Veldu landshluta

Sameiginlegar upplýsingar

Sveitarfélögin hafa nánast frá upphafi byggðar á Íslandi verið grundvallareining í stjórnskipan landsins. Fyrstu rituðu heimildirnar um sveitarfélögin, eða löghreppana eins og þau hétu þá, er að finna í Grágás, lögbók Íslendinga frá 12. öld. Þar segir að í löghreppi skuli vera 20 bændur eða fleiri.

Tilvist sveitarfélaganna á Íslandi má rekja til þeirra lýðræðislegu hefða sem landnámsmenn þekktu til úr norrænni menningu fyrri heimkynna. Upphaflegt hlutverk sveitarfélaganna mótaðist á grundvelli samhjálpar. Þótt sjálfstæði löghreppanna hafi endanlega verið afnumið af Danakonungi árið 1809 höfðu þeir í raun glatað því miklu fyrr.

Sveitarfélögin voru síðan endurreist með tilskipun frá Kristjáni IX. Danakonungi 4. maí 1872 en þá var lagður grunnur að þeirri sveitarfélagaskipan sem gilti fram undir síðustu aldamót. Fyrstu sveitarstjórnarlögin voru sett árið 1905.

Sveitarfélögin í landinu eru 64 talsins.

Frá árinu 1950, þegar sveitarfélögin voru 229, hefur þeim því fækkað um 165.

Sameiningar sveitarfélaga

Frá árinu 1950 hefur sveitarfélögum á Íslandi fækkað um 165 úr 229 í 64.

Allt frá árinu 1990 hefur verið unnið að eflingu sveitarstjórnarstigsins með það að markmiði að fækka, stækka og styrkja möguleika sveitarfélaga á að vera sjálfbærar þjónustu- og rekstrareiningar.

Íbúafjöldi í sveitarfélögum 2022
Fjöldi sveitarfélaga frá 1872 - 2022

Október 2023

Samtal um sameiningar

  • Skorradalshreppur og Borgarbyggð.
    Samþykkt í hreppsnefnd Skorradalshrepps 18.10.2023
  • Árneshreppur og önnur sveitarfélög á Vestfjörðum.
    Ályktun í ágúst 2023
  • Sveitarfélagið Vogar og önnur sveitarfélög á Reykjanesi.
    Vangaveltur og samtal í september 2023

Stykkishólmsbær og Helgafellssveit

  • Stykkishólmsbær
  • Helgafellssveit
    • Sameiningin var samþykkt 26. mars 2022

Húnvetningur

  • Blönduósbær
  • Húnavatnshreppur
    • Sameiningin var samþykkt 19. febrúar 2022
    • Í skoðanakönnun sem fram fór 14. maí hlaut nafnið Húnabyggð flest atkvæði

Skagfirðingar

  • Akrahreppur
  • Sveitarfélagið Skagafjörður
    • Sameiningin var samþykkt 19. febrúar 2022
    • Í skoðanakönnun sem fram fór 14. maí hlaut Sveitarfélagið Skagafjörður flest atkvæði

Svalbarðshreppur og Langanesbyggð

  • Langanesbyggð
  • Svalbarðshreppur
    • Sameiningin var samþykkt 26. mars 2022

Snæfellingar

  • Eyja- og Miklaholtshreppur
  • Snæfellsbær
    • Sameiningu var hafnað 19. febrúar 2022

Sveitarfélög á Suðurlandi

  • Ásahreppur
  • Mýrdalshreppur
  • Rangárþing eystra
  • Rangárþing ytra
  • Skaftárhreppur
    • Sameiningin hlaut ekki samþykki allra sveitarfélaganna.

Þingeyingur

  • Skútustaðahreppur
  • Þingeyjarsveit
    • Sameining sveitarfélaganna var samþykkt.
    • Í skoðanakönnun sem fram fór í apríl 2022 hlaut nafnið Þingeyjarsveit flest atkvæði

Austur-Húnavatnssýsla

  • Blönduósbær
  • Húnavatnshreppur
  • Skagabyggð
  • Sveitarfélagið Skagaströnd
    • Sameiningin hlaut ekki samþykki allra sveitarfélaganna.

 

 

Sveitarstjórnarkosningar

Sveitarstjórnarkosningar fara fram á fjögurra ára fresti samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórnar á hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili í sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar er að finna hjá Landskjörstjórn á Ísland.is.

Síðustu sveitarstjórnarkosningar fóru fram árið 2022 og er kjörtímabil þeirra til ársins 2026.

Landshlutasamtök

Í 97. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 eru ákvæði um það, að sveitarfélögum sé „heimilt að starfa saman innan staðbundinna landshlutasamtaka sveitarfélaga er vinni að sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna í hverjum landshluta.“.

Landshlutasamtökin eru átta talsins. Þau eru frjáls samtök sveitarfélaganna og hafa þau öll sérstakan framkvæmdastjóra og skrifstofu. Landshlutasamtökin fara með byggðamál og sérstök hagsmunamál hvers landshluta. Gott samstarf er milli aðila og fulltrúar sambandsins sitja jafnan aðalfundi landshlutasamtakanna og formenn og framkvæmdastjórar þeirra eiga samkvæmt lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga sæti á landsþingum með tillögurétti og málfrelsi. Reglulega eru fundir haldnir með fulltrúum landshlutasamtakanna og stjórn sambandsins.

Hamraborg 9, 200 KÓPAVOGUR
Sími 564 1788 Bréfsími: 564 2988
Netfang: ssh@ssh.is
Veffang: http://www.ssh.is/
Framkvæmdastjóri: Páll Björgvin Guðmundsson, pallbg@ssh.is

SSH Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

 

Skógarbraut 945, 235 REYKJANESBÆ
Sími: 420 3288
Netfang: sss@sss.is
Veffang: http://www.sss.is/
Framkvæmdastjóri: Berglind Kristinsdóttir, berglind@sss.is

SSS Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 

Bjarnarbraut 8, 310 BORGARNES
Sími: 433 2310  Bréfsími: 437 1494
Netfang: ssv@ssv.is
Veffang: http://www.ssv.is/
Framkvæmdastjóri: Páll Brynjarsson

SSV Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Árnagötu 2-4, 400 ÍSAFJÖRÐUR
Sími 450 3000 Bréfsími: 450 3005
Netfang: fv@vestfirdir.is
Veffang: http://www.vestfirdir.is
Framkvæmdastjóri: Aðalsteinn Óskarsson

FV Fjórðungssamband Vestfirðinga

Höfðabraut 6, 530 HVAMMSTANGI
Sími: 455 2510 Bréfsími: 455 2509
Netfang:  ssnv@ssnv.is
Veffang: http://www.ssnv.is/
Framkvæmdastjóri: Katrín M. Guðjónsdóttir

SSNV Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Garðarsbraut 5, 640 HÚSAVÍK
Sími: 464 5412 / 464 5400
Netfang: ssne@ssne.is
Veffang: http://www.ssne.is
Framkvæmdastjóri: Albertína Friðbjörg Elíasdóttir

SSNE Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra  

Tjarnarbraut 39a, 700 EGILSSTÖÐUM
Sími: 472 1690 Bréfsími: 472 1691
Netfang: ssa@ssa.is
Veffang: www.austurbru.is
Verkefnastjóri: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, ssa@ssa.is

SSA Samband sveitarfélaga á Austurlandi

Austurvegi 56, 800 SELFOSS
Sími: 480 8200  Bréfsími: 480 8201
Netfang: sass@sudurland.is
Veffang: www.sass.is
Framkvæmdastjóri: Bjarni Guðmundsson

SASS Samtök sunnlenskra sveitarfélaga