Launanefnd sveitarfélaga
Samkvæmt samþykktum um Launanefnd sveitarfélaga frá í september 2002 er hlutverk hennar:
- að gæta hagsmuna sveitarfélaganna gagnvart samtökum þeirra launþega, sem þau ráða til starfa, sérstaklega að því er varðar kaup og kjör.
- að koma fram sem samningsaðili fyrir hönd sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana og hagsmunasamtaka eftir því sem þessir aðilar gefa nefndinni umboð til eða leiðir af lögum.
- að vinna að því að samræma afstöðu sveitarfélaganna til kjarasamninga og að móta stefnu í kjaramálum.
- að vinna að því að leysa með samningum ágreiningsmál á milli sveitarfélaganna og viðsemjenda þeirra.
Launanefnd sveitarfélaga fellur undir starfssvið kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Helstu starfsmenn hennar eru Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs, Guðfinna Harðardóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun, Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir, lögfræðingur, Benedikt Þór Valsson, hagfræðingur, Guðrún A. Sigurðardóttir, starfsmatsráðgjafi og Berglind Eva Ólafsdóttir, starfsmatsráðgjafi. Lögfræðisvið Sambands íslenskra sveitarfélaga sinnir einnig störfum fyrir nefndina, sérstaklega hvað varðar ráðgjöf vegna lögfræðilegra þátta er lúta að túlkun og framkvæmd kjarasamninga.
Um Sambandiđ
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna
Fundir og ráđstefnur
9.3.2010
SAMSTARF til framtíđar
Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Tilkynningar
19.2.2010
Auglýsing um starf sérfrćđings
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum verkefnum sveitarfélaga á sviði velferðarmála, svo sem húsnæðismálum og barnavernd. Sérfræðingurinn mun starfa með félagsþjónustunefnd sambandsins, sem hefur með höndum tillögugerð um áherslur og stefnumótun sveitarfélaganna í velferðarmálum. Um nýtt starf er að ræða sem tengist m.a. fyrirhuguðum flutningi á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí.




















