Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir hag- og upplýsingasviđ

18.3.2010

Góđ afkoma Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

Tekjuafgangur af rekstri Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. árið 2009 var 1.656 m.kr. á móti 1.225 m.kr. árið áður. Háir vextir á innlendum markaði sem og mikil verðbólga skiluðu mjög góðri afkomu en eignir sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum. Ávöxtun á lausu fé var einnig framúrskarandi, en það var svo til allt varðveitt í Seðlabankanum.

10.3.2010

Tillaga um ársfjórđungsleg skil úr bókhaldi sveitarfélaga

Dreift hefur verið á Alþingi lagafrumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem felur í sér að sveitarfélögum verði gert að skila ársfjórðungslega upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga.

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

25.2.2010

Vinnufundur um tilfćrslu ţjónustu viđ fatlađa til sveitarfélaga

Miðvikudaginn 24. febrúar 2010 hélt Samband íslenskra sveitarfélaga vinnufund, í samvinnu við verkefnisstjórn um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði velferðarmála, um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Tilgangur fundarins var að miðla upplýsingum og leggja grunninn að öflugu starfi sveitarfélaga fram til þess tíma sem þau taka við þjónustunni. Á fundinum fór m.a. fram umræða í vinnuhópum um stærð þjónustusvæða og mismunandi rekstrarform þjónustunnar og einnig kynntu fulltrúar allra landshlutasamtaka stöðu vinnunnar á sínu svæði.

25.2.2010

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. febrúar um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum.

19.2.2010

Auglýsing um starf sérfrćđings

Merki sambandsins - lítiðSamband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum verkefnum sveitarfélaga á sviði velferðarmála, svo sem húsnæðismálum og barnavernd. Sérfræðingurinn mun starfa með félagsþjónustunefnd sambandsins, sem hefur með höndum tillögugerð um áherslur og stefnumótun sveitarfélaganna í velferðarmálum. Um nýtt  starf er að ræða sem tengist m.a. fyrirhuguðum flutningi á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí.

16.2.2010

Stađgreiđsla 2009

Uppgjör á staðgreiðslu sveitarfélaga 2009 liggur nú fyrir. Hægt er að nálgast uppgjörið hér.

10.2.2010

Fjárhaldsstjórn tekur til starfa í Sveitarfélaginu Álftanesi

Sveitarfélagið Álftanes RéttFjárhaldsstjórn fyrir Sveitarfélagið Álftanes hefur tekið formlega til starfa. Auglýsing um skipan fjárhaldsstjórnarinnar birtist í Stjórnartíðindum í gær. Fjárhaldsstjórnin tekur við stjórn fjármála sveitarfélagsins og má enga greiðslu inna af hendi úr sveitarsjóði nema með samþykki hennar, segir meðal annars í 78. grein sveitarstjórnarlaganna. Þar segir einnig: ,,Fjárhaldsstjórn skal rannsaka fjárreiður sveitarfélagsins og allan rekstur þess og gera nýja áætlun um tekjur og gjöld sveitarfélagsins fyrir næstu tvö fjárhagsár."

8.2.2010

Fjárhaldsstjórn skipuđ vegna Sveitarfélagsins Álftaness

Sveitarfélagið Álftanes RéttKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að fara að tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og með vísan til 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness.

8.2.2010

Fréttatilkynning vegna ákvörđunar ráđherra um fjárhaldsstjórn Sveitarfélagsins Álftaness

Sveitarfélagið Álftanes RéttBæjarstjórn Álftaness hefur nú móttekið tilkynningu ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Í tilkynningunni kemur fram að ráðherra hefur tekið ákvörðun um að setja sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Mun fjárhaldsstjórnin verða skipuð hið fyrsta og taka við fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins.

Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English