Beint á leiđarkerfi vefsins

Stađardagskrá 21

Stađardagskrá 21
Orddagsinssmall

23. desember 2009
kerti2009Orð dagsins óska lesendum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Um leið þakka Orðin fyrir einkar ánægjulega samfylgd á árinu 2009 og öll árin þar á undan. Nú verða tímamót í Staðardagskrárstarfinu á Íslandi,
ţar sem samningar um starfið renna út um áramótin. Á næstunni verður fjallað um áframhald á samstarfi Sambands íslenskra sveitarfélaga, umhverfisráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins um sjálfbæra þróun í íslenskum byggðum. Ákvörðun mun væntanlega liggja fyrir í febrúar og verður þá kynnt. Jafnframt munu þá framtíðarhorfur Orða dagsins skýrast.

22. desember 2009
Svanen julMeð breyttum viðmiðunarkröfum sem samþykktar voru á dögunum, verður nú hægt að sækja um vottun Norræna svansins fyrir fjölbýlishús og leikskóla, en hingað til hafa viðmiðunarkröfur fyrir hús aðeins náð til einbýlishúsa, parhúsa og raðhúsa. Til að geta fengið Svaninn þurfa hús að nýta orku vel, vera laus við hættuleg efni o.s.frv. Leikskólar þurfa einnig að uppfylla skilyrði um heilnæmt inniloft, svo dæmi sé tekið. Hingað til hafa 12 aðilar fengið Svansvottun á húsbyggingar sínar, þar af 9 í Danmörku, 2 í Noregi og 1 í Svíþjóð.
Lesið frétt á heimasíðu Svansins í Noregi 17. des. sl.
og skoðið einnig heimasíður Svansins í Danmörku og í Svíþjóð
    

17. desember 2009
Planet BÁætlað er að kolefnisfótspor loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn (COP-15) verði jafnstórt og árlegt kolefnisfótspor 2.300 Bandaríkjamanna eða 660.000 Eþíópíumanna. Samtals er áætlað að 46.200 tonn af koltvísýringi sleppi út í andrúmsloftið vegna ráðstefnuhaldsins. Þar af koma 40.500 tonn frá flugferðum þátttakenda, en 5.700 tonn frá athöfnum á staðnum. Hluti af síðarnefndu losuninni kemur til vegna illa einangraðs bráðabirgðahúsnæðis, sem er hitað með olíu. Mælt á þessum mælikvarða er COP-15 loftslagsskaðlegasta loftslagsráðstefna sem haldin hefur verið, en þess ber að gæta að hún er jafnframt sú langfjölmennasta.
Áætlað er að á hverjum degi fari um 18.000 manns um ráðstefnusvæðið.
Lesið frétt PlanetArk/Reuter í gær

16. desember 2009
Řyafestivalen 2009 GHRokkhátíðin Řyafestivalen fékk í gær afhenta viðurkenningu sem grænasta fyrirtæki Oslóarborgar 2009. Umhverfisáherslur hafa löngum verið í brennidepli hjá skipuleggjendum hátíðarinnar. Einnig hafa forsvarsmenn Řyafestivalen verið einkar duglegir við að upplýsa gesti sína og aðra um umhverfismál og sjálfbæra þróun. Þeir hafa m.a. nýtt nær alla fjölmiðlaumfjöllun um hátíðina til að koma á framfæri upplýsingum um lífræn matvæli, um umhverfisvottun, mikilvægi úrgangsflokkunar o.s.frv. Þannig hefur Řyafestivalen orðið fyrirmynd á þessu sviði og væntanlega haft umtalsverð áhrif á viðhorf ungs fólks til umhverfismála.
Lesið frétt á heimasíðu Grønn Hverdag í gær
og rifjið upp „Orð dagsins“ 25. mars 2004
  

15. desember 2009
Plug-in PARToyota áformar að hefja sölu á tengiltvinnbílum á almennum markaði árið 2011 á samkeppnishæfu verði. Strax í þessum mánuði munu borgaryfirvöld í Strasbourg í Frakklandi fá 100 tengiltvinnbíla af gerðinni Toyota Prius á kaupleigu til reynslu, og um mitt næsta ár er gert ráð fyrir að 600 slíkir bílar verði leigðir út með sama hætti. Þessi gerð af Prius á að komast 23,4 km á rafmagninu einu saman, en í blönduðum akstri er gert ráð fyrir að bensínseyðslan verði að meðaltali um 1,75 l/100km. Chevrolet Volt verður að öllum líkindum fyrsti tengiltvinnbíllinn á Bandaríkjamarkaði, en Toyotabílarnir eiga að verða töluvert ódýrari.
Lesið frétt PlanetArk/Reuter í dag

