Heilsa, hamingja og vellíðan með heimsmarkmiðunum

Í tilefni af alþjóðlega hamingjudeginum, þann 20. mars, fer fram málþing sem helgað verður heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til 2030 og Heilsueflandi samfélagi um vellíðan fyrir alla.

Í tilefni af alþjóðlega hamingjudeginum, þann 20. mars, fer fram málþing sem helgað verður heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til 2030 og Heilsueflandi samfélagi um vellíðan fyrir alla.

Á málþinginu verða m.a. kynntar nýjar niðurstöður frá Embætti landlæknis um stöðu heilsu, hamingju og vellíðanar í stærstu sveitarfélögum landsins og velt upp hversu langt við erum komin í því að gera hamingju, heilsu og vellíðan að markmiði í stefnum stjórnvalda.

Enn fremur verður farið yfir hvernig sænsk sveitarfélög hafa unnið með heimsmarkmiðin og hvaða tækifæri íslensk sveitarfélög sjá með tilliti til heimsmarkmiðanna og Heilsueflandi samfélags.

Málþingið hefst kl. 12:30 með ávarpi frá Elizu Reid forsetafrú og vendara Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Á meðal fyrirlesara eru Dr. Kai Ruggeri, aðstoðarprófessor við Columbia háskóla Mailman School of Public Health í New York og stjórnandi rannsóknarhóps um stefnumótun við sálfræðideild Cambridge háskóla. Sérsvið hans er m.a. áhrif efnahagsstefnu á vellíðan.

Þá mun Fredrik Lindencrona, frá sambandi sænskra sveitarfélaga, miðla af reynslu Svía við innleiðingu heimsmarkmiðanna.

Aðstandendur málþingsins eru forsætisráðuneytið, Embætti landlæknis, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntun Háskóla Íslands.

Allir eru velkomnir og þátttaka er án endurgjalds. Háskóli Íslands mun streyma frá málþinginu.