Sambandið
Stjórn og starfsfólk Sambands íslenskra sveitarfélaga sendir sveitarstjórnarmönnum, starfsmönnum sveitarfélaga og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkar fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesa meira
Skólaskýrsla 2010 er nú komin út á rafrænu formi. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað.
Lesa meira
Þann 21. október 2010 var haldin ráðstefna í Reykjavík undir þessari yfirskrift. Ráðstefnan var haldin í samvinnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þátttakendur voru um 90.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. desember síðastliðinn um endurskoðun og uppgjör eftirfarandi framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2010. Þá hefur ráðherra einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. desember síðastliðinn um áætlaða úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2011.
Nú liggja fyrir útsvarsprósentur sveitarfélaga fyrir árið 2011. Meðalútsvarið verður 14,41% í stað 13,12% . Með yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga á næsta ári hækkaði útsvarsheimild sveitarfélaga um 1.2 prósentustig.
Lesa meira
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á náttúruverndarlögum er nú opið til umsagnar. Drögin voru unnin af nefnd sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í nóvember 2009 til að vinna að endurskoðun náttúruverndarlaga.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu hafa undirritað samkomulag um launasetningu starfsmanna málefna fatlaðra við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga nú um áramótin.Með samkomulaginu er náð utan um fyrirkomulag launasetningar félagsmanna SFR, sem gildir þar til aðilar hafa lokið gerð kjarasamnings. Hér fyrir neðan má sjá samkomulagið í heild sinni:
Lesa meira
Meirihluti efnahags- og skattanefnd Alþingis lagt til þá breytingartillögu við frumvarp fjármálaráðherra um skatta og gjöld (313. mál), að lögum um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt í samræmi við tillögu frá nefnd um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga sem tekið var undir í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið.
Lesa meira
Menntasvið Reykjavíkurborgar innleiddi nýtt vinnulag við gerð starfsáætlunar fyrir árið 2011 sem byggir á aðgerðaáætlun menntaráðs í skólamálum. Menntaráð borgarinnar hefur sömu stöðu og skóla- og fræðslunefndir annarra sveitarfélaga. Voru skólastjórnendur og skólaráð beðin um að kynna sér stefnuþætti menntaráðs í skólamálum og svara nokkrum spurningum þar að lútandi.
Lesa meira
Við gerð EES-samningsins var ekki ljóst hversu mikil áhrif hann myndi hafa á sveitarfélög í EES-EFTA löndunum. Sveitarstjórnarstiginu var því ekki tryggð nein aðkoma að EES-samstarfinu. Síðar kom í ljós að stór hluti af evrópskri löggjöf sem innleidd er í gegnum EES-samninginn hefur áhrif á sveitarfélög, allt að 70% að því er talið er, auk þess sem samningurinn tryggir sveitarfélögum aðgang að fjölmörgum evrópskum samstarfsáætlunum. Sveitarstjórnarstigið hefur því mikilla hagsmuna að gæta í EES-samstarfinu og í nokkur ár hafa íslenska og norska sveitarfélagasambandið beitt sér fyrir því að geta tengst því.
Lesa meira
Stefnumótunarnefnd (Policy Committee) Evrópusamtaka sveitarfélaga (Council of European Municipalities and Regions) (CEMR) fundaði í Mondorf-les-bains í Lúxemborg dagana 6.-7. desember sl.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2011. Tillögurnar eru í fimm liðum sem varða útgjaldajöfnunarframlög, skólaakstur, lækkaðar fasteignaskatttekjur, sérþarfir fatlaðra nemenda og nýbúafræðslu.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Reglugerðin, sem nær til allra lögákveðinna verkefna sjóðsins, er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og öðlast gildi 1. janúar 2011. Þá fellur úr gildi reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003, með síðari breytingum.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent nokkrar umsagnir um lagafrumvörp til Alþingis. Meðal þeirra eru umsagnir um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja, um vörugjald af ökutækjum, um ríkisábyrgðir og um lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Lesa meira
PISA (Programme for International Student Assessment) er umfangsmikil alþjóðleg rannsókn á hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði, stærðfræði og þrautalausnum. Niðurstöður PISA rannsóknarinnar fyrir árið 2009 liggja nú fyrir. Loks virðist hafa tekist að snúa við þeirri óheillaþróun í lesskilningi meðal íslenskra nemenda sem PISA hefur mælt undafarinn áratug og þeir bætt stöðu sína umtalsvert frá síðustu mælingu sem fram fór árið 2006.
Lesa meira
Út er komin Skólaskýrsla 2010. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2009 ásamt upplýsingum aftur í tímann eins og kostur er. Upplýsingar eru birtar á landsvísu, eftir landshlutum og að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur skilað félags- og tryggingamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um málefni fatlaðra. Í umsögninni eru ekki gerðar tillögur um efnislegar breytingar á frumvarpinu, en ýmsum ábendingum komið á framfæri, m.a. til að auðvelda skjóta afgreiðslu málsins.
Lesa meira
Athygli sveitarstjórna er vakin á því að fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld. Í 26. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að bæði hámarks- og lágmarksútsvar skv. lögum um tekjustofna sveitarfélaga hækki um 1,20 hundraðshluta. Hámarksútsvar verður því 14,48% og lágmarksútsvar 12,44%. Í 7. og 14. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að álagningarhlutfall tekjuskatts og staðgreiðsluhlutfall lækki um samsvarandi hlutfall.
Lesa meira
Áhersla verður lögð á að verja velferðarþjónustu sérstaklega í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011. Jón Gnarr, borgarstjóri, lagði áætlunina fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar 30. nóvember sl.
Lesa meira
Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2011-2012 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 163 fullgildar umsóknir um námsleyfi skólaárið 2011-2012. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt væru 32 námsleyfi. Aðeins var því hægt að fallast á tæplega 20% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að ýmsum hæfum einstaklingum, með áhugaverðar umsóknir varð að hafna.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent tvær umsagnir um frumvörp til laga til Alþingis. Annars vegar er um að ræða umsögn um frumvarp til laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, 219. mál og hins vegar um frumvarp til laga um skeldýrarækt.
Lesa meira
Hagstofa Íslands gaf út endurskoðaða þjóðhagsspá þann 23. nóvember. Spáin nær yfir árin 2010 – 2015 eins og fyrri spá fyrir sama tímabil sem kom út um miðjan júní. Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands í nóvember 2010 er öllu svartsýnni en sú spá sem gefin var út í júní sl. Þá var gert ráð fyrir að samdráttur einkaneyslu yrði minni en nú er gert ráð fyrir.
Lesa meira
Athygli sveitarfélaga er vakin á því að lögð hafa verið fram á Alþingi tvö frumvörp sem varða rekstur sveitarfélaga sérstaklega. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um málefni fatlaðra (flutningur málaflokksins til sveitarfélaga), 256. mál, og hins vegar frumvarp til laga um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja (heildarlög), 238. mál.
Lesa meira
Árbók sveitarfélaga 2010 sem kom út í október sl. er nú komin inn á heimasíðu sambandsins. Í bókinni er að finna upplýsingar um rekstur og efnahag sveitarfélaganna sem byggðar eru á niðurstöðum ársreikninga þeirra árið 2009. Einnig eru birtar í árbókinni upplýsingar um ýmis önnur atriði sem varða sveitarfélögin og rekstur þeirra sem gagnlegt er að hafa samandregnar á einum stað.
Lesa meira
Hag- og upplýsingasvið hefur uppfært excel töflu er varðar útgreiðslu á séreignarsparnaði. Taflan sýnir útgreiðsluna hjá hverju og einu sveitarfélagi og hvernig hún dreifist á mánuðina. Útsvarið er síðan reiknað út miðað við þær upphæðir sem þar koma fram.
Lesa meira
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Samtök atvinnulífsins (SA), fjármálaráðuneyti, og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í gær yfirlýsingu um að efla samstarf sitt um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild.
Lesa meira
Sveitarstjórnir eru minntar á að skv. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga ber þeim að ákveða fyrir 1. desember nk. hvert álagningarhlutfall útsvars skal lagt á tekjur manna á næsta ári. Ákvörðun þessa skal jafnframt tilkynna fjármálaráðuneytinu fyrir 15. desember.
Lesa meira
Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.
Lesa meira
Á undanförnum vikum hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið hugleitt hvernig aðstoð sem veitt er á vegum þriðja geirans til þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu komi að sem bestum notum. Mörg hjálparsamtök í landinu veita aðstoð í ýmsu formi.
Út er komin hjá Námsmatsstofnun skýrslan Staða íslenskra grunnskóla – Námsárangur og skýringarþættir í PISA 2006. Þar er greint frá stöðu og þróun námsárangurs íslenskra 15 ára nemenda hvað varðar lesskilning og læsi á stærðfræði og náttúruvísindi samkvæmt niðurstöðum PISA.
Lesa meira
Umsóknarfrestur sveitarfélaga um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með athyglisbrest rennur út 25. nóvember. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða verkefna sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.
Lesa meira
Ungt fólk á faraldsfæti (e. Youth on the Move) er eitt af forgangsverkefnum/flaggskipum (e. flagship initiatives) í 2020 aðgerðaráætlun Evrópu (e. Europe 2020). Verkefninu er ætlað að bæta evrópskt menntakerfi og auðvelda ungu fólki inngöngu á vinnumarkaðinn.
Hag- og upplýsingasvið hefur gefið út staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2010 og 2011. Gert er ráð fyrir útsvarsstofninn hækki að meðaltali á öllu landinu um c.a 3% á milli ára 2010 og 2011.
Sveitarfélagið Torbay í Bretlandi leitar samstarfsaðila til að taka þátt í ESB-verkefni sem fellur undir Leónardó-áætlunina. Sveitarfélagið hyggst sækja um til tveggja verkefna.
Lesa meira
Hafið þið hugmynd að menningarverkefni með börnum og unglingum á Norðurlöndum? Þá getið þið sótt um þrjár milljónir danskra króna fyrir meiriháttar menningarhátíð! Norræni menningarsjóðurinn hefur eyrnamerkt þrjár milljónir danskra króna „Norrænni menningarhátíð barna og ungmenna árið 2013-2014."
Lesa meira
Rannsóknir og greining lauk nýverið samanburðarrannsókn meðal 16 – 19 ára nemenda á Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum, Grænlandi, Álandseyjum og Færeyjum. Rannsóknin heitir ,,The Nordic Youth Research“ og var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni en unnin að frumkvæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Lesa meira
Framvinduskýrsla framkvæmdastjórnar ESB um Ísland, ásamt sérstakri samantekt um helstu niðurstöður, er nú aðgengileg á vefsíðu stækkunarskrifstofu ESB.
Hagstofa Íslands hefur reiknað út meðalrekstrarkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum, skv. 2. mgr. 56. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla og 6. gr. reglugerðar um viðurkenningu grunnskóla og lágmarksframlög úr sveitarsjóði til slíkra skóla nr. 320 frá 26. mars 2007.
