Sd21 á Íslandi
Inngangur
Samkvæmt 28. kafla Dagskrár 21 var til þess ætlast að á árinu 1996 hefðu allar sveitarstjórnir, í samráði við íbúa á hverjum stað, búið til Staðardagskrá 21 (Local Agenda 21) fyrir samfélagið. Ef tekið er mið af niðurstöðum könnunar sem gerð var á vegum ICLEI (International Council for Local Environmental Initiatives), höfðu 1812 sveitarstjórnir í 64 löndum hafið þessa vinnu í lok nóvember 1996. Þar af var áætlunargerð talin vera hafin í 933 sveitarfélögum, en hin 879 voru skemmra á veg komin. Hafa ber þó fyrirvara á þessum tölum. Sveitarstjórnir beita sér fyrir ýmsum verkefnum og áætlunargerð á umhverfissviðinu, og í mörgum tilvikum er álitamál hvort líta beri á þær aðgerðir sem hluta af gerð Staðardagskrár 21. Tölulegar niðurstöður ráðast því mjög af því hvaða skilyrði menn telja að þurfi að uppfylla til að hægt sé að tala um tiltekin verkefni sem Staðardagskrá 21.
Hvort sem fleiri eða færri sveitarfélög í heiminum voru byrjuð á Staðardagskrárvinnunni 1996, þá var ekkert íslenskt sveitarfélag í þeim hópi skv. fyrrnefndri könnun. Þó má segja að vinna íslenskra sveitarfélaga við gerð Staðardagskrár 21 hafi hafist með þátttöku Egilsstaðabæjar í norrænu umhverfisverkefni vorið 1996.
Norrænt umhverfisverkefni 1995-1997
Á árunum 1995-1997 var unnið að sérstöku verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar með það að markmiði að þróa fyrirmynd að umhverfisáætlunum fyrir fámenn sveitarfélög. Egilsstaðabær tók þátt í verkefninu af Íslands hálfu, en auk hans náði verkefnið til 17 færeyskra sveitarfélaga. Verkefnisstjóri var Durita Brattaberg frá Heilsufrøðiligu Starvsstovunni í Færeyjum, en Sigurborg Kr. Hannesdóttir stjórnaði aðgerðum á Egilsstöðum. Afrakstur verkefnisins var gefinn út í bók á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, (Norræna ráðherranefndin. Plan for miljøet i kommunene. Kommunale miljøhandlingsplaner i småsamfunn. Kaupmannahöfn, TemaNord 1997:576).
Ráðstefna á Egilsstöðum 1997
Í framhaldi af norræna verkefninu efndu Norræna ráðherranefndin, umhverfisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga til umhverfisráðstefnu á Egilsstöðum 9.-10. júní 1997. Þar var m.a. kynnt skýrsla um þátttöku Egilsstaðabæjar í verkefninu. Á ráðstefnunni kom fram sterkur vilji hjá sveitarfélögum til þess að ráðast í hliðstætt verkefni og var samþykkt áskorun til ráðuneytisins og sambandsins að hrinda því af stað.
Bókin Umhverfisáætlanir sveitarfélaga 1998
Í mars 1998 gáfu Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytið út handbók um gerð umhverfisáætlana í sveitarfélögum. Bókin var unnin í kjölfar samþykktarinnar frá ráðstefnunni á Egilsstöðum og byggð á norrænu bókinni sem fyrr var nefnd. Í bókinni eru settar fram tillögur um hvernig standa megi að gerð umhverfisáætlana. Meginhluti bókarinnar eru eyðublöð sem sveitarfélögin geta notað til að skrá núverandi umhverfisaðstæður í tilteknum málaflokkum, markmið og afleiðingar þeirra og starfs- og tímaáætlanir.
18 mánaða verkefnið
Þann 12. mars 1998 var undirritaður samstarfssamningur milli umhverfisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um 18 mánaða „verkefni sem miðar að gerð umhverfisáætlana í sveitarfélögum – Staðardagskrá 21“. Verkefnið hófst formlega í byrjun október sama ár með ráðningu Stefáns Gíslasonar sem verkefnisstjóra. Þá hafði 31 sveitarfélag sótt um þátttöku í verkefninu, en verkefnið hafði verið kynnt fyrir íslenskum sveitarfélögum með bréfi, dagsettu 8. júlí 1998.
Skv. samningi umhverfisráðuneytisins og Sambandsins var sérstök verkefnisstjórn sett á laggirnar, skipuð tveimur fulltrúum frá hvorum aðila. Upphaflegu verkefnisstjórnina skipuðu þau Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deildarstjóri og Ragnar Frank Kristjánsson, landslagsarkitekt, fyrir hönd ráðuneytisins og Þuríður Backman á Egilstöðum og Magnús Már Júlíusson í Hafnarfirði af hálfu Sambandsins.
Aðferðafræði 18 mánaða verkefnisins tók mið af norræna verkefninu sem fyrr var nefnt. Vinnan hófst með því að verkefnisstjóri heimsótti öll þátttökusveitarfélögin og kynnti tildrög og tilgang verkefnisins. Í upphaflegri tímaáætlun var gert ráð fyrir að sveitarstjórnir allra þátttökusveitarfélaganna myndu samþykkja 1. útgáfu Staðardagskrár 21 fyrir viðkomandi sveitarfélög áður en verkefninu lyki í ársbyrjun 2000. Þetta markmið var þó naumast raunhæft miðað við reynslu erlendra sveitarfélaga, enda var bæjarstjórn Snæfellsbæjar sú eina sem náði svo langt á þessum skamma tíma. Þar var 1. útgáfa Staðardagskrár 21 samþykkt 16. mars 2000, (sjá nánari umfjöllun um Staðardagskrárstarf einstakra sveitarfélaga).
