Úrbóta krafist vegna framkvæmdar á atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga telur óásættanlegt að skortur á þjónustu af hálfu sýslumanna verði til þess að draga úr kjörsókn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Gerir stjórnin þá kröfu til dómsmálaráðuneytisins og sýslumannsembætta að þau tryggi að skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu henti íbúum í hverjum landshluta, án þess að þeir þurfi að ferðast um langan veg.

Stjórn sambandsins fjallaði á fundi sínum í dag um ályktun sveitarstjórnar Langanesbyggðar frá því í gær, þar sem hún mótmælir harðlega þeirri mismunun sem kjósendur dreifðari byggða búi við vegna takmarkaðra möguleika á að greiða atkvæði utan kjörfundar.

Auk þess sem tekið er undir ályktun sveitarstjórnar Langanesbyggðar, samþykkti samþykkti stjórn sambandsins að viðræður hefjist sem fyrst á milli sambandsins, dómsmálaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Þjóðskrár Íslands um nauðsynlegar úrbætur á kosningalöggjöf og framkvæmd kosninga. Í þeim viðræðum vill stjórnin að horft verði sérstaklega til þess, hvernig auka megi kosningaþátttöku.

Í heild sinni er samþykkt stjórnar sambandsins um málið, sem gerð var á 860. fundi hennar í dag, eftirfarandi:

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir þá kröfu til dómsmálaráðuneytisins og sýslumannsembætta að þau tryggi að skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu henti íbúum í hverjum landshluta án þess að þeir þurfi að ferðast um langan veg. Jafnframt þarf að tryggja að sjómenn eigi kost á því að greiða atkvæði utan kjörfundar.  Óásættanlegt er að skortur á þjónustu af hálfu sýslumanna verði til þess að draga úr kjörsókn.  

Stjórn sambandsins telur mikilvægt að hafnar verði sem fyrst viðræður á milli sambandsins, dómsmálaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Þjóðskrár Íslands um nauðsynlegar úrbætur á kosningalöggjöf og framkvæmd kosninga. Í þeim viðræðum verði sérstaklega horft til þess á hvern hátt sé hægt að auka kosningaþátttöku.