Sambandið

Á döfinni

08.09.2010 Atburðir

Dagur læsis

Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Í yfirlýsingu frá UNESCO segir að læsi teljist til grunnlífsleikni og lýst yfir að læsi sé kjarni alls náms og varði því alla.

Upplestur í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og fullorðinsfræðslu.
Á degi læsis eru kennarar, nemendur og annað starfsfólk skóla um allt land hvatt til að skipuleggja upplestur innan sem utan kennslustofa í 10 til 15 mínútur.

Upplestur um allt land.
Á degi læsis er fólk hvar sem er á landinu hvatt til að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta.


 



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica