Lýđrćđi í sveitarfélögum
Á þessari síðu eru ýmsar upplýsingar er varða lýðræðismál í sveitarfélögum
Lýðræðismál eru í brennidepli eftir atburði undanfarinna mánaða og nú í ljósi sveitarstjórnarkosninga á næsta ári. Ríkisstjórnin hefur sett lýðræðismál á oddinn í samstarfsyfirlýsingu sinni. Þar segir að vinna eigi að eflingu lýðræðis á sveitarstjórnarstigi og setja ákvæði um gerð siðareglna á sveitarstjórnarstigi. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp um persónukosningar til sveitarstjórna. Lýðræðishópur sambandsins, sem er skipaður þeim Degi B. Eggertssyni, Magnúsi B. Jónssyni og Soffíu Lárusdóttur, hefur einnig unnið að undirbúningi tillagna um aukið lýðræði í sveitarfélögum í samræmi við samþykktir landsþings sambandsins. Stjórn sambandsins samþykkti á fundi sínum 26. júní sl. að fela hópnum að leiða umræðu meðal sveitarstjórnarmanna um nýjar lýðræðisleiðir á fundum í haust.
Lýðræðishópurinn hefur hvatt sveitarfélög til að taka þessi mál til umfjöllunar og setja lýðræðismál á dagskrá aðalfunda landshlutasamtaka sveitarfélaga sem haldnir verða í haust. Hann stóð, í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, fyrir málþingi 19. ágúst sl. sem ætlað var að vera inngangur og grunnur að umræðum um lýðræðismál.
Dagskrá og kynningar á málþinginuHér er stutt samantekt um tillögur um persónukosningar til sveitarstjórna, um siðareglur og siðanefnd sveitarfélaga og fleiri lýðræðisnýmæli til að undirbúa umræður.
Erindi Magnúsar Karels Hannessonar, sviðsstjóra rekstrar- og útgáfusviðs um persónukjör.
Sjá einnig minnisblað Gunnars Helga Kristinssonar prófessors um lýðræðismál sveitarfélaga hér.
Evrópsk lýðræðisvika í sveitarfélögum
Handbækur og leiðbeiningar um íbúalýðræði
Um Sambandiđ
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráđstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíđar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
10.3.2010
Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins.




