Lesa meira
Fimmtudaginn 18. nóvember næstkomandi mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins halda ársfund sinn undir yfirskriftinni Hvað hvetur, hvað letur? Fundurinn verður haldinn á Nordica Hilton hótel frá 13:30 til 16:30. Þema fundarins er þátttaka og hvatning til náms
Lesa meira
Endurmenntunarstofnun sænska sveitarfélagsins Mölndal leitar samstarfs um Leónardó-verkefni.
Lesa meira
Í umræðu undanfarinna vikna um nauðungarsölur á fasteignum hefur því verið haldið fram að ýmsir opinberir aðilar sýni litla þolinmæði í innheimtu krafna hjá þeim stóra hópi fólks sem á í greiðsluerfiðleikum vegna bankahrunsins. Þessi gagnrýni beinist m.a. að sveitarfélögum en upplýsingar sem nýlega hafa komið fram á Alþingi sýna að sveitarfélög eru mun sjaldnar uppboðsbeiðendur en aðrir þeir aðilar sem verið hafa til umræðu.
Lesa meira
Endurmenntunarstofnun Möndal auglýsir eftir samstarfsaðilum til að standa að verkefni sem fellur undir Leónardó sjóðinn.
Lesa meira
Ritið Aðal- og varamenn í sveitarstjórnum 2010-2014 er komið út. Í ritinu eru upplýsingar um alla kjörna aðal- og varamenn í sveitarstjórnum ásamt öðrum upplýsingum um sveitarfélögum.
Lesa meira
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir tilnefningum til Starfsmenntaverðlauna 2010. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.
Lesa meira
Málþing um skipulagsmál framtíðarinnar verður á Grand hóteli í Reykjavík þann 11. nóvember nk. Á málþinginu verður m.a. leitast við að svara spurningum um hvað fór úrskeiðis? Hvort framtíð verður byggð án lærdóms hins liðna og hvernig verður byggt upp. Sérstakur gestur málþingsins verður finnsti arkitektinn Vesa Juola en hann mun m.a. fjalla um þá kreppu sem finnski byggingaiðnaðurnin gekk í gegnum og skýra frá því hvernig Finnar tóku á þeim málum.
Lesa meira
Síðasti borgarafundur í fræðslufundaröð um einelti og aðgerðir gegn því verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í kvöld, miðvikudag 3. nóvember, og hefst hann kl. 20:00. Alls hafa verið haldnir 10 vel sóttir og áhugaverðir fundir vítt og breitt um landið.
Lesa meira
Forvarnardagur að frumkvæði forseta Íslands er nú haldinn í 5. skiptið, miðvikudaginn 3. nóvember. Á forvarnardaginn fara fram umræður og verkefnavinna nemenda í 9. bekkjum grunnskóla út um allt land sem snýst um að finna út hvaða leiðir eru vænlegastar til árangurs til þess koma í veg fyrir neyslu áfengis og annarra vímuefna meðal ungmenna.
Lesa meira
Í dag fer fram málstofa um skólamál undir yfirskriftinni Skólabragur. Bein útsending verður frá málstofunni sem hefst kl. 9.30 og lýkur um kl. 15.30. Tengill á beina útsendingu.
Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var föstudaginn 29. október, var Guðríður Arnardóttir formaður bæjarráðs samhljóða kjörin varaformaður stjórnar.
Tekjustofnanefnd, sem falið var að leggja fram tillögur um að styrkja og breikka tekjustofna sveitarfélaga, leggur til nokkrar tímabundnar ráðstafanir á þessu og næsta ári og síðan tillögur til framtíðar. Gunnar Svavarsson, formaður nefndarinnar, afhenti í dag Ögmundi Jónassyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skýrsluna til frekari úrvinnslu og umfjöllunar á samráðsvettvangi ríkis og sveitarfélaga.
Lesa meiraHag og upplýsingasvið sambandsins hefur tekið saman útgjöld sveitarfélaga til einstakra málaflokka 2002 til 2009. Stærsti útgjaldaliður sveitarfélaga fer til fræðslu- og uppeldismála. Sá málflokkur tók til sín um 57% af skatttekjum sveitarfélaga árið 2009.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út reglur um úthlutun aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2010. Aukaframlaginu er ætlað að bæta rekstrarstöðu sveitarfélaga en við ákvörðun um úthlutun framlagsins var m.a. horft til ársreikninga sveitarfélaganna árið 2009.
Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birtir í næsta mánuði tillögur um endurskoðun landbúnaðarstefnu sambandsins frá 2013. Leggur stjórnin til að beinum stuðningi við bændur verði haldið áfram en sett verði þak á hæstu styrkina.
Lesa meira
Næstkomandi mánudag, 1. nóvember, gengst Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir málstofu um skólamál í Bratta, sal menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð (KHÍ). Málstofan er öllum opin.
Lesa meira
Komin er út skýrsla með niðurstöðum könnunar meðal fagfólks í grunnskólum á stöðu nemenda með íslensku sem annað tungumál. Var könnunin lögð fyrir vorið 2009 og var svarhlutfall 82,4 %.
Lesa meira
OECD gefur árlega út skýrsluna, Education at a Glance, um stöðu og þróun menntamála meðal 33 aðildarlanda og er 2010 skýrslan nú komin út. Rétt er að geta þess að mið er tekið af stöðu mála eins og þau stóðu árin 2007 og 2008.
Lesa meira
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands greiddi þann 15. október samtals 300 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar. Greiðslan rennur til þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum. EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni. Með framlagi þessa árs hefur félagið samtals greitt aðildarsveitarfélögunum rúma 3,6 milljarða króna.
