Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir

Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2018-2019. Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2018.

Merki sambandsinsStjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2018-2019. Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2018.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast:

  • bekkjarbrag
  • lærdómssamfélaginu
  • foreldrasamvinnu

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.

Lesa meira.