Þjóðskrá Íslands mun eftir áramótin bjóða sveitarfélögum upp á nýja þjónustu við birtingu álagningarseðla vegna fasteignagjalda 2012 með rafrænum hætti. Markmiðið er m.a. að gera sveitarfélögunum mögulegt að spara sér útgjöld vegna póstsendinga, pökkunar og umslaga. Að lokinni álagningu verður í álagningarkerfinu unnt að velja að birta seðlana einstaklingum og lögaðilum á „Mínum síðum“ á Ísland.is þar sem þeir sækja seðlana á PDF-formi með því að skrá sig inn á Ísland.is með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænu skilríki.
Lesa meira
Háskólinn á Bifröst efnir til náms fyrir stjórnendur innan sveitarfélaga sem miðar að sterkari stjórnsýslu. Markmiðið með náminu er að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda innan sveitarfélaga til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli.
Lesa meira
Fjárhagsleg staða sveitarfélaga á Íslandi er mjög mismunandi. Ástæður fyrir ólíkri fjárhagsstöðu þeirra geta verið mismunandi. Til glöggvunar og til að gera umræðu um þessi mál markvissari er mögulegt að skipa sveitarfélögum í flokka miðað við fjárhagslega stöðu þeirra. Fjárhagslegur vandi sveitarfélaga getur annað hvort verið rekstrarvandi eða skuldavandi. Í einhverjum tilvikum getur verið um vanda að ræða sem á bæði rætur að rekja til rekstrarerfiðleika og mikillar skuldsetningar
Lesa meira
Í síðastliðinni viku lagði innanríkisráðherra fram á Alþingi frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga. Um er að ræða heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 sem felur í sér tillögur um ýmsar veigamiklar breytingar á þessum grundvallarlögum sem sveitarstjórnarstigið starfar eftir. Í sömu viku kom út skýrsla stjórnlaganefndar, sem næstu þrjá mánuðina verður til umfjöllunar í stjórnlagaráði. Mikilvægt er að sveitarstjórnir um land allt kynni sér þessar tillögur og taki afstöðu til þeirra.
Lesa meira
Í febrúar síðastliðnum gerði Samband íslenskra sveitarfélaga athugun á því hvernig sveitarfélög hér á landi haga þessum málum. Svör bárust frá 64 sveitarfélögum með u.þ.b. 95% íbúa landsins. Yfir 40% sveitarfélaganna styrkja ekki stjórnmálasamtök sem boðið hafa fram lista við sveitarstjórnarkosningar en 23 sveitarfélög sem svöruðu könnuninni voru undir 500 íbúum og því ekki skyldug til að styrkja stjórnmálasamtök.
Þegar niðurstaðan er greind frekar þá voru það frekar fámenn og millistór sveitarfélög sem styrktu ný framboð á meðan hin fjölmennari styrktu síður ný framboð.
Lesa meiraSambandið