11. desember 2009
Save our climateUm 100 þjóðir af þeim 192 sem eiga fulltrúa á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn, hafa sameinast um það markmið að halda hlýnun jarðar innan við 1,5°C miðað við það sem var fyrir iðnbyltingu. Til að þetta markmið náist þurfa ríkustu þjóðir heims að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um a.m.k. 45% fyrir árið 2020, miðað við það sem var 1990. Fulltrúar þessara 100 þjóða, með lítil eyríki í broddi fylkingar, telja markmiðið um tveggja gráðu hlýnun ófullnægjandi, enda sé skaðlegra áhrifa hlýnunar víða farið að gæta. Hitastig á jörðinni hefur þegar hækkað um 0,7°C, og afleiðingarnar sjást m.a. í skerðingu ferskvatnsauðlinda í eyríkjum og í hnignun kóralrifa.
Lesið frétt PlanetArk/Reuter í dag

10. desember 2009
Leðurskór IMSFlestir leðurskór innihalda efni sem eru skaðleg umhverfi og heilsu. Þetta kom fram í könnun sem sænsku náttúruverndarsamtökin Naturskyddsföreningen létu gera. Efnin sem um ræðir eru væntanlega einkum notuð við sútun og litun leðursins. Málmar eru fyrirferðarmestir á þessum lista, einkum króm, en í nokkrum tilvikum fundust einnig kvikasilfur, arsen og blý. Auk málmanna fundust azolitarefni, formaldehýð o.fl. Flest eiga þessi efni það sameiginlegt að geta valdið ofnæmi, auk þess sem þau hafa skaðleg áhrif á umhverfið, m.a. þegar skónum er fargað. Helstu ráð neytenda til að forðast þessi efni í skónum eru að kaupa skó með lífrænni vottun eða Evrópublóminu, velja leður sem er sútað með jurtum og spyrja söluaðila um efnainnihald vörunnar og umhverfisvottun framleiðandans. Svo er líka þjóðráð að nýta skóna lengur og kaupa fótabúnað úr náttúrulegu gúmmíi. Naturskyddsföreningen hefur áður látið gera sams konar kannanir á efnainnihaldi m.a. í plastskóm, stuttermabolum og sólarvörn.
Lesið frétt dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu (IMS) í gær
og frétt á heimasíðu Naturskyddsföreningen 3. desember sl.

9. desember 2009
Paper battery StanfordVísindamönnum við Stanford háskólann í Kaliforníu hefur tekist að búa til rafhlöðu úr venjulegum pappír, með því að „skrifa“ á hann með bleki úr nanóögnum úr kolefni og silfri. Vonir standa til að þessi tækni opni nýja möguleika á að framleiða léttar, endingargóðar og ódýrar rafhlöður, sem gætu m.a. hentað vel fyrir rafbíla og tvinnbíla.
Lesið frétt PlanetArk/Reuter í dag

8. desember 2009
CO2 AftenpostenOpinber loftslagsreiknivél var tekin í notkun í Noregi í gær, en með henni geta einstaklingar á einfaldan hátt reiknað hversu mikið af gróðurhúsalofttegundum sleppur út í andrúmsloftið af þeirra völdum. Reiknivélin hefur þá sérstöðu umfram flestar slíkar, að hún tekur einnig til óbeinnar losunar vegna neyslu, flutninga, matvöru o.s.frv. Þróun reiknivélarinnar var samstarfsverkefni sérfræðinga frá ýmsum rannsóknarstofum og stofnunum í Noregi, en verkið var unnið fyrir Klimaløftet, sem er fræðslumiðstöð norskra stjórnvalda um loftslagsmál.
Lesið frétt á heimasíðu Grønn Hverdag í gær
og frétt í Aftenposten í fyrradag
og skoðið reiknivélina á www.klimakalkulatoren.no 

7. desember 2009
COP 15 smallÍ dag hefst 15. þing aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (COP-15) í Kaupmannahöfn. Í tilefni af því hefur umhverfisfréttaveita Reuters birt stutt yfirlit yfir markmið og væntingar þeirra ríkja sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum.
Lesið frétt PlanerArk/Reuter í dag
og fylgist með heimasíðu COP-15