Lesa meira
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur nýlega kveðið upp úrskurð í máli sem varðaði gjaldtöku fyrir barn í leikskóla. Tildrög málsins voru þau að við gerð fjárhagsáætlunar árið 2009, fyrir sex deilda leikskóla í sveitarfélagi á Norðurlandi, varð ljóst að grípa þurfti til róttækra aðgerða til þess að endar næðu saman í rekstri skólans.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flutti erindi um stöðu ríkisfjármála á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem nú stendur yfir á Hilton Nordica hóteli í Reykjavík. Í erindi sínu sagði Steingrímur m.a. að staðan væri heldur skárri en áætlað var á árinu 2009.
Lesa meira
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, flutti erindi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag þar sem hún rýndi í fjárlagafrumvarpið og lagði mat á áhrif þess fyrir sveitarsjóði. Í erindi hennar kom m.a. fram að í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að draga úr útgjöldum til sveitarstjórnarmála sem nemur 2.756 milljónum króna.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði fjármálaráðstefnu sveitarfélaga uppúr hádeginu í dag. Í ræðu sinni fjallaði hann um þann fjárhagsvanda sem nú steðjar að ríki, sveitarfélögunum og ekki síst heimilinum í landinu. Í ræðu sinni sagði hann m.a. að svigrúm ríkissjóðs til að aðstoða sveitarfélögin á erfiðum tímum væri mjög takmarkað.
Lesa meira
"Ríkið hefur ekki brugðist við þráfaldlega endurtekinni beiðni sambandsins um að gera sveitarfélögum kleift að hagræða í rekstri sínum í málefnum grunnskólans og fleiri rekstrarliðum þar sem lög og reglugerðir binda hendur stjórnenda sveitarfélaga," sagði Halldór Halldórsson m.a. í setningarræðu sinni á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem hófst í Reykjavík í morgun.
Lesa meira
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin á Hilton Nordica hótel í Reykjavík dagana 14. og 15. október nk. Meðal þess sem er á dagakrá ráðstefnunnar á fimmtudag er erindi Gunnlaugs Júlíussonar, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs sambandsins, um afkomu sveitarfélaga á árinu 2009.
Lesa meira
Nýkjörin stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga kom saman til fyrsta fundar í dag. Fundurinn var að venju haldinn í húsakynnum sambandsins að Borgartúni 30. Af ellefu stjórnarmönnum hafa fjórir ekki setið fundi stjórnar áður þau Óttar Ólafur Proppé, borgarfulltrúi í Reykjavík, Gunnlaugur Stefánsson, bæjarfulltrúi í Norðurþingi, Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri og Jórunn Einarsdóttir, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum.
Lesa meira
Komin er út álitsgerð dr. Ragnhildar H. Helgadóttur prófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík um ábyrgð þeirra sem starfa með börnum og ungu fólki í skipulögðu félags- og tómstundastarfi. Þetta á bæði við innan hefðbundins félagsstarfs, í ferðum og öðru starfi.
Lesa meira
Evrópuráðið hvetur sveitarfélög í aðildarríkjum sínum til skipuleggja lýðræðisviku í kringum 15. okt. en þann dag árið 1985 var Evrópusáttmáli um sjálfstjórn sveitarfélaga opnaður til undirritunar.
Lesa meira
Fjöldi stöðugilda sveitarfélaga drógst saman um 190 eða úr 19.430 í 19.240 milli áranna 2009 og 2010. Þetta þýðir um 1% samdrátt í vinnuafli sveitarfélaganna frá fyrra ári.Þegar fjallað er um stöðugildi er átt við fjölda starfa m.v. 100% starfshlutfall. Fjöldi starfsmanna hjá sveitarfélögum eru töluvert fleiri en fjöldi stöðugilda gefur til kynna þar sem margir eru í hlutastarfi.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga heldur í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landlækni, Landspítalann, Rauða kross Íslands og þjóðkirkjuna ráðstefnu um skipulag áfallahjálpar á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin í Grensáskirkju og hefst kl. 12.30.
Lesa meira
Rannís á aðild að sjóðnum Citizen-Centric eGovernment (með stuðningi frá ma. iðnaðaráðuneyti, Samtökum iðnaðarins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands) ásamt Vinnova í Svíþjóð og Efnahags- og upplýsingamálaráðuneyti Eistlands. Markmið sjóðsins er að efla rannsókna- og þróunarsamstarf fyrirtækja, stofnana og fræðimanna í þessum þremur löndum á sviði rafrænnar stjórnsýslu.
Allsherjarfundur Héraðanefndar ESB stendur frá 4.-6. október. Fundurinn mun m.a. fjalla um samheldnistefnu Sambandsins, loftslagsbreytingar, umhverfismál og upplýsingatæknimál með það markmiði að greina hvernig svæðisbundin stjórnvöld geta stuðlað að sjálfbærri, hátæknivæddri Evrópu og markmiðum Europe 2020. Á allsherjarfundi Héraðanefndarinnar og OPEN DAYS koma saman kjörnir fulltrúar hvaðanæva úr Evrópu til að ræða stefnumál sín og hafa áhrif á ákvarðanatöku ESB.
Lesa meira
Vegna niðurstöðu dómara í spurningakeppninni Útsvari sem fram fór í Sjónvarpinu í gærkvöldi vill Samband íslenskra sveitarfélaga taka fram að sveitarfélögin í landinu eru 76 að tölu.
Lesa meira
XXIV. landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk nú fyrir stundu. Halldór Halldórsson var endurkjörinn formaður stjórnar sambandsins. Þá voru gerðar umtalsverðar breytingar á lögum sambandsins þar sem stjórn sambandsins var m.a. falið að taka yfir verkefni Launanefndar sveitarfélaga. Þá var samþykkt að á landsþingi þurfi kjörnefnd að kynna tillögur sínar eigi síðar en sólarhring áður en kosning fer fram og að breytingartillögur þurfi að berast þingforsetum eigi síðar en tveimur klukkustundum áður en kosning fer fram.
Lesa meira
XXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer nú fram í Menningarmiðstöðinni í Hofi á Akureyri. Í setningarræðu sinni sagði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, m.a.: "Á þessu landsþingi eru stór mál lögð fyrir þingið til skoðunar og ákvarðanatöku. Þetta eru mál á borð við breytt skipulag í kjaramálum með tillögu um að kjósa ekki launanefnd lengur beint á landsþingi. Samstarf og samstaða sveitarfélaga í kjaramálum er lykilatriði og verðum við að halda þeirri órofa samstöðu án tillits til þess hvort við gerum skipulagsbreytingar varðandi launanefndina."
Lesa meira
Vatnavinir Vestfjarða hafa hlotið EDEN verðlaunin sem ætlað er að vekja athygli á ferðamannastöðum í Evrópu sem byggja á umhverfisvernd, sjálfbærni og gæðum. Þema ársins 2010 var Sjálfbær ferðaþjónusta í vatns- og sjávartengdri ferðaþjónustu (Sustainable Aquatic Tourism) en EDEN samkeppninni er m.a. ætlað að kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni.
Lesa meira
Evrópusamtök sveitarfélaga og samtök sveitarfélaga í Hollandi standa fyrir ráðstefnu um traust almennings til sveitarstjórna, Trust in Government - Build - Maintain - Improve í Haag 13. október nk.
Íslendingar ganga að kjörborði laugardaginn 27. nóvember 2010 og velja fulltrúa til setu á stjórnlagaþingi sem kemur saman eigi síðar en 15. febrúar 2011 til að endurskoða stjórnarskrá Íslands.
Lesa meira
Ráðstefna um menntamál verður haldin þann 1. október nk. á Akureyri þar sem blásið verður til samræðu og samstarfs allra skólastiga frá leikskóla til háskóla.
Lesa meira
Stjórn sambandsins kom saman til fundar fyrr í dag þar sem fjallað var um drög að frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga og skýrslu um fjármálareglur fyrir sveitarfélög og samráð um efnhagsmál. Trausti Fannar Valsson verkefnistjóri fór yfir frumvarpsdrögin og skýrði þau nánar og svaraði fyrirspurnum sttjórnarmanna, ásamt starfsmönnum sambandsins.
Lesa meira
Rannís, NordForsk, VINNOVA í Svíþjóð og viðskiptaráðuneytið í Eistlandi hafa komið á fót samstarfssjóði til styrktar samstarfi þessara landa í rafrænni stjórnsýslu (Citizen-Centric eGovernment Services) og lýsa nú eftir umsóknum í sjóðinn.
Lesa meira
Hafnasambandsþing verður haldið í Hótel Stykkishólmi dagana 23. og 24. september nk. Á þinginu verður m.a. fjallað um fjárhagsvanda hafna, samstarf við eigendur, stofnanir og viðskiptavini og um þátttöku hafna í atvinnustarfsemi. Meðal frummælenda á þinginu verður Ögmundur Jónasson samgönguráðherra.
Lesa meira
Ársreikningar sveitarfélaga 2009 er nú komnir á heimasíðu sambands. Hægt er að nálgast þá hér (exceltöflur ,pivot) eða á síðu Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Árbók sveitarfélaga 2010 kemur síðan út í lok þessara mánaðar í tengslum við landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands bjóða til málþings 22. september kl. 13.30-17 á Grand hótel Reykjavík
Lesa meira
Landssamtökin Heimili og skóli í samvinnu við fjölda aðila boða til opinna borgarafundafunda vítt og breitt um landið undir yfirskriftinni „Stöðvum einelti strax“.
Lesa meira
Alþingi samþykkti í gær frumvarp til nýrra skipulagslaga. Umhverfisnefnd Alþingis lagði alls til rúmlega 40 breytingartillögur við frumvarpið og var fallist á allmargar breytingatillögur Sambands íslenskra sveitarfélaga við frumvarpið.
Lesa meira
Dagskrá XXIV. landsþings eru nú komin á upplýsingavef sambandsins. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar sem á henni kunna að verða. Landsþingið verður sem kunnugt er haldið í Menningarmiðstöðinni Hofi á Akureyri. Samkvæmt dagskránni verður þingsetning kl. 16:00 miðvikudaginn 29. september og þinglok verða kl. 11:30 föstudaginn 1. október.
Lesa meira
Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga verður haldinn í Reykholti, Borgarbyggð, 16. og 17. september nk. Fundurinn hefst kl. 13.00 með ávarpi Stefáns Thors skipulagsstjóra. Skráning á fundinn er hafin á vef Skipulagsstofnunar.
Lesa meira
Alþjóðadagur læsis er 8. september. Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1965 helgað þennan dag málefnum læsis en læsi er nú skilgreint af SÞ sem grunnlífsleikni. Íslendingar hafa getað boðið börnum sínum tækifæri til lestrarnáms en til að viðhalda lestrarfærni þarf að iðka lestur.
Á meðal þeirra þingmála sem stefnt er að því að ljúka afgreiðslu Alþingis á í september er frumvarp um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda, nr. 162/2006. Í 5. gr. laganna er eins og kunnugt er kveðið á um skyldu sveitarfélaga með fleiri en 500 íbúa til að veita fjárframlög til stjórnmálasamtaka sem hlotið hafa a.m.k. 5% atkvæða í síðastliðnum sveitarstjórnarkosningum.
Lesa meira
Á 18. ársþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var í Félagsheimilinu á Blönduósi 27.-28. ágúst sl. var m.a. samþykkt áskorun til þingmanna Norðvesturkjördæmis að standa vörð um niðurgreiðslur til húshitunar.
Lesa meira
Gefin hafa verið út tvö rit um mótun skólastefnu sveitarfélaga. Annars vegar handbók um gerð skólastefnu til að auðvelda sveitarfélögum að setja sér slíka stefnu og nýta sem virkt stjórntæki.
Lesa meiraSambandið telur afar mikilvægt að almannaþjónustuhlutverk veitufyrirtækja sveitarfélaga komi skýrt fram í lögum sem sett eru um starfsemi þeirra.
Lesa meira
Stjórn Námsleyfasjóðs hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2011–2012. Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi fyrir 1. október 2010 á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira
Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn í Ketilhúsinu v. Kaupvangsstræti á Akureyri dagana 10. og 11. september nk
Lesa meira
Erindi Halldórs Halldórssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundi sérfræðinganefndar Bernarsamningsins um verndun villtra dýra og plantna og búsvæða í Evrópu.
Lesa meira
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er gert ráð fyrir því að nefndir Alþingis starfi á tímabilinu 17.-31. ágúst og að þingfundir verði dagana 2.-15. september. Hér er að finna lista yfir þingmál sem ekki voru afgreidd á vorþingi.
Lesa meiraSamband íslenskra sveitarfélaga hefur sent iðnaðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Í umsögninni eru lagt til að gerðar verði breytingar á tveim greinum frumvarpsins.
Lesa meira
Kjarasvið hefur gefið út skýrslu með niðurstöðum úr könnun á framkvæmd samreksturs skóla. Könnunin var gerð í samvinnu við Félag leikskólakennara og Skólastjórafélag Íslands. Samkvæmt upplýsingum sveitarfélaga er um að ræða 13 skóla með leik- og grunnskólastig í samrekstri, þrjá skóla með grunn- og tónlistarskóla í samrekstri og átta skóla þar sem öll þrjú stigin eru rekin saman undir stjórn eins skólastjóra.
Lesa meira
Launanefnd sveitarfélaga hefur tekið saman grunnupplýsingar um kjaradeilu Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna.
Ísland, Liechtenstein og Noregur hafa samið við Evrópusambandið um áframhald Þróunarsjóðs EFTA og Þróunarsjóðs Noregs. Tilgangur sjóðanna er að veita styrki til verkefna sem styðja við félagslega- og efnahagslega uppbyggingu 15 ríkja í Suður- og Austur-Evrópu. Upphæðin sem um ræðir er 1,79 milljarður evra á tímabilinu 2009-2014.
Síðdegis í gær, 15. júlí, slitnaði upp úr kjaraviðræðum Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna (LSS).
Lesa meiraSkrifstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga verður lokuð frá mánudeginum 19. júlí til og með mánudeginum 2. ágúst.
Skrifstofa Lánasjóðs sveitarfélaga verður aftur á móti opin þennan tíma. Hægt er að ná sambandi við starfsmenn lánasjóðsins í síma 515 4949 eða 895 4560.
Gleðilegt sumar!
Norræn ráðstefna um menningarmál verður haldin í Noregi 24.-26. október. Á ráðstefnunni verður meðal annars rætt um möguleika á auknu norrænu samstarfi á þessu sviði.
Lesa meira
Í ljósi fréttaflutnings um sumarlokun hjálparstofnanna á höfuðborgarsvæðinu vill Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaga í landinu leiðrétta ákveðinn misskilning sem komið hefur fram í fjölmiðlum.
Lesa meira
Í dag var undirritað samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Þetta er viðamesta endurskipulagning á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema 10,7 milljörðum króna flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins þann 1. janúar 2011.
Lesa meira
Hag og upplýsingasvið hefur tekið saman í töflu sem sýnir álagningarhlutföll og heildarálagningu fasteignaskatts sveitarfélaga fyrir árið 2010 vegna A- og C hluta.
Lesa meira
Einn helsti viðburður sveitarstjórnarmanna í Evrópu, OPEN DAYS, fer fram í Brussel dagana 4. – 7. október nk. Það eru Héraðanefnd (Committee of the Regions) og byggðadeild (DG Regio) Evrópusambandsins sem standa fyrir viðburðinum en hann er nú haldinn í áttunda sinn.
Lesa meira
Í byrjun maí 2009 var að frumkvæði þáverandi heilbrigðisráðherra boðað til samráðsfundar þriggja ráðuneyta, þ.e. heilbrigðisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis og Lýðheilsustöðvar. Tekin var ákvörðun um að setja á laggirnar óformlegan starfshóp sem var falið það verkefni að kortleggja með heildstæðum hætti umfang vandans, framkvæma nauðsynlega greiningu á honum og koma með tillögur til lausnar.
Lesa meira
Bráðabirgðaniðurstöður úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2009 liggja nú fyrir. Almennt var gengið heldur fyrr frá ársreikningum sveitarfélaga í ár en undanfarin ár og má ætla að það hafi verið vegna sveitarstjórnarkosninga sem fóru fram í lok maí.
Lesa meira
Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.
