Hvað er Staðardagskrá 21?
Staðardagskrá 21 (Local Agenda 21) er áætlun sem öllum sveitarstjórnum heimsins er ætlað að gera í samræmi við ályktun Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiró 1992. Nánar tiltekið er hér um að ræða áætlun um þau verk sem vinna þarf í hverju samfélagi um sig til að nálgast markmiðið um sjálfbæra þróun á 21. öldinni, þ.e.a.s. þróun sem tryggir komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði.
Staðardagskrá 21 er með öðrum orðum heildaráætlun um þróun hvers samfélags um sig fram á 21. öldina. Áætlunin snýst ekki eingöngu um umhverfismál í venjulegum skilningi, heldur er henni ætlað að taka jafnframt tillit til efnahagslegra og félagslegra þátta. Í raun og veru er Staðardagskrá 21 fyrst og fremst velferðaráætlun.
Staðardagskrá 21 er ekki einkamál sveitarstjórna. Samkvæmt samþykkt Ríóráðstefnunnar ber að vinna verkið í samráði við íbúana á hverjum stað og með þátttöku atvinnulífs og félagasamtaka. Staðardagskrá 21 er nefnilega áætlun alls samfélagsins.
Vinnu við gerð Staðardagskrár 21 lýkur aldrei, þó að stórum áfanga sé náð þegar 1. útgáfa hennar hefur verið lögð fram og samþykkt í sveitarstjórn. Með samþykkt sveitarstjórnar er Staðardagskráin orðin að formlegu stefnumótunarplaggi, og þar með er kominn tími til að hrinda henni í framkvæmd. Auk heldur þarf Staðardagskráin að vera í stöðugri endurskoðun í takt við breytta tíma og nýjar áherslur. Staðardagskrá 21 er með öðrum orðum ekki bara skjal, og ekki bara umhverfisáætlun, heldur fyrst og fremst ferli.
Á haustmánuðum 1998 hófu íslensk sveitarfélög skipulagt starf við gerð Staðardagskrár 21.
Eftirfarandi fimm atriði hafa verið skilgreind sem meginþættir eða vegvísar fyrir Staðardagskrárstarfið:
- Heildarsýn og þverfagleg hugsun
- Virk þátttaka íbúanna
- Hringrásarviðhorf
- Tillit til hnattrænna sjónarmiða
- Áhersla á langtímaáætlanir
En hvað varð til þess að samfélög heimsins fóru að huga að áætlunargerð af þessu tagi? Til að skilja þá þróun betur er gagnlegt að huga að forsögu málsins, þ.e. brotum úr sögu umhverfismála á heimsvísu síðustu 40 ár.
Um Sambandið
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráðstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíðar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
10.3.2010
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins.




