4. desember 2009
Save our climateJames Hansen, forstöðumaður NASA Goddard Institute for Space Studies í New York, hefur slegið því fram, að líklega væri það öllum fyrir bestu að loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn (COP-15) fari út um þúfur. James telur að hvert það samkomulag sem þar muni hugsanlega nást, verði svo gagnslaust, að það tefji fyrir raunverulegum árangri. Betra sé að byrja alveg frá grunni. James líkir loftslagsmálum við þrælahald á dögum Abrahams Lincoln og nasisma á dögum Winstons Churchill. Við slíkar aðstæður dugi engar málamiðlanir. Engum dytti t.d. í hug að leggja til að dregið yrði úr þrælahaldi um 40 eða 50%. Nú vanti leiðtoga sem átti sig á stöðunni og segi það sem þarf að segja!
Lesið frétt PlanetArk/Reuter í dag

2. desember 2009
HTH RegnskogBorðplötur úr regnskógatimbri eru víða til sölu í norskum innréttingabúðum. Þetta kom í ljós í nýrri könnun norskra umhverfis- og neytendasamtaka, sem kunngjörð var í síðustu viku. Innréttingar frá HTH og Sigdal komu verst út hvað þetta varðar, en HTH selur m.a. borðplötur úr sipo, iroko, ovangkol, zebrano og wengé, sem allt eru trjátegundir í útrýmingarhættu. Í fyrradag lýsti HTH því yfir að vara úr þessu hráefni verði tekin úr sölu. Árið 2010 verður alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni. Í tilefni af því hefur norski regnskógasjóðurinn (
Regnskogfondet) hvatt fyrirtæki sem nota eða selja timburvörur til að lýsa því yfir að þar sé ekki notað regnskógatimbur. Frá árinu 2008 hefur notkun á slíku timbri verið bönnuð í opinberum byggingarverkefnum í Noregi.
Lesið fréttir á heimasíðu Regskogfondet 26. nóv. sl. og í gær

1. desember 2009
101 lausn BellonaNorsku umhverfisverndarsamtökin Bellona hafa gefið út hefti með 101 lausn á loftslagsvandanum. Tilgangur útgáfunnar er að sýna að lausnirnar séu til og þess vegna geti samningamenn ríkja heims ekki annað en komist að góðu og metnaðarfullu samkomulagi á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn síðar í þessum mánuði. Útbúin hefur verið sérstök vefsíða á ensku með efni heftisins, og prentaðri enskri útgáfu verður einnig dreift í Kaupmannahöfn á meðan á loftslagsráðstefnunni stendur.
Lesið frétt á heimasíðu Bellona í dag
og skoðið 101 lausn á síðunni http://www.101-solutions.no/ 
  

ELDRI ORР


Stjórnborđ

Stćrra letur Minna letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Um Sambandiđ

Borgartúni 30
pósthólf 8100
128 Reykjavík
Sími 515 4900
Fax 515 4903
Kennitala: 550269-4739
samband@samband.is
Netföng starfsmanna

Fundir og ráđstefnur

9.3.2010

SAMSTARF til framtíđar

Miðvikudaginn 17. mars nk. stendur úrskurðarnefnd um starfsmat fyrir ráðstefnu um framtíð starfsmatskerfisins SAMSTARFS. Ráðstefnan fer fram í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, Reykjavík og hefst kl. 13:00.

Tilkynningar

19.2.2010

Auglýsing um starf sérfrćđings

Merki sambandsins - lítiðSamband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum verkefnum sveitarfélaga á sviði velferðarmála, svo sem húsnæðismálum og barnavernd. Sérfræðingurinn mun starfa með félagsþjónustunefnd sambandsins, sem hefur með höndum tillögugerð um áherslur og stefnumótun sveitarfélaganna í velferðarmálum. Um nýtt  starf er að ræða sem tengist m.a. fyrirhuguðum flutningi á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun maí.

Viđburđir

 «Mars 2010» 
sunmánţrimiđfimföslau
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031   


Leiđarkerfi

Innsláttarform fjárhagsáćtlanaStefnumörkun 2008-2010Lýđrćđi í sveitarfélögumFramtíđarsýnSumarhátíđir í sveitarféögumUpplýsingaveita sveitarfélagaUmsagnir sambandsinsBrussel skrifstofaVerkefnisstjórn um úrgangsmálUpplýsingar fyrir sveitarstjórnarmenn
Information in DanskInformation in English