Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir lögfrćđisviđ

Lögfrćđisviđ > Fréttir

3.2.2010

Dagur leikskólans verđur haldinn hátíđlegur 5. febrúar

Dagur leikskólansDagur leikskólans er 6. febrúar ár hvert en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og halda því í ár upp á 60 ára afmæli sitt jafnframt.  Félag leikskólakennara í samstarfi við menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli hrundu verkefninu af stað árið 2008 og haldið hefur verið upp á daginn síðan og með því stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og kynningu þess út á við.

En þar sem daginn ber upp á laugardag í ár munu leikskólar halda hann hátíðlegan nk. föstudag, 5. febrúar og hafa um það frjálsar hendur hvernig þeir gera sér dagamun í tilefni dagsins. Útfærslur verið afar fjölbreytilegar undanfarin ár. Sem dæmi má nefna að gefin hafa verið út veggspjöld með myndum af börnum og upplýsingum um hvernig þau læra í leikskólanum, gerður bæklingur um leikskólann, farnar meðmælagöngur, foreldrum boðið í kaffi og haldnar listasýningar. Menntamálaráðuneytið gaf út bæklinginn „Dagur leikskólans" fyrsta árið sem haldið var upp á Dag leikskólans og er hann aðgengilegur á rafrænu formi á netslóðinni  http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf.

Sveitarstjórnar- og fræðslunefndarfólk er hvatt til þess að fylgjast vel með starfsemi leikskólanna þennan dag og líta í heimsókn í samráði við stjórnendur og starfsfólk skólanna. Samband íslenskra sveitarfélaga sendir Félagi leikskólakennara árnaðaróskir í tilefni 60 ára afmælis samtaka leikskólakennara.


Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English