Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir lögfrćđisviđ

Lögfrćđisviđ > Fréttir

5.2.2010

Viđbrögđ sveitarstjórna viđ synjun umhverfisráđherra á ađalskipulagstillögum

FlóahreppurSkeiða- og GnúpverjahreppurSveitarstjórnir Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa fjallað um þær ákvarðanir umhverfisráðherra að staðfesta ekki aðalskipulag Flóahrepps og breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í ákvörðunum ráðuneytisins eru skipulagstillögurnar hvorki taldar vera samrýmanlegar forsendum og ákvæðum 34. gr. skipulags- og byggingarlaga né meginmarkmiðum þeim sem birtast í 1. gr. laganna og lúta að réttaröryggi vegna skipulagsgerðar.

Í fundargerð sveitarstjórnar Flóahrepps frá 3. febrúar sl. segir meðal annars eftirfarandi:

„Sveitarstjórn Flóahrepps lýsir undrun sinni á synjun umhverfisráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins og telur að rétt hafi verið staðið að gerð og samþykkt þess. Í ljósi þeirra röksemda sem ráðherra byggir synjun sína á vakna spurningar um hvort öll sveitarfélög á landinu sitji við sama borð þegar kemur að skipulagsmálum. Lengi hefur tíðkast að sveitarfélög víða um land hafi haft þann háttinn á að láta aðila sem óska eftir breytingum á deiliskipulagi og aðalskipulagi bera hluta af kostnaði sem hlýst af skipulagsvinnunni. Hefur þetta fram til þessa verið talið heimilt og ekki verið gerðar athugasemdir af hálfu ráðherra. Þá gerir sveitarstjórn alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð ráðherra. Bæði tók málið mjög langan tíma hjá ráðherra auk þess sem sveitarstjórn var ekki kynnt bréf og gögn frá aðilum, sem vísað er til í ákvörðun ráðherra en þetta eru bréf og gögn sem bárust ráðuneytinu eftir að lögformlegum athugasemdafresti var lokið. Sveitarstjóra og oddvita er falið að skoða nánar í samráði við lögmann sveitarfélagsins þær leiðir sem færar eru í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í málinu í kjölfar synjunar ráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins."

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur sent umhverfisráðherra bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvörðun ráðherra. Í því segir meðal annars:

„Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps harmar þá stöðu sem upp er komin í málinu eftir fjögurra ára ferli. Sveitarstjórnin hefur síðan árið 2006 lagt mikla vinnu í málið og unnið að því af heilindum með aðstoð hlutlausra sérfræðinga, með hagsmuni íbúa sveitarfélagsins og landsmanna að leiðarljósi. Afgreiðsla umhverfisráðherrans, með röngum fullyrðingum og án rökstuðnings um efnishlið málsins, hefur valdið sveitarstjórninni miklum vonbrigðum. Óvarleg ummæli ráðherrans um svo stórt mál eftir ákvörðunina m.a. að niðurstaðan hafi verið augljós og að ákvörðunin komi á heppilegum tíma fyrir sveitarstjórnarkosningar eru að mati sveitarstjórnar afar óviðeigandi af hálfu ráðherra. Ef þetta var svona augljóst af hverju tók ráðherra þá 14 mánuði að afgreiða málið?

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur falið lögmanni sínum að skoða réttarstöðuna í málinu og mun gefa sér tíma til að fara yfir það. Sveitarstjórnin áréttar beiðni sína um fund með ráðherra til að fara yfir málið en þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hefur ráðherrann ekki gefið sveitarstjórninni kost á fundi.

Sveitarstjórnin vill jafnframt minna á þá sérkennilegu stöðu sem sveitarstjórnin er í, í málinu. Í fyrsta lagi er búið að samþykkja skipulag með þessum virkjunum í sveitarfélaginu hinu megin árinnar, staðfest af umhverfisráðherra. Umhverfisráðherra hefur úrskurðað um að framkvæmdin samræmist lögum um mat á umhverfisáhrifum. Aðalskipulag sveitarfélagsins, sem staðfest er af umhverfisráðherra, gerir ráð fyrir virkjunum á umræddum stað en eingöngu var eftir að samþykkja landnotkunina með nákvæmum hætti. Sveitarfélagið og framkvæmdaraðili voru ekki sammála um hvort virkjunin ætti að vera í einu eða tveimur þrepum. Framkvæmdaraðilinn, sem er í eigu ríkisins, sækist eftir framkvæmdum en svo virðist sem eigandi hans leggist gegn þeim. Þá ákveður ráðherra, sem hluti ríkisvaldsins, sem er eigandi Landsvirkjunar, að allur kostnaður vegna málsins skuli lagður á sveitarfélagið, sem hefur engra hagsmuna að gæta af framkvæmdinni, á þeim forsendum að sú niðurstaða leiði til réttaröryggis. 

Áður en málinu verður fram haldið krefst sveitarstjórnin svara við því af hálfu ríkisstjórnar Íslands, sem eiganda Landsvirkjunar, hvort stefna ríkisstjórnarinnar sé í samræmi við stefnu Landsvirkjunar um að virkja á umræddu svæði."

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa rætt málið óformlega við Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og látið honum í té upplýsingar sem ráðherra óskaði eftir. Ráðherra sýndi sjónarmiðum sveitarfélaganna mikinn skilning og gerði hann ráð fyrir að málið yrði rætt í ríkisstjórninni í tengslum við fyrirhugað frumvarp til skipulagslaga sem umhverfisráðherra hyggst leggja fram á Alþingi.

Bréf umhverfisráðherra til Flóahrepps 
Bréf umhverfisráðherra til Skeiða- og Gnúpverjahrepps 


Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English