Hvert er förinni heitið?

Málþingið um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk hefst á Grand hótel kl. 13:00 í dag. Málþingið er samvinnuverkefni sambandsins, ÖBÍ og velferðaráðuneytisins. Yfirskrift málþingsins er Hvert er förinni heitið? og er tilgangur þess að fjalla um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk m.a. með tengingu við byggðaáætlun og þjónustu í dreifbýli.

Málþingið um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk hefst á Grand hótel kl. 13:00 í dag. Málþingið er samvinnuverkefni sambandsins, ÖBÍ og velferðaráðuneytisins.

Yfirskrift málþingsins er Hvert er förinni heitið? og er tilgangur þess að fjalla um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk m.a. með tengingu við byggðaáætlun og þjónustu í dreifbýli. Fjallað verður um 20. gr. sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks, reynslu sveitarfélaga af fyrirkomulagi akstursþjónustu og sagt frá áskorunum sem eru til staðar og mögulegar lausnir til úrbóta ræddar þar sem þörf er á.

Málþinginu er streymt og má nálgast streymið hér á vef sambandins. Erindi á málþinginu verða rit- og táknmálstúlkuð.