Skólamál
Með flutningi alls reksturs grunnskólans til sveitarfélaganna árið 1996 er það nú hlutverk sambandsins að gæta hagsmuna sveitarfélaganna vegna málefna grunnskólans, túlka kjarasamninga við kennara fyrir hönd sveitarfélaganna og vera almennt í fyrirsvari fyrir sveitarfélögin vegna skólamála.
Aðalstarfsmenn skólamála innan Sambands íslenskra sveitarfélaga eru:
- Björk Ólafsdóttir, verkefnisstjóri
- Guðfinna Harðardóttir, sérfræðingur í kjaramálum kennara
- Svandís Ingimundardóttir skólamálafulltrúi
- Valgerður Freyja Ágústsdóttir sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði
- Tryggvi Þórhallsson lögfræðingur
Upplýsingar um skólamál eru m.a. að finna á:
- Heimasíðu Menntamálaráðuneytisins, þar sem allir grunnskólar landsins eru taldir upp og unnt er að flokka skólana niður eftir landshlutum og velja ýmsar upplýsingar s.s. veffang og netfang skólans.
- Vefslóðinni nýmenntastefna.is þar sem m.a. er að finna upplýsingar um nýja löggjöf og reglugerðir á sviði menntamála auk annarra hagnýtra upplýsinga.
- Vefslóðinni Menntagátt.is þar er að finna upplýsingar um vefsíður og netföng auk þess sem þar er m.a. hægt að flokka skólana niður eftir sveitarfélögum og landshlutum.
Ţá er Sambandi íslenskra sveitarfélaga gert skv. 10. greinar laga um grunnskólans að hafa „frumkvæði að lausn málefna grunnskólans sem varða fleiri en eitt sveitarfélag, ef þeim er ekki skipað með öðrum hætti í lögum, reglugerðum eða með samkomulagi aðila“. (Lög um grunnskóla númer 66/1995 10. grein).
Ţá eru á skrifstofu sambandsins:
- sinnt samskiptum við skólaskrifstofur og skólafulltrúa sveitarfélaga
- veittar upplýsingar og haldnar kynningar fyrir fulltrúa sveitarfélaga sem sinna málefnum grunnskólans m.a. með námskeiðshaldi
- útgáfa og viðhald „Handraða“, upplýsingarits um málefni grunnskólans
- Skólaskýrsla 2009
- Náum betri árangri, málþing um skólamál 2008
- Málstofa um skólamál 2008
- Norræn skólamálaráðstefna
- Skólaþing 2007
- Grunnskólaþing 2004
Um Sambandiđ
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráđstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíđar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
10.3.2010
Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins.


