Nýr samningur 2001-2005
Við lok 18 mánaða verkefnisins 31. mars 2000 var ákveðið að framlengja samstarf umhverfisráðuneytisins og Sambandsins a.m.k. til loka ársins. Þann 10. janúar 2001 skrifuðu umhverfisráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga síðan undir samning um áframhaldandi samstarf til að aðstoða íslensk sveitarfélög við að koma sér upp Staðardagskrá 21.
Nýi samningurinn gilti til 5 ára þ.e. frá 1. janúar 2001-31. desember 2005. Á árinu 2002 skyldi þó endurskoða tilhögun og fjármögnun, en um það leyti var reiknað með að allmörg sveitarfélög hefðu lokið við 1. útgáfu Staðardagskrár 21. Á því ári urðu einnig ákveðin þáttaskil í starfinu að sjálfbærri þróun, þar sem þá voru liðin 10 ár frá heimsráðstefnunni í Ríó. Þess var minnst á ráðstefnunni Ríó+10, sem haldin var í Suður-Afríku haustið 2002.
Samkvæmt samstarfssamningnum hefur Samband íslenskra sveitarfélaga umsjón með fjármálum Staðardagskrárverkefnisins. Sambandið greiðir allan kostnað vegna verkefnisstjóra Sd21 á Íslandi og vegna starfs hans og starfsaðstöðu, í samræmi við fjárhagsáætlun sem gera skal fyrir hvert ár. Umhverfisráðuneytið greiðir Sambandinu fasta upphæð upp í þennan kostnað árelga.
Ákveðið var að framlengja þennan fimm ára samning til ársloka 2006, en eins og segir í samkomulaginu, þá skulu samningsaðilar í síðasta lagi þann 31. október 2006 hafa komist að samkomulagi um fyrirkomulag áframhaldandi Staðardagsskrárstarfs á landsvísu að samningstíma loknum.
Samkvæmt samningnum fer fjögurra manna stýrihópur með stjórn Staðardagskrárstarfsins á Íslandi. Hópurinn er skipaður á sama hátt og gilti um verkefnisstjórn 18 mánaða verkefnisins. Í honum sitja:
Frá umhverfisráðuneytinu:
Danfríður Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála, formaður
Árni Bragason, forstöðumaður Náttúruverndar- og útivistarsviðs Umhverfisstofnunar
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga:
Steinunn Guðnadóttir,Hafnarfjarðarbæ
Sigríður Stefánsdóttir, sviðsstjóri þrónustusviðs Akureyrarbæjar
Þann 15. febrúar 2007, var endurnýjað samkomulag um samstarf um gerð Staðardagskrár 21 í íslenskum sveitarfélögum milli umhverfisráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga. Á sama tíma undirrituðu umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra samkomulag um sérstakt átak í tengslum við byggðaáætlun til að styðja við innleiðingu Staðardagskrár 21 í fámennum sveitarfélögum á landsbyggðinni. Hvoru tveggja, þ.e. samningurinn og samkomulagið gilda frá og með árinu 2007 til ársloka 2009.
Verkefnisstjóri
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá UMÍS ehf. Environice, sinnir starfi verkefnisstjóra sem fyrr. Samkvæmt samningum frá 10. janúar eru helstu verkþættir í starfi verkefnisstjóra og stýrihóps eftirtaldir:
- Vinnufundir, kynnisferðir, námskeið, ráðstefnur
- Útgáfa fréttabréfa og kynningarefnis
- Viðhald og uppfærsla vefsíðu um Staðardagskrá 21 á Íslandi
- Söfnun og miðlun upplýsinga
- Þátttaka í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samstarfi um Staðardagskrá 21
Staðardagskrá 21 í fámennum sveitarfélögum
Á árinu 2003 var stýrihópi og verkefnisstjóra Sd21 á Íslandi falið að hafa umsjón með sérstöku þriggja ára verkefni um Staðardagskrá 21 í fámennum sveitarfélögum, sem ýtt hafði verið úr vör þá um vorið með samkomulagi sem umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra undirrituðu í Hrísey þann 25. apríl. Iðnaðarráðuneytið greiðir stærstan hluta kostnaðar við verkefnið af fjárframlögum til byggðamála, en umhverfisráðuneytið leggur einnig til nokkurt fjármagn. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna annars staðar á þessu vefsvæði.
Um Sambandið
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráðstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíðar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
19.2.2010
Auglýsing um starf sérfræðings
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum verkefnum sveitarfélaga á sviði velferðarmála, svo sem húsnæðismálum og barnavernd. Sérfræðingurinn mun starfa með félagsþjónustunefnd sambandsins, sem hefur með höndum tillögugerð um áherslur og stefnumótun sveitarfélaganna í velferðarmálum. Um nýtt starf er að ræða sem tengist m.a. fyrirhuguðum flutningi á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí.
Leit
Leiðarkerfi
- Staðardagskrá 21
- Um Staðardagskrárvefinn
- Hvað er Sd21 ?
- Sd21 á Íslandi
- Staðardagskrár
- Sveitarfélög Sd21
- Ólafsvíkuryfirlýsingin
- Ráðstefnur 1999-2009
- Sd21 í fámennum sveitarfélögum
- Kynnisferðir erlendis
- Stýrihópur
- Stykkishólmsráðstefnan
- Tenglar
- Fróðleikur, greinar o.fl.
- Fréttir
- English
- Hafðu samband
- Sambandið




















