Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2018

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2018. Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 77 umsækjendum upp á rúmar 101 milljón króna.

Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2018. Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 77 umsækjendum upp á rúmar 101 milljón króna. Ákveðið var að veita öllum verkefnum styrki og nam heildarfjárhæð styrkloforða kr. 47.691.000. Bréf með niðurstöðu úthlutunar hafa verið send umsækjendum.