Landsţing
Landsþing hefur æðsta vald í málefnum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Landsþing kemur saman árlega, að jafnaði í mars eða apríl. Á því ári sem almennar sveitarstjórnarkosningar eru haldnar skal landsþing þó haldið í september eða október.
Kjör landsþingsfulltrúa
4. gr. laga sambandsins
Að afloknum almennum sveitarstjórnarkosningum kjósa hlutaðeigandi sveitarstjórnir fulltrúa á landsþing og gildir sú kosning fyrir kjörtímabil sveitarstjórnar.
· Sveitarfélag með allt að 1.000 íbúa kýs 1 fulltrúa.
· Sveitarfélag með allt að 3.000 íbúa kýs 2 fulltrúa.
· Sveitarfélag með allt að 5.000 íbúa kýs 3 fulltrúa.
· Sveitarfélag með allt að 10.000 íbúa kýs 4 fulltrúa
og síðan einn til viðbótar fyrir hvert byrjað tugþúsund umfram það.
Íbúafjöldi samkvæmt þessari grein skal miðaður við 1. desember ári áður en landsþing er haldið og skal miðað við endanlegar íbúatölur samkvæmt skráningu Hagstofu Íslands.
Varafulltrúar skulu kosnir jafnmargir og aðalmenn. Kosning fulltrúa fer eftir sömu reglum og gilda um kosningu nefnda samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Kjörgengir eru aðalmenn og varamenn í sveitarstjórn svo og framkvæmdastjórar sveitarfélaga.
Að kosningu lokinni, í síðasta lagi 15. júlí, tilkynnir oddviti sveitarstjórnar eða framkvæmdastjóri sveitarfélags skrifstofu sambandsins hver eða hverjir hafi verið kjörnir fulltrúar og varafulltrúar.
Fjöldi landsþingsfulltrúa úr hverju sveitarfélagi
Skjal með upplýsingum um fjölda landsþingsfulltrúa eftir sveitarfélögum frá 2006.
Upplýsingar frá fyrri landsþingum
- XXIII. landsþing 2009 - haldið 13. mars 2009
- XXII. landsþing 2008 - haldið 4. apríl 2008
- XXI. landsþing 2007 - haldið 23. mars 2007
- XX. landsþing 2006 - haldið 27.29. september 2006
- XIX. landsþing 2005 - haldið 18. mars 2005
- XVIII. landsþing 2004 - haldið 26. nóvember 2004
- XVII. landsþing 2002 - haldið 25.-27. september 2002
- Ályktanir XVI. landsþings 1998 - Fundargerð XVI. landsþings 1998
Lög Sambands íslenskra sveitarfélaga
Um Sambandiđ
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráđstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíđar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
10.3.2010
Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins.




















