Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir lögfrćđisviđ

Lögfrćđisviđ > Fréttir

3.2.2010

Mikill áhugi sveitarfélaga á styrkjum til ađ efla ţjónustu viđ langveik og ofvirk börn

Um þrjátíu sveitarfélög og samtök þeirra sóttu um styrki til tæplega áttatíu verkefna í tengslum við átak sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu í heimabyggð fyrir langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Að átakinu standa félags- og tryggingamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga. Verkefnisstjórn skipuð fulltrúum þessara aðila auglýsti eftir styrkumsóknum í desember síðastliðnum og rann umsóknarfrestur út 27. janúar. Áhersla var lögð á að sveitarfélögin gætu sótt um styrki í samvinnu við félagasamtök og einstaklinga og eru margar umsóknanna byggðar á slíkri samvinnu. 

Markmið með átakinu er að tryggja þjónustu í samræmi við þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra, óháð því hvar þjónustan er flokkuð í stjórnkerfinu. Áherslan er lögð á börnin sem þurfa þjónustunnar með, en ekki á hlutverk hvers ráðuneytis um sig. Ráðuneytin þrjú leggja öll fé til þessa verkefnis í sameiginlegan sjóð og eru 80 milljónir króna til úthlutunar.

Verkefnisstjórnin mun fara yfir styrkumsóknir sveitarfélaganna á næstunni og verða ákvarðanir um úthlutanir kynntar strax og þær liggja fyrir.


Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English