskólastarfið velkomna.

Lesa meira
 
krakkar-i-skola

27.1.2012 : Samstarfssamningur um rannsóknarverkefni í leikskólum undirritaður

Bæjarstjórarnir í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi  undirrituðu þann 25. janúar samstarfssamning um rannsóknarverkefni í leikskólum. Jóhanna Einarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) undirritaði samninginn fyrir hönd RannUng.

Lesa meira
 
mappa

25.1.2012 : Leiðbeinandi reglur um þrjá þætti í þjónustu við fatlað fólk

Velferðarráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Leiðbeiningarnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu auk styrkja til náms og tækjakaupa fatlaðs fólks.

Lesa meira
 
PPP_PRD_132_3D_people-Puzzle

24.1.2012 : NPA: Hugmyndafræði, framkvæmd, skipulag, samningar og fjármögnun.

Opin ráðstefna á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura föstudaginn 10. febrúar 2012.

Lesa meira
 
skolabragur

24.1.2012 : Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Lesa meira
 
logo-norraena

24.1.2012 : Styrkir til stofnunar tengslaneta við Baltnesku ríkin

Norræna ráðherranefndin styrkir námsferðir starfsmanna ríkis, sveitarfélaga og sveitarfélagasamtaka í norrænu og baltnesku ríkjunum til að kynna sér stjórnsýslu og stofna til gagnkvæmra tengslaneta. Ekki eru styrktar ferðir innan Norðurlandanna, heldur á milli þeirra og baltnesku ríkjanna.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

23.1.2012 : Bæklingur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út bækling um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, en sveitarfélögum er skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. 

Lesa meira
 
pusl

20.1.2012 : Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Föstudaginn 10. febrúar nk. efna Innanríkisráðuneytið og Háskólinn á Akureyri til málþings um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Málþingið fer fram í Háskólanum á Akureyri og hefst kl. 11.00. Meðal frummælenda á þinginu verður Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Lesa meira
 
Nam

20.1.2012 : Viðmið og verklagsreglur unnar á grundvelli reglugerðar um ábyrgð og skyldu

Reglugerð nr. 1040/2011

um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum var gefin út 7. nóvember sl. Gert er ráð fyrir að gefnar séu út verklagsreglur vegna 7.gr. og almenn viðmið vegna 9.gr. og skv. 13. grein er Sambandi íslenskra sveitarfélaga heimilt að taka saman leiðbeiningar.

Lesa meira
 

20.1.2012 : Fundur um atvinnumál fatlaðs fólks

Bein útsending er frá fundi um atvinnumál fatlaðs fólks sem nú er að hefjast á Grand hótel í Reykjavík. Slóðin að útsendingunni er www.ustream.tv/channel/prufusending. Þegar fyrirspurnartími hefst verður hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið ingibjorg@samband.is. Lesa meira
 
Hugmyndir

20.1.2012 : Akureyrarbær með besta sveitarfélagavefinn 2011

Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi í vikunni undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Hlaut vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011 og vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011.

Lesa meira
 
Skolaskyrsla2011

18.1.2012 : Skólaskýrsla 2011 á rafrænu formi

Skólaskýrsla 2011 er komin út á rafrænu formi. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað. Í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2010 og að auki birtar upplýsingar aftur í tímann eins og kostur er.

Lesa meira
 
krakkar-i-skola

18.1.2012 : Tilraunaverkefni um ytra mat á grunnskólum

Ytra mat á leik- og grunnskólum er lögbundið verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og sveitarfélaga. Vorið 2011 lagði faghópur um ytra mat fram tillögu um útfærslu á ytra mati á grunnskólum, sameiginlegu verkefni ráðuneytis og sveitarfélaga.

Lesa meira
 
SIS_Lydraedi_mannrettindi_760x640

16.1.2012 : Hvað er spunnið í opinbera vefi?

Niðurstöður 4. úttektar á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga verðar kynntar og viðurkenningar veittar á hádegisverðafundi á Grand Hótel Reykjavík, 18. janúar, frá kl. 12-14.

Lesa meira
 
Nemendur

10.1.2012 : Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir

Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir. Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.

Lesa meira
 
official-uefa-euro-2012-wallpaper-01-1024x768

6.1.2012 : Evrópumót bæjarstjóra í knattspyrnu í tengslum við EM 2012

Í tengslum við úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í Póllandi og Úkraínu í sumar hafa samtök pólskra og úkranískra borga ákveðið að efna til Evrópumóts bæjarstjóra í knattspyrnu. Mótið fer fram dagana 15. - 20. maí nk. en leikið verður annars vegar í héraðinu Katowice í Póllandi og hins vegar í héraðinu Kyiv í Úkraínu.

Lesa meira
 
SIS_Kjara_starfsmannamal_760x640

4.1.2012 : Eingreiðsla 1. febrúar 2012

Tilkynning til launagreiðenda starfsmanna sveitarfélaga og stofnanna þeirra vegna greiðslu sérstakrar eingreiðslu 1. febrúar 2012

Lesa meira
 
Felagsthjonustuskyrsla

3.1.2012 : Skýrsla  um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011 á rafrænu formi

Félagsþjónustuskýrsla 2011 er nú komin út á rafrænu formi. Í skýrslunni eru í fyrsta sinn dregnar saman og gefnar út svo yfirgripsmiklar upplýsingar um félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið með útgáfu skýrslunnar er að birta tölulegar upplýsingar um þennan mikilvæga málaflokk og gera þær aðgengilegar fyrir sveitarstjórnarmenn, starfsmenn félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra þá sem vilja fylgjast með því hvernig framkvæmd félagsþjónustunnar þróast.

Lesa meira
 
mappa

3.1.2012 : Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 tóku gildi um áramót

Ný sveitarstjórnarlög og tóku þau gildi 1. janúar 2012. Verulegum áfanga er náð með samþykkt laganna en í þeim felst heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998. Lögin fela í sér veigamiklar breytingar á ýmsum atriðum eldri laga. Hér á eftir verður fjallað um helstu áherslubreytingar í lögunum.

Lesa meira
 
Skolaskyrsla2011

2.1.2012 : Skólaskýrsla 2011

Skólaskýrsla 2011 er komin út. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað.

Lesa meira
 

Eldri fréttir




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica