Beint á leiđarkerfi vefsins

Verkefnisstjórn á sviđi úrgangsmála

Lögfrćđisviđ > Verkefnisstjórn á sviđi úrgangsmála

Sveitarfélög komu sér á árinu 2007 saman um að stofna til sérstaks verkefnis um hagsmunagæslu í úrgangsmálum, til að styrka stöðu sína í þessu mikilvæga verkefni almannaþjónustu. Um er að ræða tilraunaverkefni sem áætlað er að standi í þrjú ár. Verkefnið hófst um sl. áramót og stendur til 31. desember 2010. Aðilar að verkefninu eru Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög og fyrirtæki í eigu sveitarfélaga. Verkefninu er ætlað að sjá um eftirfarandi:

  • Vera leiðandi í undirbúningi stefnumótunar sambandsins í úrgangsmálum
  • Vera stjórn og starfsmönnum sambandsins til ráðgjafar um úrgangsmálefni
  • Vekja athygli á þróun og breytingum í úrgangsmálum, innanlands og erlendis, sem verkefnisstjórn telur þörf á að sambandið vinni að eða miðli upplýsingum um
  • Vekja athygli á málum í rekstri og starfsemi fyrirtækja sveitarfélaga á sviði úrgangsmála sem verkefnisstjórn telur að þarfnist úrlausnar á vettvangi sambandsins
  • Vera til ráðgjafar við undirbúning viðburða sambandsins á sviði úrgangsmála, svo sem ráðstefna og námskeiða

Nánari upplýsingar er að finna í neðangreindum málaflokkum:

Megináherslur

Meðhöndlun úrgangs á Íslandi
Skýrslur og rit

Dómar og úrskurðir

Landsáætlun  Svæðisáætlanir 
Af vettvangi CEMR

Regluverk ESB

Fréttir um úrgang Fróðleikur um úrgang 
Fundargerðir  Ráðstefnur og fundir

Verkefnisstjórn verkefnisins er ætlað að móta tillögur um leiðir til að efla hagsmunagæslu sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra í úrgangsmálum og vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsemi sambandsins í úrgangsmálefnum, málefnum Úrvinnslusjóðs og skilakerfa úrgangsefna.

 Skipan verkefnisstjórnar um aukna hagsmunagæslu íslenskra sveitarfélaga á sviði úrgangsmála:

  • Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU bs.,
  • Eiður Guðmundsson framkvæmdastjóri Flokkunar ehf. í Eyjafirði,
  • Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sorpeyðingar Suðurnesja,
  • Guðmundur Tryggvi Ólafsson, framkvæmdastjóri Sorpstöðvar Suðurlands,
  • Hrefna B. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands og
  • Unnur Ása Atladóttir verkefnisstjóri á umhverfismálasviði Fjarðabyggðar. Er í fæðingarorlofi, Katrín Ásgeirsdóttir, varamaður, tekur sæti Unnar Ásu á meðan.

Varamenn, í sömu röð og aðalmenn:

  • Friðrik Björgvinsson, Vestmannaeyjabæ
  • Hafsteinn Gunnarsson, Sorpsamlagi Þingeyinga
  • Haukur Ingi Einarsson, Sveitarfélaginu Hornafirði
  • Jón Örn Berndsen, Sveitarfélaginu Skagafirði
  • Ralf Trylla, Ísafirði
  • Katrín Ásgeirsdóttir, Fljótsdalshéraði
Síđast breytt 24. apríl 2009

Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

19.2.2010

Auglýsing um starf sérfrćđings

Merki sambandsins - lítiðSamband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum verkefnum sveitarfélaga á sviði velferðarmála, svo sem húsnæðismálum og barnavernd. Sérfræðingurinn mun starfa með félagsþjónustunefnd sambandsins, sem hefur með höndum tillögugerð um áherslur og stefnumótun sveitarfélaganna í velferðarmálum. Um nýtt  starf er að ræða sem tengist m.a. fyrirhuguðum flutningi á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí.

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English