Beint á leiđarkerfi vefsins

Samband íslenskra sveitarfélaga

Fréttir

Tilkynningar | Eldri fréttir

11.3.2010

Fréttabréf kjarasviđs

Kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að gefa út fréttabréf. Tilgangurinn með útgáfu þess er að efla upplýsingastreymi um kjaramál til stjórnenda, launafulltrúa og annarra sem að starfsmannamálum og framkvæmd kjarasamninga koma hjá sveitarfélögunum.

10.3.2010

Tillaga um ársfjórđungsleg skil úr bókhaldi sveitarfélaga

Dreift hefur verið á Alþingi lagafrumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem felur í sér að sveitarfélögum verði gert að skila ársfjórðungslega upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga.

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

9.3.2010

Sköpum ný störf - atvinna fyrir alla

SASamtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 12. mars um stöðu atvinnumála og horfurnar framundan. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00.  Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir stefnumörkun samtakanna Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins en auk hans flytja erindi  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir.

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

8.3.2010

Umrćđa á Alţingi um frumvarp til skipulagslaga

Á þingfundi sem hefst kl. 15 í dag eru á dagskrá frumvarp til skipulagslaga, frumvarp til laga um mannvirki og frumvarp til laga um breytingar á lögum um brunavarnir. Vinna við gerð ofangreindra frumvarpa hófst árið 2002 og hefur Samband íslenskra sveitarfélaga átt bæði formlega aðkomu að gerð þeirra með setu í nefndum og óformlega aðkomu með viðræðum við umhverfisráðuneytið eftir að nefndavinnu lauk. Sambandið gerði allmargar athugasemdir við frumvörpin á fyrri stigum, ekki síst við ákvæði III. kafla frumvarps til skipulagslaga, sem fjallar um landsskipulagsstefnu.

8.3.2010

Opinn kynningarfundur Rammaáćtlunar

himg1Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar í Skriðu, húsakynnum Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Þar verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á síðu sérsviði. Fundurinn verður sendur út á netinu og er aðgangur að útsendingunni um vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is

3.3.2010

Niđurstöđur Forvarnardagsins sendar til sveitarfélaga

Forvarnardagurinn var haldinn í fjórða sinn miðvikudaginn 30. september 2009 að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands auk lyfjafyrirtækisins Actavis, sem er sérstakur stuðningsaðili verkefnisins.

26.2.2010

Skipulagsvefsjá á vef Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur opnað svokallaða Skipulagsvefsjá sem er rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni. Með tímanum verður hægt að nálgast þar allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og stofnunin hefur fengið til varðveislu. Í nokkrum tilfellum er einnig hægt að nálgast skipulagsáætlanir samkvæmt eldri lögum. Nánari leiðbeiningar eru að finna í Skipulagsvefsjánni.

26.2.2010

Nćr allir kennarar í Reykjavík eru međ kennsluréttindi

Samkvæmt frétt Hagstofu Íslands um starfsfólk í grunnskólum haustið 2009 hefur hlutfall kennara með réttindi aldrei mælst hærra. Undanfarin 10 ár hefur hlutfall kennara með réttindi verið 80-87%. Haustið 2009 voru ríflega níu af hverjum tíu kennurum með kennsluréttindi. Haustið 2008 voru 776 manns við kennslu án kennsluréttinda en haustið 2009 er samsvarandi tala komin niður í 437. Hæst er hlutfall réttindakennara á landinu á höfuðborgarsvæðinu.

Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

10.3.2010

Ađalfundur Lánasjóđs sveitarfélaga ohf.

LS ohfAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fyrir árið 2009 verður haldinn föstudaginn 26. mars 2010 kl. 15:00 á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu í Reykjavík. Framkvæmd á kjöri á aðalfundi fer samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum sjóðsins. 

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   

Kosning.isEfnahagsvandinn - fáđu svörStarfsmatLánasjóđur sveitarfélagaLocal Agenda 21Skráđu ţig á póstlistannVinabćjarsamskipti

Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English