Fréttir þróunarsvið
8.2.2010
Auglýsing um styrki úr mótvægissjóði velferðarvaktarinnar
Velferðarvaktin auglýsir eftir umsóknum í mótvægissjóð vaktarinnar í samræmi við reglur sjóðsins. Tilgangur sjóðsins er að styðja við aðgerðir sem draga úr afleiðingum efnahagskreppunnar fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar 15 milljónir króna. Styrkfjárhæð skal að jafnaði ekki vera lægri en 500.000 krónur og að hámarki helmingur heildarkostnaðar við verkefni.
Verkefni sem til greina kemur að styrkja eru:
- Ný tímabundin verkefni fyrir tiltekna hópa sem orðið hafa illa úti í efnahagsástandinu.
- Sérstök verkefni til að styðja starfsfólk sem aðstoðar þá sem eiga í miklum erfiðleikum.
- Samræming verkefna og samstarfsverkefni á vegum þriðja geirans.
Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi.
Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Broddadóttir í síma 545 8100 eða með tölvupósti um netfangið ingibjorg.broddadottir@fel.stjr.is
Um Sambandið
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráðstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíðar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
10.3.2010
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins.




















