Fréttir

Sambandið


Vinnan-006

31.12.2010 : Áramótakveðja

Stjórn og starfsfólk Sambands íslenskra sveitarfélaga sendir sveitarstjórnarmönnum, starfsmönnum sveitarfélaga og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkar fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

31.12.2010 : Nýjar reglugerðir vegna yfirfærslu á þjónustu við fatlað fólk

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett nýja reglugerð, nr. 1054/2010, um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Nýja reglugerðin tekur gildi á morgun, 1. janúar 2011 og leysir þá af hólmi eldri búsetureglugerð. Lesa meira
 
KAPA_Skolaskyrsla

29.12.2010 : Skólaskýrsla 2010 er komin út á rafrænu formi

Skólaskýrsla 2010 er nú komin út á rafrænu formi. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

27.12.2010 : Hver er ábyrgð sveitarstjórna vegna náttúruhamfara?

Þann 21. október 2010 var haldin ráðstefna í Reykjavík undir þessari yfirskrift. Ráðstefnan var haldin í samvinnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þátttakendur voru um 90.

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

27.12.2010 : Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði 2010 og almenn framlög vegna grunnskóla 2011

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. desember síðastliðinn um endurskoðun og uppgjör  eftirfarandi framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga  á árinu 2010. Þá hefur ráðherra einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. desember síðastliðinn um áætlaða úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2011.

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

22.12.2010 : Útsvarsprósentur 2011

Nú liggja fyrir útsvarsprósentur sveitarfélaga fyrir árið 2011. Meðalútsvarið verður 14,41% í stað 13,12% . Með yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga á næsta ári hækkaði útsvarsheimild sveitarfélaga um 1.2 prósentustig.

Lesa meira
 
SIS_Umhverfis_taeknimal_760x640

21.12.2010 : Tillögur að breytingum á náttúruverndarlögum til umsagnar

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á náttúruverndarlögum er nú opið til umsagnar. Drögin voru unnin af nefnd sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í nóvember 2009 til að vinna að endurskoðun náttúruverndarlaga.

Lesa meira
 
SIS_Kjara_starfsmannamal_760x640

21.12.2010 : Samkomulag um launasetningu félagsmanna SFR

Samband íslenskra sveitarfélaga og  SFR stéttarfélag í almannaþjónustu hafa undirritað samkomulag um launasetningu starfsmanna málefna fatlaðra við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga nú um áramótin.Með samkomulaginu er náð utan um fyrirkomulag launasetningar félagsmanna SFR, sem gildir þar til aðilar hafa lokið gerð kjarasamnings. Hér fyrir neðan má sjá samkomulagið í heild sinni:

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

17.12.2010 : Útsvar mun skiptast milli sveitarfélaga

Meirihluti efnahags- og skattanefnd Alþingis lagt til þá breytingartillögu við frumvarp fjármálaráðherra um skatta og gjöld (313. mál), að lögum um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt í samræmi við tillögu frá nefnd um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga sem tekið var undir í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið.

Lesa meira
 
reykjavik

16.12.2010 : Rafrænt samráð menntaráðs við skólaráðin í borginni

Menntasvið Reykjavíkurborgar innleiddi nýtt vinnulag við gerð starfsáætlunar fyrir árið 2011 sem byggir á aðgerðaáætlun menntaráðs í skólamálum. Menntaráð borgarinnar hefur sömu stöðu og skóla- og fræðslunefndir annarra sveitarfélaga. Voru skólastjórnendur og skólaráð beðin um að kynna sér stefnuþætti menntaráðs í skólamálum og svara nokkrum spurningum þar að lútandi.

Lesa meira
 
2010-11-26-forum-group-256px

14.12.2010 : Annar fundur Sveitarstjórnarvettvangs EFTA haldinn í Brussel

Við gerð EES-samningsins var ekki ljóst hversu mikil áhrif hann myndi hafa á sveitarfélög í EES-EFTA löndunum. Sveitarstjórnarstiginu var því ekki tryggð nein aðkoma að EES-samstarfinu. Síðar kom í ljós að stór hluti af evrópskri löggjöf sem innleidd er í gegnum EES-samninginn hefur áhrif á sveitarfélög, allt að 70% að því er talið er, auk þess sem samningurinn tryggir sveitarfélögum aðgang að fjölmörgum evrópskum samstarfsáætlunum. Sveitarstjórnarstigið hefur því mikilla hagsmuna að gæta í EES-samstarfinu og í nokkur ár hafa íslenska og norska sveitarfélagasambandið beitt sér fyrir því að geta tengst því.