Lesa meira
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent öllum sveitarstjórnarmönnum bréf þar sem kynnt eru helstu verkefni nefndarinnar og samskipti við sveitarstjórnir. Alls fá rúmlega 500 sveitarstjórnarmenn bréfið og er tilgangur þess að greiða fyrir góðum samskiptum og að upplýsingar berist fljótt og vel á milli aðila.
Úrskurðarnefnd sem skipuð var til þess að fjalla um kærumál vegna kosninganna í Reykhólahreppi þann 29. maí hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær skuli ógiltar og kosið verði til hreppsnefndar á nýjan leik. Fráfarandi hreppsnefnd mun starfa uns nýjar kosningar hafa farið fram.
Lesa meira
Meginmarkmiðið með vettvanginum er að tryggja þátttöku sveitarstjórnarmanna í EES-samstarfinu og koma á tengslum við Héraðanefnd ESB enn í henni sitja kjörnir fulltrúar á sveitarstjórnarstigi frá ESB ríkjunum sem hafa það hlutverk að fjalla um tillögur að evrópskri löggjöf sem varða sveitarstjórnarstigið
Lesa meira
Samþykktir EFTA um stofnun sveitarstjórnarvettvangsins fela í sér mikilvæga viðurkenningu á sveitarstjórnarstiginu sem hagsmunaaðila í EFTA/EES-samstarfinu. Vettvangurinn mun tryggja samráð þegar rætt er um að hvernig fella beri gerðir sem snerta sveitarstjórnarmál að EES-samningnum, stuðla að auknu samstarfi á sveitarstjórnarstigi milli þátttökulanda og gera sveitarstjórnarfólki í kleift að skiptast á skoðunum við kollega sína í Héraðanefnd ESB.
Lesa meira
Í dag boðaði Héraðanefnd ESB til fundar þar sem sveitarfélögum og héruðum og fulltrúum nefndarinnar gafst kostur á að ræða vinnuáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir 2010 og koma athugasemdum sínum á framfæri við framkvæmdastjórnina.
Lesa meira
Sunnudaginn 13. júní tóku nýkjörnar sveitarstjórnir við störfum og þá lauk jafnframt kjörtímabili sveitarstjórna sem kjörnar voru í sveitarstjórnarkosningunum 27. maí 2006. Samband íslenskra sveitarfélaga býður nýju sveitarstjórnir í sveitarfélögunum 76 velkomnar til starfa og væntir þess að samstarf við þær verði farsælt og gott.
Lesa meira
Starfsmenn sambandsins hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir að loknum sveitarstjórnarkosningum um úthlutun sæta í nefndir og ráð en samkvæmt 40. gr. sveitarstjórnarlaga gildir svokölluð d´Hondts regla um skiptingu þessara sæta þegar fram fer listakosning í nefndir.
Lesa meira
Skýrsla 3. skólaþings sveitarfélaga, sem haldið var 2. nóvember sl., er komin út og verður hún eingöngu aðgengileg á rafrænu formi. Það fyrirkomulag gerir áhugasömum kleift að hlýða á erindi fyrirlesara af hljóðskrá og skoða viðeigandi glærur.
Lesa meira
Á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins hefur nú verið opnað fyrir að kjósendur geti kannað hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum laugardaginn 29. maí 2010.
Lesa meira
Nú þegar aðeins tveir dagar eru til kjördags í sveitarstjórnarkosningum er fróðlegt að rýna í aldur frambjóðenda.
Eins og áður hefur komið fram er bundin listakosning í 59 sveitarfélögum, þar af var sjálfkjörið í 4 sveitarfélögum þar sem aðeins einn listi kom fram í þeim. Samtals eru boðnir fram 185 listar með 2.846 frambjóðendum.
Lesa meira
Hlutfall kvenna í framboði til sveitarstjórna er hærra en nokkru sinni áður, eða 1.331 kona á móti 1515 körlum. Konur eru því 46,8% frambjóðenda. Ef eingöngu eru skoðuð hlutföll kvenna og karla í efstu sætum framboðslista breytist myndin þó umtalsvert.
Lesa meira
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur skapast óvissa um fóðuröflun á öskufallssvæðinu í sumar. Fyrirsjáanlegt er að talsvert viðbótarhey þarf inn á svæðið og því er nauðsynlegt að tryggja nægar heybirgðir fyrir haustið.
Lesa meira
Alls eru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna í kosningunum 29. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2846 einstaklingar, eða ríflega 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu. Flestir framboðslistar eru í Reykjavíkurborg, eða átta talsins, sjö í Kópavogsbæ og sex í Akureyrarkaupstað.
Lesa meira
Borgir og bæir eru ein helsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda; áttatíu prósent evrópskra borgara búa í þéttbýli og þar eru 80% allrar orku nýtt. Ljóst er að borgir og bæir hafa lykilhlutverki að gegna eigi að takast að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Lögfræðisvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér umsagnir um fjögur þingmál. Um er að ræða umsagnir um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum, frumvarp til lögreglulaga, frumvarp til laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga og þingsályktunartillögu um notendastýrða persónulega aðstoð.
Lesa meira
2. tbl. fréttabréfs kjarasviðs er komið út. Í fréttabréfinu er m.a. sagt frá nýrri stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, en Samband íslenskra sveitarfélaga varð aðili að henni fyrr í vikunni.
Lesa meira
Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga opnaði nýjan upplýsinga- og samkiptavef fyrir sambandið á fundi stjórnar fyrr í dag.
Lesa meira
Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) 6. maí sl. var samþykkt að BSRB, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
Lesa meira
Brunamálastofnun hefur gefið út leiðbeiningarblað BST 2.05 um hæfisskilyrði við ráðningu slökkviliðsstjóra.
