Sambandið
Bæjarstjórarnir í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi undirrituðu þann 25. janúar samstarfssamning um rannsóknarverkefni í leikskólum. Jóhanna Einarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) undirritaði samninginn fyrir hönd RannUng.
Lesa meira
Velferðarráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Leiðbeiningarnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu auk styrkja til náms og tækjakaupa fatlaðs fólks.
Lesa meira
Opin ráðstefna á vegum verkefnisstjórnar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) verður haldin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura föstudaginn 10. febrúar 2012.
Lesa meira
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Lesa meira
Norræna ráðherranefndin styrkir námsferðir starfsmanna ríkis, sveitarfélaga og sveitarfélagasamtaka í norrænu og baltnesku ríkjunum til að kynna sér stjórnsýslu og stofna til gagnkvæmra tengslaneta. Ekki eru styrktar ferðir innan Norðurlandanna, heldur á milli þeirra og baltnesku ríkjanna.
Lesa meira