Beint á leiðarkerfi vefsins

Orð dagsins í mars 2004

25. mars 2004
Øyafestivalen í Osló, GRIP og Norska rokksambandið gáfu í gær út umhverfishandbók fyrir stórveislur og útihátíðir. Í bókinni er að finna ráð um hvaðeina sem varðar umhverfisþætti hátíðarhaldsins, þ.á.m. um innkaup og meðhöndlun úrgangs, auk lista yfir aðila sem selja vistvænar vörur og þjónustu. Í bókinni er jafnframt sýnt fram á að umhverfisstarfið þarf ekki að leiða til aukins kostnaðar.
Lesið fréttatilkynningu GRIP í gær

24. mars 2004
Í dag eru liðin 15 ár frá strandi olíuskipsins Exxon Valdez við strendur Alaska. Enn er hægt að finna olíupolla á ströndinni, og ýmsar tegundir lífvera, þ.á.m. sæotrar, straumendur og síld, líða enn fyrir afleiðingar þessa mesta olíuslyss í sögu Bandaríkjanna. Árið 1991 samþykkti Exxon olíufélagið að greiða 900 milljónir dollara, (tæpa 65 milljarða ísl. kr.) í bætur vegna tjóns á umhverfinu. Í þeim samningi fólst að ef fram kæmu frekari ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir árið 2006, mætti krefja félagið um sérstakar aukabætur upp á 100 milljónir dollara. Nú er tekist á um það hvort þetta ákvæði skuli taka gildi. Þess má geta, að í upphafi gerðu sérfræðingar ráð fyrir því að öll olía yrði horfin af ströndinni árið 1995, en á þeim tíma voru þó enn u.þ.b. 600 tonn af olíu til staðar. Talið er að samtals hafi um 50 milljón lítrar farið í sjóinn við strand skipsins.

Lesið frétt PlanetArk/Reuter í dag

23. mars 2004
Breski orkusparnaðarsjóðurinn (EST) býður nú breskum heimilium 50% styrk til kaupa og uppsetningar á sólarorkukerfum. Verð á slíkum kerfum fer þá niður í um 4.000-9.000 sterlingspund fyrir hvert heimili, (um 500.000-1.200.000 ísl. kr.), sem er talið vera nógu lágt til að kerfið verði hagkvæmt fyrir notandann. Að sögn forsvarsmanna sjóðsins ætti slíkt kerfi að geta mætt allt að 50% af orkuþörf venjulegs heimilis yfir árið, þar af allt að 25% yfir vetrarmánuðina, enda þurfa kerfin ekki beint sólskin til að framleiða orku. Þess má geta að fyrr á þessu ári hvatti Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna, til þess að sólarorkukerfi yrðu sett á öll ný íbúðarhús í borginni.
Lesið frétt EDIE 19. mars sl.

19. mars 2004
Yfirvöld í Mendocinosýslu í Kaliforníu hafa bannað alla ræktun á erfðabreyttum lífverum í sýslunni. Mendocino er fyrsta héraðið í Bandaríkjunum sem innleiðir slíkt bann.
Lesið frétt BiotechSweden 15. mars sl.

18. mars 2004
Eldhúsinnréttingar frá fyrirtækinu Marbodal í Svíþjóð eru þær einu sem standast umhverfis- og gæðakröfur Norræna Svansins. Fyrirtækið hefur nú fengið Svaninn á 17 gerðir eldhúsinnréttinga. Lím, litir og lakk í Svanmerktri eldhúsinnréttingu eru nánast laus við lífræn leysiefni og önnur efni sem skaðleg eru umhverfinu, timbrið hefur ekki verið meðhöndlað með varnarefnum og kemur ekki úr vernduðum skógum og spónaplöturnar eru framleiddar á orkusparandi hátt. Jafnframt er þess gætt að styrkur og ending málningar, lakks og annarra þátta sé að minnsta kosti sambærileg við aðrar innréttingar.
Lesið fréttatilkynningu Svansins í gær

17. mars 2004
Skotar telja mikil atvinnutækifæri felast í aukinni áherslu á sjálfbærni. Unnið er að gerð sérstakrar áætlunar um græn störf, sem ætlað er að herða á þessari þróun. Lewis Macdonald aðstoðaratvinnumálaráðherra segir að áherslan á sjálfbæra þróun gefi „Skotlandi tækifæri til að verða leiðandi á heimsvísu í nýjum og spennandi starfsgreinum og iðnaði; að skapa árangursríkara, öflugra og samkeppnishæfara hagkerfi, um leið og áhrifin á umhverfið eru takmörkuð“.
Lesið frétt EDIE 12. mars sl.

16. mars 2004
Tilbúin musk-efni eru ilmefni sem notuð eru í ýmsar snyrti- og hreinlætisvörur. Efnin brotna mjög hægt niður í náttúrnni.  Í nýrri norrænni rannsókn kemur fram að þessi efni finnast í seyru í umtalsverðu magni, en einnig m.a. í heimskautarefum á Svalbarða og í íslensku regnvatni. Nánari upplýsingar um málið er að finna í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar Musk Compounds in the Nordic environment. TemaNord 2004:503.
Lesið skýrsluna

15. mars 2004
Fyrir hvern ónýtan farsíma sem norskir notendur skila til endurvinnslu eru greiddar 50 norskar krónur (um 500 ísl. kr.) til heilbrigðismála barna í þróunarlöndunum, skv. samningi farsímafyrirtækja við þróunarsamtökin Plan. Þannig dugar einn ónýtur sími til að tryggja 8 börnum bóluefni gegn 6 algengustu barnasjúkdómunum

Lesið frétt Vesterålen-Online 1. mars sl.

12. mars 2004
Vatnið sem notað er á einum degi til að vökva golfvelli heimsins myndi nægja sem neysluvatn fyrir 4,7 milljarða manns þennan sama dag. Og vatnið sem er notað á einn golfvöll í Tailandi myndi duga fyrir 60.000 manna bæ. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri samantekt Worldwatch Institute um golfvelli, vatn og varnarefni. Þarna kemur einnig fram að í síðasta tölublaði tímaritsins Coastal Living var 61 mynd af golfvöllum, en aðeins ein af dýralífi strandsvæðis. 
Lesið samantekt Worldwatch Institute

10. mars 2004
Í árslok 2003 var uppsett afl í vindorkuverum Evrópu komið í 28,7 GW, sem samsvarar tæplega 42 Kárahnjúkavirkjunum. Aukingin á árinu 2003 var um 23%. Í löndum Evrópusambandsins er vindorkuframleiðslan komin í 2,4% af heildarraforkunotkun. Þýskaland er langstærsti vindorkuframleiðandinn, en þar var uppsett afl 14,6 GW í árslok 2003. Spánn er í öðru sæti með 6,2 GW og Danmörk í því þriðja með 3,1 GW.
Skoðið vindorkukort EWEA (pdf-skjal)

9. mars 2004
Farsímar veita fólki öryggi, frelsi og aukin félagsleg tengsl, en stuðla einnig að óöryggi, ótta við geislun, frelsisskerðingu og félagslegum vandamálum. Þetta eru niðurstöður nýrrar danskrar rannsóknar á viðhorfum fólks til farsíma. Almennt hefur fólk meiri áhyggjur af hugsanlegri geislun frá farsímamöstrum en frá símunum sjálfum, líklega vegna þess hversu litlu það fær ráðið um staðsetningu mastranna. Fólk kallar eftir meiri upplýsingum um aukaverkanir farsímanotkunar, en er jafnframt tortryggið gagnvart þeim upplýsingum sem það fær.
Lesið skýrsluna „Gemsaklípan“ (pdf-skjal)

8. mars 2004
Einn þeirra mælikvarða sem hægt er að beita til að leggja mat á umhverfisvitund þjóða, er fjöldi fyrirtækja sem hafa komið sér upp vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við staðalinn ISO14001.  Á Íslandi eru þessi fyrirtæki aðeins þrjú, nefnilega ALCAN, Borgarplast og Morgunblaðið.  Á þessu sviði stendur Ísland jafnfætis Alsír, Bahrain, Barbados, Guyana, Kúveit, Malawi og Mónakó. Í Íran eru hins vegar 98 fyrirtæki komin með vottun, 74 í Eistlandi, 56 í Víetnam, 40 í Costa Rica, 26 í Pakistan, 20 í Lichtenstein og 5 í Azerbaijan og Máritíus, svo dæmi séu tekin. Ísland er þó engan veginn neðst á listanum, því að á Grænlandi eru t.d. aðeins tvö fyrirtæki vottuð og eitt í Myanmar (áður Burma).  Í árslok 2003 voru 61.287 fyrirtæki í heiminum vottuð skv. ISO 14001 og hafði þá fjölgað um 158% á þremur árum!
Lesið samantekt ISO World
og skoðið „Orð dagsins“ 13. mars 2003

Síðast breytt 20. apríl 2004

Stjórnborð

Stærra letur Minna letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandið

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráðstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíðar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viðburðir

 «Mars 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiðarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáætlanaStefnumörkun 2008-2010Lýðræði í sveitarfélögumFramtíðarsýnSumarhátíðir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English