Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir hag- og upplýsingasviđ

8.2.2010

Fréttatilkynning vegna ákvörđunar ráđherra um fjárhaldsstjórn Sveitarfélagsins Álftaness

Sveitarfélagið Álftanes RéttBæjarstjórn Álftaness hefur nú móttekið tilkynningu ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Í tilkynningunni kemur fram að ráðherra hefur tekið ákvörðun um að setja sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Mun fjárhaldsstjórnin verða skipuð hið fyrsta og taka við fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins.

Í ákvörðun ráðherra er aukinheldur lagt til að samkomulag verði gert milli fjárhaldsstjórnar og bæjarstjórnar Álftaness en ekki eru fordæmi fyrir slíku samkomulagi. Mikilvægt er að í samkomulagi þessu verði samstarf bæjarstjórnar og fjárhaldsstjórnar skýrgreint, svo vinna megi hratt og fumlaust í málefnum Álftnesinga.

Niðurstaða ráðherra kemur ekki á óvart enda hafði bæjarstjórn komist að þeirri niðurstöðu, í skýrslu sinni frá 27. janúar s.l., að sveitarfélagið myndi ekki vinna sig úr þeim fjárhagsvanda sem það stæði frammi fyrir án utanaðkomandi aðstoðar. Því miður er fjárhagsstaða sveitarfélagsins orðin slík að skipa þarf sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn. Bæjarstjórn mun, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, starfa af ábyrgð sem fyrr og vinna með fjárhaldsstjórninni að lausn á fjárhagsvanda sveitarfélagsins og gæta hagsmuna og velferð Álftnesinga í hvívetna.  

Álftnesingar munu vonandi ekki finna fyrir stjórnkerfisbreytingum við þessa tilhögun en áfram verður stjórnsýslan starfrækt með venjuhelguðum hætti.

Bæjarstjórn Álftaness hvetur Álftnesinga til bjartsýni og samstöðu, þrátt fyrir erfiða tíma.

8. febrúar 2010

f.h. bæjarstjórnar Álftaness
Pálmi Þór Másson, bæjarstjóri


Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English