Lesa meira
Ráðstefnan The Second European Regional Safe Community Conference, Incorporating the 7th Nordic Conference on Safe Communities verður haldin á Grand hóteli 19.-20. maí, 2010.
Lesa meira
Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2010 er lokið. Alls bárust umsóknir um styrki til 208 verkefna upp á tæpar 76 millj.kr.
Samband íslenskra sveitarfélaga sendi samgönguráðherra bréf fyrir síðustu áramót þar sem gerð er athugasemd við nýja vegaskrá sem tók gildi um áramót. Í bréfinu segir m.a. að hin nýja vegaskrá feli í sér mjög íþyngjandi breytingar fyrir sveitarfélögin nema þeim verði bættur aukinn kostnaður við veghald með framlögum úr ríkissjóði.
Lesa meira
Í svari Kristjáns L. Möllers, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, við fyrirspurn Þórs Saari um erfiða fjárhagsstöðu sveitarfélaga kemur fram að alls hafa 10 sveitarfélög verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
Lesa meira
Alþingi samþykkti þriðjudaginn 27. apríl breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum.
Lesa meira
Rekstrarniðurstaða Dalvíkurbyggðar samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um 127 millj.kr. á árinu 2009 og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 174,8 millj.kr. Rekstrartekjur á árinu 2009 námu 1.393,2 millj.kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta, sem er 3% hærra en áætlað var.
Fjölmiðlateymi Samhæfingarstöðvar Almannavarna hefur tekið saman bækling sem nefnist „Hætta á heilsutjóni vegna gosösku - Leiðbeiningar fyrir almenning“. Bæklingurinn er þýddur úr ensku og í hann settar íslenskar myndir með góðfúslegu leyfi Morgunblaðsins.
Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar í 77 sveitarfélögum 29. maí næstkomandi. Frá því kosið var til sveitarstjórna síðast árið 2006 hefur sveitarfélögum fækkað um tvö, úr 79 í 77. Að loknum kosningunum í vor tekur gildi sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar og verða þá sveitarfélög í landinu 76 talsins.
Föstudaginn 16. apríl sl. var haldinn aðalfundur FENÚR, Fagráð um endurnýtingu og úrgang, í safnaðaheimili Karsnessóknar í Kópavogi. Að venju voru flutt fjölmörg áhugaverð erindi um meðhöndlun úrgangs. Á sama tíma kom út fréttablað FENÚR.
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2009 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 21. apríl 2010. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður seinni umræðan í bæjarstjórn miðvikudaginn 5. maí næstkomandi.
Lesa meira
Árangursmat framkvæmdastjórnarinnar sýnir að þeir 123 milljarðar evra sem veitt var úr Byggðaþróunarsjóði sambandsins (ERDF) á árunum 2000-2006 hafa dregið úr aðstöðumun aðildarríkja og stuðlað að efnahagslegri og félagslegri þróun og aukinni umhverfisvernd í Evrópu.
Hringtorg hafa dregið verulega úr umferðaróhöppum í Reykjanesbæ og reynst góð slysavörn. Þetta kom fram á nýliðnu umferðaröryggisþingi sem haldið var í Reykjanesbæ í gær en þar var m.a. kynnt gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið sem unnin er í samvinnu við Umferðarstofu.
Evrópuráðstefnur um upplýsingatæknimál sveitarfélaga (EISCO) eru haldnar reglulega til að leiða saman framkvæmdastjórn ESB, kjörna fulltrúa og sérfræðinga frá svæðis- og sveitarstjórnum hvaðanæva úr Evrópu
Fjármálaráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa. Reglugerðin, sem er nr. 229/2010, tekur við af reglugerð nr. 807/2007, og felur í sér umtalsverða hækkun viðmiðunarfjárhæða vegna útboða á EES-svæðinu.
Reykjavíkurborg hefur verið valin ein af sex evrópskum borgum sem keppa til úrslita um að vera Græna borgin í Evrópu (European Green Capital) árið 2012 eða 2013.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent umhverfisnefnd Alþingis umsagnir um frumvarp til laga um mannvirki og frumvarp um breytingu á lögum um brunavarnir.
Lesa meira
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent umhverfisnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til skipulagslaga. Í því frumvarpi sem nú er lagt fram hefur verið tekið mun meira tillit en áður til sjónarmiða sveitarfélaga.
Reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur gefið út álit vegna færslu leigusamninga fasteigna og annarra mannvirkja í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga.
Stuðningur ESB við atvinnu- og byggðaþróun í aðildarríkjunum. Ráðstefna í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 15. apríl og föstudaginn 16. apríl 2010.
Gengið hefur verið frá ráðningu Gyðu Hjartardóttur í starf félagsþjónustufulltrúa sambandsins og mun hún hefja störf í maímánuði.
Verkefnisstjórn hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna sem ætlað er að efla þjónustu í heimabyggð við langveik börn og börn með athyglisbrest og ofvirkni. Úthlutað verður 80 milljónum króna til fjölbreyttra verkefna um allt land.
Skipulagsmálanefnd sambandsins hélt sinn fyrsta fund 25. mars sl. Á fundinum voru m.a. til umfjöllunar drög að umsögnum sambandsins um frumvörp til nýrra skipulagslaga og laga um mannvirki.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Vísað er til tölvupósts frá nefndasviði, vegna menntamálanefndar Alþingis, dags. 11. desember s.l., þar sem óskað er eftir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um ofangreint þingmál.
Lesa meira