Áreitni – NEI TAKK!

Aðilar vinnumarkaðarins hafa, ásamt fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, undirritað sameiginlega viljayfirlýsingu gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirritaði fyrir hönd sveitarfélaga.

Sattmali-gegn-einelti,-areitni-og-ofbeldiAðilar vinnumarkaðarins hafa, ásamt fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, undirritað sameiginlega viljayfirlýsingu gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirritaði fyrir hönd sveitarfélaga.

Vinnueftirlitið og velferðarráðuneyti fylgdu undirrituninni eftir með sameiginlegum morgunverðarfundi sem fram fór á Grand hótel í morgun undir yfirskriftinni – Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK!

Öllum stendur til boða að gerast aðilar að viljayfirlýsingunni með rafrænni undirritun á vef vinnueftirlitsins. Eru sveitarfélög og stofnanir þeirra hvött til að kynna sér málið.

Morgunverðarfundurinn var haldinn til að vekja athygli á mikilvægi þess að efla forvarnir á sviði vinnuverndar með sérstaka áherslu á einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Fundurinn fór fram að frumkvæði stjórnar Vinnueftirlits ríkisins þar sem sæti eiga fulltrúar stærstu samtaka aðila vinnumarkaðarins auk fulltrúa ráðherra. Fulltrúi sambandsins í stjórn Vinnueftirlitsins er Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs.

Sattmali-undirritunFrá undirritun viljayfirlýsingarinnar á Grand hótel í morgun. Sjá má Halldór Halldórsson, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga, lengst til vinstri. (Ljósm. IH)

Viljayfirlýsing um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum:

Íslensk lög og reglur kveða á um að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi á vinnustöðum skuli ekki liðið. Komi það upp skal bregðast við því með markvissum hætti. Öryggiskennd og góður starfsandi skipta sköpum fyrir vellíðan starfsmanna. Á vinnustaðnum eigum við góð samskipti og virðum eftirfarandi sáttmála:

  • Við þekkjum stefnu og viðbragðsáætlun vinnustaðarins gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi og erum meðvituð um skyldur okkar.
  • Við líðum ekki einelti, áreitni eða ofbeldi, beitum því ekki og vitum að meðvirkni með geranda getur skaðað starfsmenn og vinnustað okkar.
  • Við berum sameiginlega ábyrgð á vinnuumhverfinu og leggjum okkar af mörkum til að bæta það enn frekar.
  • Við erum ólík, með mismunandi bakgrunn og lífsskoðanir, en sýnum hvert öðru virðingu í öllum samskiptum.
  • Við skiljum að upplifun af samskiptum er mismunandi og gerum ekki lítið úr viðbrögðum og tilfinningum annarra.
  • Við ræðum um framkomu sem okkur mislíkar og tökum upp varnir fyrir þá sem brotið er gegn.
  • Við tökum tillit til ábendinga um að við getum bætt framkomu okkar.
  • Við sýnum öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum.

Sjá upptöku