Beint á leiđarkerfi vefsins

Allar fréttir

Fréttir > Allar fréttir

20.1.2010

Dagur leikskólans 6. febrúar

Ţann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur", foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum. Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.

Við minnum á að hægt er að nálgast bæklinginn sem gefinn var út fyrsta árið sem dagurinn var haldinn, á netslóðinni http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf

Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda degi leikskólans á lofti og vonumst eftir góðri þátttöku.

Við bjóðum góðan dag, alla daga

Hrafnhildur Karlsdóttir
Formaður kynningarnefndar Félags leikskólakennara

Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti

Svandís Ingimundardóttir
Skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga

Sjöfn Þórðardóttir
Formaður Heimilis og skóla

Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   

Kosning.isEfnahagsvandinn - fáđu svörStarfsmatLánasjóđur sveitarfélagaLocal Agenda 21Skráđu ţig á póstlistannVinabćjarsamskipti

Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English