Lesa meira
 
CEMR-policy-committee

10.12.2010 : Nýr forseti Evrópusamtaka sveitarfélaga kjörinn í Lúxemborg

Stefnumótunarnefnd (Policy Committee) Evrópusamtaka sveitarfélaga (Council of European Municipalities and Regions) (CEMR) fundaði í Mondorf-les-bains í Lúxemborg dagana 6.-7. desember sl. 

Lesa meira
 
Skjaldarmerki

10.12.2010 : Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2011

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga  um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2011. Tillögurnar eru í fimm liðum sem varða útgjaldajöfnunarframlög, skólaakstur, lækkaðar fasteignaskatttekjur, sérþarfir fatlaðra nemenda og nýbúafræðslu. 

Lesa meira
 
Skjaldarmerki

10.12.2010 : Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Reglugerðin, sem nær til allra lögákveðinna verkefna sjóðsins, er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og öðlast gildi 1. janúar 2011. Þá fellur úr gildi reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003, með síðari breytingum.

Lesa meira
 
mappa

9.12.2010 : Umsagnir um lagafrumvörp sendar til Alþingis

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent nokkrar umsagnir um lagafrumvörp til Alþingis. Meðal þeirra eru umsagnir um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja, um vörugjald af ökutækjum, um ríkisábyrgðir og um lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Lesa meira
 
Nam

7.12.2010 : Íslenskir nemendur bæta lesskilning sinn í PISA 2009

PISA (Programme for International Student Assessment) er umfangsmikil alþjóðleg rannsókn á hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði, stærðfræði og þrautalausnum. Niðurstöður PISA rannsóknarinnar fyrir árið 2009 liggja nú fyrir. Loks virðist hafa tekist að snúa við þeirri óheillaþróun í lesskilningi meðal íslenskra nemenda sem PISA hefur mælt undafarinn áratug og þeir bætt stöðu sína umtalsvert frá síðustu mælingu sem fram fór árið 2006.

Lesa meira
 
KAPA_Skolaskyrsla

6.12.2010 : Skólaskýrsla 2010 er komin út

Út er komin Skólaskýrsla 2010.  Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2009 ásamt upplýsingum aftur í tímann eins og kostur er. Upplýsingar eru birtar á landsvísu, eftir landshlutum og  að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga.

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_760x640

2.12.2010 : Lagabreytingar vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur skilað félags- og tryggingamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um málefni fatlaðra. Í umsögninni eru ekki gerðar tillögur um efnislegar breytingar á frumvarpinu, en ýmsum ábendingum komið á framfæri, m.a. til að auðvelda skjóta afgreiðslu málsins.

Lesa meira
 
SIS_Fjarmal_sveitarfel_760x640

2.12.2010 : Breytingar á skattalögum vegna málefna fatlaðra

Athygli sveitarstjórna er vakin á því að fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld. Í 26. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að bæði hámarks- og lágmarksútsvar skv. lögum um tekjustofna sveitarfélaga hækki  um 1,20 hundraðshluta. Hámarksútsvar verður því 14,48% og lágmarksútsvar 12,44%. Í 7. og 14. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að álagningarhlutfall tekjuskatts og staðgreiðsluhlutfall lækki um samsvarandi hlutfall.

Lesa meira
 
reykjavik

1.12.2010 : Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar lögð fram

Áhersla verður lögð á að verja velferðarþjónustu sérstaklega í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011. Jón Gnarr, borgarstjóri, lagði áætlunina fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar 30. nóvember sl.

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

1.12.2010 : Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2011-2012

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2011-2012 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 163 fullgildar umsóknir um námsleyfi skólaárið 2011-2012. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt væru 32 námsleyfi. Aðeins var því hægt að fallast á tæplega 20% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að ýmsum hæfum einstaklingum, með áhugaverðar umsóknir varð að hafna.

Lesa meira
 
mappa

1.12.2010 : Tvær umsagnir um frumvörp til laga sendar til Alþingis

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent tvær umsagnir um frumvörp til laga til Alþingis. Annars vegar er um að ræða umsögn um frumvarp til laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, 219. mál og hins vegar um frumvarp til laga um skeldýrarækt.

Lesa meira
 

Eldri fréttir




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica